Fréttamolinn : óháð fréttablað - 15.12.1985, Qupperneq 19
Fréttamolinn
Jólatréssala
-Frá Kiwanisklúbbnum Ölver Þorlákshöfn
Þetta er 28 manna klúbbur
sem gerir ýmislegt annað en sitja
fundi. Á tímanum frá í október
til maí ár hvert.
Það eru ýmis styrktarverkefni
sem tekin eru fyrir og má nefna
að á síðasta ári var gefið sjón-
varp í Grunnskólann, verðlauna-
bikarar í skák hjá ungum skák-
nemendum. Þá var gefið til
kirkjunnar í bekkjarkaup. Svo
var stutt við bakið á björgunar-
sveitinni hér á staðnurn, einnig
voru keypt endurskinsmerki til
að gefa. í skólana en lögreglan
var á undan með það þctta árið.
Þá er rétt að geta þess að við í
Ölver verðum með jólatréssölu
18. desember og heimkeyrslu á
pöntuðum jólatrjám þ. 23. des.
og einnig flugeldasölu 27.-31.
des. Hér hefur verið stiklaö á
stóru af því sem gert er árlega í
Ölver. Styrktanefndin
Að brynna þyrstum
vegfarendum
Guðlaugur Þórarinsson heitir maðurinn eða Laugi í Fells-
koti eins og hann er stundum nefndur. Laugi hefur nú nýverið
söðlað um og tileinkað sér nýja atvinnugrein sem fellst í því að
blanda og hanna ýmsar gerðir drykkja og brynna þyrstum
vegfarendum sem leið eiga í Gjána á Selfossi, en eins og margir
vita þá voru viðhöfð eigendaskipti á því fyrirtæki ekki alls fyrir
löngu og er Guðlaugur því jafnframt hinn nýji eigandi
veitingahússins. Ekki er annað að sjá en að pilturinn sé
nokkuð búralegur, þar sem hann rennir augunum yfir þyrsta
hjörðina.
Hér eru vegfarendur langt að komnir, allt austan frá
Hvolsvelli, Vík í Mýrdal og Þorlákshöfn og ekki er annað að
sjá en Laugi sé búinn að ausa í drykkjarkerin.
Tannlæknastofan Egilsbraut
14 S: 3535.
Auglýsir opnunartíma:
Miðvikudaga 13.00- 17.00
Fimmtudaga 09.00- 17.00
Föstudaga 09.00- 17.00
Opið um helgar eftir nánara umtali.
GLEÐILEG JÓL
Pökkum viðskiptin á liðnu ári.
Friðrik H. Ólafsson
Tannlæknir.
Fréttamolinn
FM
Læknisbústaðurinn sem ætlunin er að fá undir rekstur dvalarheimilisins.
Eyrarbakki:
Dvalarheimili fyrir
aldraða
Fimmtudaginn 14. nóvember
var stofnað nýtt félag á Eyrar-
bakka. Félagið hlaut nafnið
Samtök áhugamanna um dvalar-
heimili á Eyrarbakka. Stofn-
fundur félagsins var með fjöl-
mennustu almennu fundum sem
hér hafa verið haldnir um árabil.
Yfir fimmtíu manns komu á
fundinn og gerðust fimmtíu
fundarmanna stofnfélagar sam-
takanna. Áberandi var að margt
ungt fólk var í þeim hópi.
Eins og nafn félagsins ber með
sér er markmið félagsins að
koma á fót dvalarheimili fyrir
aldraða á Eyrarbakka. Það er
mál manna að umræðu um stofn-
un slíks heimilis megi rekja ein
40 ár aftur í tímann.
Stefnt er að því að leigja
Sólvelli fyrrverandi læknisbú-
stað þorpsins af sveitarfélaginu
undir starfsemina. Gerðar verða
nokkrar endurbætur á húsinu
bæði hið ytra og innra. Endur-
bætur svo og væntanlegur rekst-
ur heimilisins verða í höndum
félagsins. Átta vistherbergi
verða í húsinu og geta þrjú
þeirra hýst tvo menn. Fjöldi
vistmanna verður á bilinu 8-11
manns. Stefnt er að því að afla
fjár til framkvæmdanna með
frjálsum framlögum fyrirtækja,
félaga og einstaklinga innan
sveitarfélagsins og utan. Á fund-
inum var kjörin undirbúnings-
stjórn til að undirbúa málið
frekar, scmja stofnskrá og ræða
við opinbera aðila um framgang
málsins. Ef allt gengur að óskum
er stefnt að því að taka heimilið
í notkun á miðju næsta ári.
Frekari upplýsingar veita, ef
óskað er, Ási Markús sími 3120
og Inga Lára sími 3443.
Fréttatilkynning
Messur og ann-
að helgihald í
Hveragerðis-
prestakalli
14.-31. des, ’85:
Laugard. 14. des: Barnaguðsþjón-
usta Þorlákskirkju kl. 11.
Sunnud. 15. des: Messa kapellu
N.L.F.Í. Hveragerði kl. 11.
Barnaguðsþjónusta Hveragerðis-
kirkju kl. 11 (Sævar, Klara, Guðrún
íris, Signý).
Fjölskyldumessa Þorlákskirkju kl.
14. Ungt fólk annast messugjörð að
hluta. Kór Grunnskólans syngur
undir stjórn Sólveigar Jónsson. Stef-
án Þorleifsson og Kristín Sigfúsdóttir
stjórna almennum söng. Sigríður
Kjartansdóttir leikur á orgel.
Sunnudagur 22. des: Barnaguðs-
þjónusta Hveragerðiskirkju kl. 11.
Jólatónleikar Hveragerðiskirkju kl.
21. Bel Canto kórinn Garðabæ syng-
ur jólasöngva. Stjórnandi Guðfinna
Dóra Ólafsdóttir. Við orgelið Gústaf
Jóhannesson.
Aðfangadagur: Aftansöngur Þor
lákskirkju kl. 18.
Aftansöngur Hveragerðiskirkju
kl.21.
Jóladagur: Messa Kapellu N.L.F.Í.
Hveragerði kl. 11.
Messa Kotstrandarkirkju kl. 14.
Skírnarmessa Hveragerðiskirkju kl.
16.
Annar jóladagur: Messa Hjalla-
kirkju kl. 14.
28. des: Kirkjukvöld Þorlákskirkju
kl. 17. Ræða Helgi Sæmundsson,
einsöngur Ólafur Magnússon frá
Mosfelh við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Kirkjukórinn o.fl.
29. des: Messa Strandakirkju kl. 14.
31. des: Aftansöngur Hveragerðis-
kirkjukl. 18.
Barnastarf í Þorlákskirkju byrjar
aftur 11. janúar og verður á hverjum
laugardegi kl. 11.
Barnastarf í Hveragerðiskirkju
byrjar 5. janúar og verður á hverjum
sunnudegi kl. 11.
Viðtalstími er í Egilsbúð Þorláks-
höfn á þriðjudögum kl. 12.30 -14.
Viðtalstími er í Hveragerðiskirkju
á miðvikudógum kl. 16-19, sími
4698. Heima.ími 4255.
Gleðilega hátíð.
Tómas Guðmundsson