Fréttablaðið - 25.10.2022, Qupperneq 44
odduraevar@frettabladid.is
Tvær stærstu sjónvarpsþáttaseríur haustsins kláruðust báðar í
vikunni. House of the Dragon sem aldrei komst í íslenskt sjón-
varp og Lord of the Rings: Rings of Power. Tveir sérfræðingar
Krúnuvarpsins segja sína skoðun á seríunum tveimur.
Endalok dreka og
álfa runnin upp
Óttablandnar vonir
„Ég bar góðar en óttablandnar
vonir til House of the Dragon í
upphafi,“ segir Samúel Karl Ólason,
blaðamaður á Vísi, sem skrifaði um
árabil sérstaka Game of Thrones-
pistla. Hann var fyrsti gesturinn
í Krúnuvarpi Fréttablaðsins,
sérstöku hlaðvarpi undir hatti Bíó-
varpsins um þættina góðu ásamt
Lord of the Rings þáttunum.
„Mín helstu vonbrigði snúa kannski helst að því að á
köflum gerðist heldur lítið í þáttunum en það er samt
ef til vill ekki sanngjarnasta gagnrýnin þar sem þátta-
röðin snýst að miklu leyti um það að byggja upp átök
milli tveggja fylkinga í Westeros. Þá má vel segja að
rólegheitin hafi gefið þáttunum sérstakan drama-blæ
sem maður tengir ef til vill ekki við Game of Thrones
en það er ekkert endilega slæmt,“ segir Samúel Karl.
„Persónusköpun George R.R. Martin fær að njóta sín
mjög í þáttunum eins og hún gerði í fyrri þáttaröðum
Game of Thrones. Þá á ég við að maður getur tengt við
þær og skilið þær. GRRM er mjög góður í því að blanda
línurnar milli góðs og ills að því leyti að það er erfitt að
segja að þessi persóna sé vond og að önnur séð góð.
Maður skilur oftar en ekki af hverju persónurnar taka
þær ákvarðanir sem þær taka, þó að þær ákvarðanir
geti verið ömurlegar og haft hræðilegar afleiðingar.
Það er líka augljóst að ekkert hefur verið til sparað
við framleiðslu þáttanna. Allar sviðsmyndir eru til
að mynda upp á tíu og það sama má að mestu
segja um tæknibrellur og annað. HBO
hefur ekkert til sparað.“
Risastór áskorun
„Í stuttu máli fannst mér serían
mjög góð,“ segir Stefán Pettersson,
sérlegur sérfræðingur Krúnu-
varpsins um sjónvarpsseríuna Lord
of the Rings: Rings of Power sem
kláraðist í síðustu viku.
Stefán segir að handritshöfund-
arnir J.D. Payne og Patrick McKay
hafi tekist á við risastórt verkefni
þegar þeir samþykktu að taka að sér sjónvarps-
þáttaseríuna.
„Þrátt fyrir takmarkaðar heimildir sem þeir máttu
nota úr Tolkien-verkum þá gerðu þeir þetta furðu-
lega vel, jafnvel þótt þeir hafi gert smávægilegar
breytingar á efninu,“ segir Stefán.
Hann segir það ekki hafa skemmt fyrir að sagan
sé meira og minna frumsamin af höfundunum.
„Hún virkar mjög Tolkien-leg og það eru
ýmis þemu í þáttunum sem sjást í ritum Tolki-
ens. Barátta milli ljóss og myrkurs, vonar
og vonleysis og viðhorfið til dauðans og
ódauðleika sem er rauður þráður í gegnum
allar bækur rithöfundarins og líka í þessari
seríu.“
Það má vel segja að
rólegheitin hafi gefið
þáttunum dramablæ.
Þáttaröðin virkar mjög
Tolkien-leg og það eru ýmis
þemu í þáttunum sem
sjást í ritum Tolkiens.
16 Lífið 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. október 2022 ÞRIÐJUDAGUR