Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Page 9
Fréttamolinn
Fréttamolinn
Gestur Ámundason framkvæmdastjóri og Bjarni Jónsson vélstjóri í
stjórnstöð.
Brýn þörf
Frárennsli og landbrot
Skarð sem sjórinn myndaði nýlega fyrir neðan fiskverkunarhús
Glettings hf. Eins og sjá má á sjórinn greiða leið á land upp.
„Eg tel mjög mikla þörf vera
á ísverksmiðjunni því hér hefur
oft verið hörgull á ís og komið til
mikilla vandræða af þeim
sökum. Sérstaklega hefur skap-
ast slæmt ástand hér að undan-
förnu. Þurft hefur að sækja ís
langar leiðir t.d. til Reykjavíkur
og Grindavíkur með tilheyrandi
aukakostnaði og óþægindum.
Iðulega hefur komið fyrir að
bátarnir hafa alls ekki fengið
þann ís sem þeir þurfa og hefur
þetta komið niður á hráefnis-
gæðum." Þetta sagði Gestur
Ámundason framkvæmdastjóri
ísverksmiðjunnar er hann var
spurður um nauðsyn þessara
framkvæmda. Hann sagði að
þeir hefðu verið að afgreiða í í
síldarflotann að undanförnu og
vissi hann ekki annað en mönn-
um líkaði hann mjög vel. Gestur
sagði þennan ís vera mjög frá-
brugðin þeim hefðbundna skelís
sem mest hefur verið notaður.
„Hér framleiðum við svonefnd-
an núll-gráðu ís sem á að geym-
ast við núll gráður, en skelís
aftur á móti frá núll gráðum upp
í tíu stiga frost. Gæðamunurinn
felst í því að þessi ís er sterkur og
er alltaf í bráðnun og úr honum
drýpur sífellt ofan í fiskinn.
Frostísinn hefur aftur á móti
tileinkun til þess að hjúpa sig yfir
fiskinn og bráðnar ekki ofan í
hann og kælir þar af leiðandi
ekki.“ Hann nefndi sem dæmi til
frekari glöggvunar, ef maður
græfi sig í snjófönn, þá mundi
snjóriiin bráðna í kring um hann
og síðan hitnaði hjá honum í því
húsi sem í kringum hann væri.
„Það hefur aðeins borið á því
hjá mönnum sem eru óvanir að
nota þennan ís að þeir hafi keyrt
of mikla kælingu á lestarrými
skipanna en þá er sú hætta fyrir
hendi að þessi ís geti hlaupið í
frostkekki. Til þess að hann
þjóni sínum tilgangi má hann
ekki frjósa," sagði Gestur.
Aðspurður sagði hann að
bátaflotinn hefði mestallur not-
að þennan nýja ís nú á síldarver-
tíðinni en til væri undantekning
með eitt fyrirtæki hér á staðnum,
þar sem forráðamenn hafa verið
með fordóma gagnvart þessum
ís án þess að kynna sér þessa
hluti nægilega vel. Hafa þeir sótt
ís í stórum stíl í önnur byggðar-
lög til að setja í skip hér við
hliðina á ísverksmiðju Þorláks-
hafnar.
Blm. FM hitti að máli formann
heilbrigðisnefndar Ölfushrepps
og spurði hvað liði úrbótum á
mengun í höfninni í Þorláks-
höfn, en talsverð gagnrýni hefur
verið meðal bátaeigenda á
megnun í höfninni þar sem bátar
þeirra eru útataðir í sora við að
liggja í höfninni og þá sérstak-
lega þeir eldri. „Þetta er búið að
vera nokkuð vandamál í nokkur
ár sem ekki hefur tekist að leysa.
Það er ljóst að við þetta er ekki
hægt að una og laus'n verður að
finnast. Ekki þýðir að skipta um
fríholt á bryggjum fyrr en frá-
rennsli hjá fiskverkunum hefur
verið veitt utan hafnar því fit-
uefni leysa upp gúmí á bryggjum
jafn harðan.“
Hér á eftir fylgir úrdráttur úr
fundargerðum síðustu funda
heilbrigðisnefndar varðandi
þetta mál, þolendum til fróð-
leiks.
Á fundi heilbrigðisnefnda Ölf-
ushrepps þann 26. september
s.l. var enn rætt um frárennslis-
mál í Þorlákshöfn. Þrátt fyrir
ítrekaðar beiðnir heilbrigðis-
nefndar um úrbætur á frárennsli
þorpsins sl. ár þykir nefndinni
sem framkvæmdir hafi ekki verið
sem skyldi. Var því ákveðið að
skrifa hreppsnefnd og Lands-
hafnarnefnd bréf þar sem þessir
voru boðaðir til fundar með bréfi
dagsettu 8. okt. til fundar 15.
nóvember.
Fundur með fulltrúum hrepps-
nefndar og Landshafnar 15. nóv-
ember:
Aðalmál fundarins var eins og
fyrr segir, frárennslismál þorps-
ins og mengun hafnarinnar, mál
nr. 2,ágangursjávar oglandbrot.
Frárennslismálin voru rædd
mjög ítarlega og fundarmenn
töldu að skortur á samvinnu
hrepps og landshafnarnefndar
hefðu torveldað framkvæmd í
úrbótum undanfarin ár. Fulltrú-
ar hrepps og hafnarnefndar voru
á eitt sáttir um nauðsyn á sameig-
inlegu átaki við að koma þessu
margra ára vandamáli í þann
farveg að allt frárennsli fari utan
hafnarinnar. Reifaðar voru ákv-
eðnar leiðir sem dugað gætu,
hvað varðar kostnað og fram-
kvæmd þessa brýna verkefnis.
Báðir aðilar lofuðu að ræða þetta
mál ítarlega í hvorri nefnd fyrir
sig og bera síðan árangurinn
undir heilbrigðisnefnd. Heil-
brigðisnefnd bindur við það von-
ir að nú megi vænta að farsæl
lausn náist loksins á þessu mara-
þon vandamáli.
Mál nr. 2: varnir gegn ágangi
sjávar vestur af hafnarvita. Þar
sem siór gengur á land og er
þegar búinn að valda tjóni á
landi. Fundarmenn sáu allir
hversu brýnt er að efla þar varnir
áður en nesið sem er elsti gróð-
urblettur þessa staðar á ekki að
verða sjónum að bráð. Einnig
benti heilbrigðisnefnd ítrekað á
óæskilega sandtöku úr Skötubót
og spjöll á gróðri þar og hefði sú
sandtaka orsakað meira sandfok
á þeim slóðum, þ.e. í nágrenni
Glettings hf. Jafnframt veikt
sjávarkambinn fyrir ágangi
sjávar. Sýndu fundarmenn skiln-
ing á nauðsyn þess að stöðva þar
sandtöku og gera ákveðnar úr-
bætur þar á. Þennan sama dag
15. nóvember sönnuðu veður-
guðirnir nauðsyn um varnir gegn
ágangi sjávar, því brim æddi á
land í nesinu og sjór braut sér
leið innfyrir sjávarkamb í skötu-
bót og er þar nú skarð fyrir skildi
svo sjór á nú greiða leið allt að
mannvirkjum ölettings og sand-
ur bíður byrs.
„Ég vona að ráðamenn í Þor-
lákshöfn verði betur á verði
gagnvart gróðurbreytingu í ná-
grenni þessa byggðarlags. Dæm-
in sanna það, að ekki má skilja
eftir illa frágengin svæði svo sem
í Skötubót og meðfram hita-
veitulögninni, sem hefur látið á
sjá vegna sandfoks af þeim
sökum. Því er það nauðsynlegt
þar sem sandtaka fer fram, að
sáð sé í sárin svo sandfok byrji
ekki. Ég vil minna á að menn hér
fyrr á árum fengu sig fullsadda í
sandbyljum hér í Þorlákshöfn og
þá sérstaklega á Þorlákshafnar-
vegi. Bílar á þessari leið komu
sandblásnir og með matt gler úr
viðureign sinni við sandinn, slíkt
er óþarfi að endurtaka. Að síð-
ustu vil ég segja við íbúa þessa
hrepps: Fégrum umhverfi okkar,
en spillum því ekki, því það er
allra hagur,“ sagði Erlingur
Ævarr að lokum.
Frá Leikfélagi Hveragerðis:
KJARTANSKVÖLD
Þann 16. nóvember s.l. efndi
leikfélag Hveragerðis til svokall-
aðs „Kjartanskvölds" þ.e.a.s.
kynningu á verkum hins vinsæla
leikara og höfundar Kjartans
Ragnarssonar. Sýningin var í
Hótel Ljósbrá og var vægast sagt
fullt út úr dyrum og þurftu marg-
ir frá að hverfa. Áhorfendur
tóku sýningunni mjög vel og var
mikil stemming í salnum. Höf-
undurinn Kjartan Ragnarsson
var heiðursgestur kvöldsins og
skemmti svo gestum í lok sýning-
ar. Um 35 félagar tóku þátt í
sýninguni og stóð undirbúningur
í um það bil 2 mánuði, og vill
Leikfélagið nota hér tækifærið
og þakka þessu fólki fyrir vel
unnin störf. Leikstjóri var Ragn-
hildur Steingrímsdóttir og má
telja það víst að það hve vel
tókst til megi þakka henni.
I sýningunni skiptust á leikin
atriði, söngur og upplestur og
var meira eða minna drepið nið-
ur í öll verk Kjartans. Upphaf-
lega var bara áætluð þessi eina
sýning, en vegna mikillar að-
sóknar voru tvær aukasýningar
Kór Leikfélags Hveragerðis.
og bauð Leikfélagið ellilífeyris-
þegum á aðra þeirra.
Við vonum svo að allir hafi
skemmt sér vel. Næsta verkefni
okkar verður, ef að líkum lætur,
grímuball á þrettándanum fyrir
yngri borgarana. Síðan verður
leikrit ársins væntanlega frum-
sýnt um miðjan mars og svo
„Kabarett" á síðasta vetrardag.
Og! Hvergerðingar! Ef þið
hafið áhuga á að starfa með
líflegu og skemmtilegu félagi þá
hafið samband.
K jartan les upp úr verki sem
hann er með í siníðum.
Úr Saumastofunni, frá vinstri: Steindór, Stína, Alla Magga,
Hanna María, Dottý, Inga og Berglind.
Troðfullur salur og ailir í hátíðarskapi.