Fréttablaðið - 25.10.2022, Page 8
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Fjölmiðlar
eiga hrós
skilið fyrir
að birta-
þessi viðtöl
en brýna
nauðsyn
bar til að
upplýsa
þjóðina
um alvar-
leika þessa
máls.
Í þeirri
vinnu sem
er fram
undan er
mikilvægt
að fá fram
sjónarmið
sem flestra
til að ná
farsælli
niður-
stöðu.
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Veitingastaður golfklúbbsins Keilis býður upp á jólamatseðil
alla föstudaga og laugardaga frá 11. nóvember til 10. desember 2022.
Tilvalið fyrir vinahópa og fyrirtæki frá 8 til 70 manns.
Lifandi tónlist og jólastemming.
Matseðill, sjá nánar á keilir.is
Borðapantanir á hafsteinn@betristofan.com og í síma 7792416
GK veitinga
GK veitingar, Golfklúbburinn Keilir
Steinholti 1 Hvaleyri, 220 Hafnarfirði
Jólagleði
Hinn 17. október síðastliðinn kynnti ég áform
um viðamiklar breytingar á menntakerfinu og ný
heildarlög um skólaþjónustu. Uppbygging heild-
stæðrar skólaþjónustu um allt land, sem byggð er á
þrepaskiptum stuðningi, er ein af meginaðgerðum
menntastefnu til ársins 2030. Að baki menntastefn-
unni var umfangsmikið samráð og greiningarvinna
við að þróa og byggja upp íslenska menntakerfið til
framtíðar. Nú er kominn tími til að hrinda þessum
verkþætti í framkvæmd og ná þannig mikilvægum
áfanga í þágu farsældar barna.
Markmið nýrra laga er að tryggja jafnræði í
þjónustu við börn og ungmenni í leik-, grunn- og
framhaldsskólum óháð aldri, uppruna og búsetu,
mæta ákalli um aukna ráðgjöf og stuðning við
starfsfólk og stjórnendur á vettvangi skólans, ef la
þverfaglega samvinnu og samþættingu milli skóla-
og þjónustustiga í þágu farsældar barna og tryggja
öllum skólum faglegt bakland í sínum fjölbreyttu
verkefnum.
Í þeirri vinnu sem er fram undan er mikilvægt
að fá fram sjónarmið sem flestra til að ná farsælli
niðurstöðu. Samráð við hlutaðeigandi gegnir lykil-
hlutverki til að koma sem best til móts við þarfir
haghafa skólasamfélagsins og tengdra þjónustu-
kerfa. Nú fyrir helgi sendi ég boð til haghafa um
allt land og hvet öll sem hafa áhuga til að taka þátt í
samráði og móta skólaþjónustu til framtíðar.
Á næstu vikum taka til starfa samráðshópar þar
sem kallað er eftir víðtæku samráði við börn og ung-
menni, foreldra, kennara, stjórnendur og starfsfólk
í leik-, grunn- og framhaldsskólum, frístundaheim-
ilum, félagsmiðstöðvum, skólaþjónustu og öðrum
þjónustukerfum.
Þau sem hafa áhuga á því að taka þátt í þessari
vinnu eru hvött til að senda inn ábendingar eða skrá
sig til þátttöku í samráðshópum með því að senda
póst á netfangið mrn@mrn.is með „Skólaþjónusta“ í
efnislínu fyrir lok dags 4. nóvember næstkomandi. n
Skólaþjónusta til
framtíðar, taktu þátt
Ásmundur
Einar Daðason
mennta- og barna-
málaráðherra
Grimmilegt einelti sem Ísabella Von
Sædísardóttir, 12 ára, hefur orðið
að þola sem endaði með því að hún
reyndi að svipta sig lífi hefur vakið
þjóðarathygli.
Sem betur fer náðu neyðaróp Ísabellu og
Sædísar móður hennar eyrum almennings.
Þannig varð á allra vitorði hið hatramma ein-
elti sem stúlkan varð fyrir þar sem jafnaldrar
óskuðu henni jafnvel dauða. Börnin sem eru ger-
endur í þessu máli þarfnast líka sárlega hjálpar.
Sædís móðir Ísabellu kom fram í Bítinu á
Bylgjunni og lýsti því sem dóttir hennar hefur
orðið að þola. Fréttastofa RÚV fylgdi svo í kjöl-
farið með viðtali við Ísabellu sem sýndi einstakt
hugrekki með því að segja sögu sína frammi
fyrir alþjóð.
Fjölmiðlar eiga hrós skilið fyrir að birta þessi
viðtöl því að brýna nauðsyn bar til að upplýsa
þjóðina um alvarleika málsins. Það er einnig í
takt við það sem þeir sem starfa að velferðar-
málum barna segja, að besta leiðin til að skapa
betra samfélag fyrir börn sé að hlusta á þau.
Hatursorðræða gagnvart íslenskum börnum
af öðrum kynþætti er að sama skapi óþolandi
plága. Önnur íslensk ofurhetja, Sóley Lóa Smára-
dóttir, 15 ára, kom fram í fjölmiðlum á dög-
unum og sagði frá sárri reynslu sinni af rasisma
í skólanum. Hún hefur oft verið kölluð niðrandi
orðum og kennara einum fannst sjálfsagt að
hún fræddi skólafélaga sína um Afríku, en hún
var ættleidd hingað til landsins frá Tógó aðeins
fárra mánaða. Sóley segir að ef hún kvarti við
skólayfirvöld sé henni hlýlega tekið en síðan sé
ekkert gert.
Árið 2011 tók ellefu ára gamall drengur, Dag-
bjartur Heiðar Arnarsson, líf sitt vegna eineltis.
Foreldrar Dagbjarts hafa kosið að ræða opin-
skátt um eineltið sem eyðilagði líf drengsins. Þau
vonuðu í hjarta sér að örlög hans myndu leiða
til róttækra breytinga í eineltismálum, þannig
hefði Dagbjartur ekki dáið til einskis. Erla Kaja
Emilsdóttir, móðir Dagbjarts, sagði í samtali við
Fréttablaðið að því miður hefði lítið breyst í ein-
eltismálum hér á landi á þeim ellefu árum sem
liðin eru síðan Dagbjartur lést. Öll þjóðin þarf að
leggjast á árarnar til að uppræta þetta þjóðar-
mein. Vonandi eigum við líka ráðamenn með
hjartað á réttum stað sem svara ákalli Ísabellu
Vonar, Sædísar, Erlu Kaju, Sóleyjar Lóu og fleiri.
Kærleikur fólks og stuðningur er sem betur
fer ekki langt undan, þegar illskan gengur fram
af fólki. Fjöldi ungmenna hefur beðið Ísabellu
afsökunar eftir að viðtölin við hana og móður
hennar birtust. Börn og fullorðnir senda þeim
hlý skilaboð, hringja og koma við og safna fé og
gefi alls kyns hluti. n
Hlustum á börnin
benediktboas@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Dúfan til bjargar
Stuðningsfólk Arsenal hefur
farið með himinskautum undan-
farið. Gert jafnvel grín að þeim
sem fjalla um enskt tuðruspark
fyrir að dásama ekki nógu mikið
Mikael Arteta þjálfara. Um helgina
gerði liðið þó aðeins jafntefli við
Southampton og fara spekingar í
taugar stuðningsmanna með því
að spá að þetta sé upphafið að
endinum. En áhangendur Arsenal
benda á óvænt rök því dúfa birtist
á vellinum og kom sér fyrir á teig
liðsins. Truflaði lítið en allir tóku
eftir. Bæði á vellinum og í sjón-
varpinu. Benda stuðningsmenn-
irnir á að dúfa merki velmegun,
gæfu, heppni og umbreytingu –
sem er allt sem Arteta hefur gert.
Feðraveldið styður sína
Nýr forsætisráðherra Bretlands
var í gær kynntur upp úr hatti
feðraveldisins í svokallaðri 1922-
nefnd Íhaldsflokksins þar í landi
þegar hann varð sjálfkjörinn
formaður f lokksins. Er þar um að
ræða Rishi Sunak sem reyndar
tapaði fyrir fáeinum mánuðum
í slag um þetta sama formanns-
sæti fyrir Lis Truss sem virtist
aðeins geta stigið feilspor að mati
f lokkssystkina sinna. Myndin sem
er á forsíðu Fréttablaðsins í dag
endurspeglar kannski á sinn hátt
nafn Íhaldsflokksins á mynd-
rænan hátt: karlar að sýna nýjasta
karlinn í brúnni. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR