Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Side 17

Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Side 17
FM Fréttamolinn Fréttamolinn FM Framhald af þankabrotum nefndarmanna: Þorleifur Björgvinsson oddviti: Stórátaks er þörf Senn líður að áramótum. Eftir áramótin tekur þriðja kvótaárið við með sínum skömmtunum og takmörkunum. Óhjákvæmilegt er að beita einhverjum tak- mörkunum til að vernda þorsk- stofninn og lengi má deila um hve miklar þær eiga að vera. Ég er í meginatriðum sammála kvótakerfinu eins og það verður framkvæmt á næsta ári og tel það koma nokkuð réttlátlega niður á fiskveiðum hér í Þorlákshöfn, þótt alltaf megi eitthvað betur fara. Ný ísverksmiðja var vígð hér 23. nóvember og var þar með stigið mjög stórt skref í útgerðar- sögu Þorlákshafnar þar sem nú er hægt að fá nægan ís í allan fisk en eins og flestum er kunnugt hefur það ekki verið hægt fram að þessu nema með ómældum kostnaði og tímaeyðslu. Það hráefni sem berst á land hér í Þorlákshöfn þarf ekki að batna nemaum4% tilað skila jafnvirði tveggja ísverksmiðja á ári í verð- mætaaukningu. ísfélag Þorláks- hafnar hefur einnig á stefnuskrá sinni að byggja kælda fiskmót- töku við höfnina og væri þá hægt að landa öllum fiski hér beint í hana hvort sem hann færi í vinnslu hjá fyrirtækjum hér á staðnum éða annarsstaðar þar með talinn sá fiskur sem bíður útflutnings ferskur í gámum. Þetta myndi auka alla hagræð- ingu í sambandi við löndun og vafalaust bæta gæði aflans sem á land berst auk þess sem fisk- vinnslustöðvarnar fengju aukið pláss í sínum húsum til annarra hluta. Það vekur nokkurn ugg hve margir stórir og góðir bátar hafa verið seldir burt af staðnum og engir komið í þeirra stað. Það sýnir kannski best hvernig á- standið er orðið í útgerð og fiskvinnslu hér á landi. Megin orsök á þessum vanda er röng gengisskráning en það gengur illa að koma ráðamönnum þjóð- arinnar í skilning um að það verður að selja gjaldeyririnn á því verði sem það kostar að framleiða hann og bjarga þar engar erlendar lántökur því þær verður allar að borga að lokum. Til að snúa þessu við þarf fólkið í landinu að vita hvaðan verð- mætin koma og hvar þau verða til. Þau verða ekki til með því að versla með verðbréf. Nei stór- átak þarf að koma til og það skeðurekki nema allir sem málið varðar (þ.e. eiga hagsmuni af sjósókn og fiskvinnslu) snúi bök- um saman og standi fast á því sem þeim ber. Þorlákshöfn fór illa út úr síld- arsöltun þctta árið vegna þess að síldin veiddist á fjarlægum miðum. Ég held að þessi vertíð hafi sýnt okkur fram á það að breytinga er þörf við veiðar og vinnslu á síld til þess að koma í veg fyrir svo stórar sveiflur sem raun ber vitni. Kcmur þar tvennt til greina að mínu mati. Auka söltundarkvóta stöðva eða deila því magni sem má salta jafnt á milli báta og afgangur færi þá í frystingu. Mínar huglciðingar hér að framan hafa ckki snúist neitt um málefni svcitarfélagsins scm slíks, þar scm ég veit aö það væri að bera í bakkafullan lækinn því allir hreppsnefndarmenn skrifa í þetta blað í dag. En málefni sjávarútvegsins hljóta að vera málefni sveitarfé- lagsins því velferð þess byggist á honum. Ölfushreppur er vel stæður þó að lausafjárstaðan sé mjög slæm. Nægir að benda á það að ríkið skuldar okkur 14 milljónir króna vegna skóla- byggingar og vitum við ekki hve- nær við fáum þá peninga inn. Ákveðið hefur verið að ráðast í byggingu íbúða fyrir aldraða á næsta ári og er búið að ákveða þeim stað sunnan Egilsbrautar á lóð sem sýslan og Selfossbær áttur en Ölfushreppur hefur nú keypt. Þá hefur nýlega verið ákveðið svæði fyrir væntanlegan Þorleifur Björgyinsson. miðbæjarkjarna og er hann fyrir neðan Selvogsbraut á móti fél- agsheimilinu og versluninni Hildi. Þar er búið að ákveða heilsugæslustöðinni stað og þótti rétt að hún yrði í væntanlegu hjarta bæjarins. Ég vil að lokum færa lesendum blaðsins svo og öllum Sunnlend- ingum bestu jóla og nýárskveðj- ur og vona að okkur verði öllum komandi ár gæfuríkt. Þorleifur Björgvinsson. Stofnendur Útvegsmannafélagsins heiðraðir: F.v. Guðmundur Friðriksson, Karl Karlsson, Benedikt Thorarensen og Hafsteinn Asgeirsson formaður Ú.Þ. Afmælishóf Atvinna Verkstjóri óskast í litla fiskverkun, helst með matsréttindi. Upplýsingar á kvöldin í síma 3771. Eins og skýrt var frá í síðasta blaði eru á þessu ári liðin tuttugu ár frá stofnun Útvegsmannafé- lags Þorlákshafnar. Afþvítilefni var efnt til veglegs afmælishófs í Skíðaskálanum í Hveradölum, laugardaginn 23. nóv. að við- stöddu fjölmenni félagsmanna og gesta. Aðild að félaginu eiga útvegsmenn á Eyrarbakka og í Þorlákshöfn. Við þetta tækifæri heiðraði stjórn útvegsmannafélagins þá Benedikt Thorarensen, Karl Karlsson og Guðmund Friðriks- son, en þeir beittu sér fyrir stofnun félagsins. Félaginu voru færðar gjafir. LÍÚ færði félaginu að gjöf öll bindi íslenskra Sjávarhátta, sem formaður þess, Kristján Ragn- arsson afhenti og Þórður Ólafs- son verkalýðsformaður gaf fund- arhamar einn mikinn frá Verka- lýðsfélaginu Boðanum. Tekið var til þess að menn lögðust á eitt með að hvíla alla umræðu um kvótamál þetta kvöldið. iY,aúS- oö *&&**»&*** . . _ r j i i i i i n i i i i i l i i i i l ■ Austurvegi 38, Selfossi, sími 1816/1817

x

Fréttamolinn : óháð fréttablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttamolinn : óháð fréttablað
https://timarit.is/publication/1719

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.