Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Síða 3
Fréttamolinn
Fréttamolinn
Tómas Guðmundsson
sóknarprestur.
Hugleiðing á jólum 1985
Dýrð sé Guði í upphæðum og
friður á jörðu með þeim rnönnum,
sem hann hefur velþóknun á.
(Lúk. 2,14).
Þannig söng englaskarinn sem sendur var frá
himni nóttina, sem Jesús fæddist. Fyrst var þessi
boðskapur fluttur háum rómi: „Yður er í dag
frelsari fæddur. “ Og í sömu svipan var með englin-
um fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og
sögðu: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á
jörðu. “ Fyrst englar himins gátu sungið þannig, hve
miklu fremur ættum við að gleðjast og syngja
Drottni lof, við sem tilheyrum mannkyninu, sem
Guð blessaði áþennan hátt. Við fögnum á fæðingar-
hátíð Krists. Sá fögnuður byggist ekki á glym og
háreisti, heldur kyrrð og friði.
Við búum okkur undir jólahátíðina með miklu
amstri, mörg hver, og gerum hinn ytra búnað
glæstan og ánægjulegt er það, en hvernig búum við
okkur hið innra, undir þá blessuðu hátíð? Að því
þurfum við að huga. Við gerum það öll, hvert á sinn
máta, en fæstir gefa sér tíma í kyrrð og ró til að
hugleiða þá blessun, sem jólin eru okkur og hafa
verið gegnum árin.
Jólafastan, sá tfmi sem okkur er gefinn til að búa
okkur undir jólin er ysmikill kaupsýslutími, með
urmul af jólasveinum og allskyns fyrirbærum. Við
viljum hafa það svo, annars væri það ekki.
Vissulega skapar tilstandið á aðventu sérstaka
stemmningu. Við finnum, að það er eitthvað stór-
kostlegt í vændum. Eftirvæntingin fyllir okkur gleði
og við viljum gefa öðrum hlutdeild íþeirrigleði. Því
það er hluti af undirbúningi jólanna, að velja gjafir
handa vinum og vandamönnum og senda kveðjur,
jafnvel þeim sem við annars höfum lítil samskipti
við.
Þannig vekur jólahugurinn upp það besta sem
með okkur býr. Því verður ytri búnaðurinn að
minna okkur á uppsprettuna, Jesúbarnið í jötunni,
en ekki skyggja á hana. Því er okkur nauðsynlegt að
eiga stund á jólum íkyrrð ogfriði, láta hugann reika
til liðinna jóla. hugsa til ástvinanna, sem margireru
horfnir af tímans braut.
Og láta hugann líða lengra, að gripahúsinu í
Betlehem þarsem ferðlúin fjölskylda leitar skjóls og
barnið fæðist. Að BetlehemsvöIIum, þar sem hirð-
arnir sitja hljóðir kringum bál og þögn næturinnar er
skyndilega rofin og flutt eru mestu tíðindi veraldar:
„Yður er í dag frelsari fæddur. Dýrð sé Guði í
upphæðum og friður með þeim mönnum sem hann
hefur velþóknun á. “
Tómas Gudmundsson