Skessuhorn - 28.09.2022, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20222
Sérblað um
íslenska hestinn
LANDIÐ: Tíu blaðsíðna sér-
blað um íslenska hestinn mun
fylgja blaði New York Times
sem gefið verður út næsta
sunnudag. Blaðinu verður
dreift um allan heim en 150
milljónir manns eru með
áskrift að miðlinum. Þessu
greinir Katrín Sigurðardóttir
frá inni á FB síðunni Hestar og
reiðmenn en býr hún á Skeið-
völlum á Suðurlandi og mun
hesturinn hennar, Stormur,
prýða forsíðu NY times. -sþ
Ók á grjót
SNÆFELLSN: Síðustu
laugardagsnótt varð erlendur
ökumaður fyrir því óhappi
að aka á stórt grjót á Útnes-
vegi skammt frá Búðum. Öku-
maðurinn var að keyra á bíl
sínum frá Búðum og áleiðis
að Hellnum þegar hann ók
niður brekku og í beygju ók
hann á grjótið sem hann sá
ekki fyrr en of seint. Bifreiðin
var mikið skemmd, þó nokkuð
að framan og einnig undir vél-
inni. Ökumaðurinn slapp með
skrekkinn en dráttarbíll frá
Ólafsvík kom síðan og fjar-
lægði bifreiðina af vettvangi.
-vaks
Ók allt of hratt
BORGARFJ: Seinni part
síðasta mánudags á Vestur-
landsvegi var erlendur ferða-
maður tekinn fyrir of hraðan
akstur á móts við Hvassafell
í Norðurárdal og mældist
hann á 144 kílómetra hraða.
Ökumaðurinn fékk sekt upp
á 150 þúsund krónur en þar
sem hann greiddi sektina á
staðnum þurfti hann „aðeins“
að borga 112 þúsund krónur.
-vaks
Evrópsk heilsuvika stendur yfir.
Skessuhorn hvetur fólk til hreyf-
ingar og almennrar útiveru
meðan veðrið er þokkalegt.
Á fimmtudag er útlit fyrir sunnan
3-8 m/s og rigningu með köflum,
en úrkomulítið um landið norð-
austan vert. Hægt vaxandi suð-
austan- og austanátt eftir hádegi,
10-18 um kvöldið með talsverðri
rigningu á Suðausturlandi. Hiti 5
til 10 stig. Á föstudag má búast
við austlægri eða breytilegri
átt, 5-13 m/sek og víða rign-
ing á köflum. Hiti breytist lítið.
Á laugardag verður suðlæg eða
breytileg átt. Skýjað og úrkomu-
lítið, en rigning um landið vest-
anvert undir kvöld. Áfram milt
veður. Á sunnudag eru líkur á
sunnanátt og rigningu vestan til,
en annars þurrt. Hiti 6 til 11 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hvað af eftirtöldu
finnst þér best á bragðið?“ Af því
sem var boðið upp á matseðl-
inum var lifrarpylsan vinsælust
en 41% völdu hana og 32%
sögðu svið. Eitthvað var minni
hrifning á innmatnum en 10%
sögðu hjörtu, 8% blóðmör, 7%
lifur og aðeins 2% nefndu nýru
sem væri best á bragðið.
Í næstu viku er spurt:
Ætlar þú á jólatónleika?
Um síðustu helgi afhentu hjól-
reiðamenn og aðstoðarfólk í
Team Rynkeby á Íslandi félagi
langveikra barna, Umhyggju,
rúmlega 35 milljónir króna.
Þessir vösku hjólreiðamenn eru
Vestlendingar vikunnar þessa
vikuna.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Drög að frumvarpi um breytingar
á umferðarlögum hafa verið
birt í samráðsgátt stjórnvalda til
umsagnar. Allir hafa tækifæri til að
senda inn umsögn eða ábendingar
til og með 6. október nk. Í frum-
varpsdrögunum eru ýmis ný ákvæði
sem hafa það markmið að auka
öryggi vegfarenda á smáfarar-
tækjum í umferðinni en nýta jafn-
framt kosti þeirra. Breytingarnar
byggja á tillögum starfshóps um
smáfarartæki sem skilaði skýrslu í
júní. Helstu tillögur frumvarpsins
sem varða smáfarartæki eru:
Mælt er fyrir um að heimilt sé að
aka smáfarartæki á vegi þegar leyfi-
legur hámarkshraði er ekki meiri
en 30 km á klst. Veghaldara sé þó
heimilt að leggja bann við umferð
þeirra á einstökum vegum eða
vegarköflum.
Börnum yngri en 13 ára er
bannað að aka smáfarartækjum og
kveðið er á um hjálmaskyldu barna
yngri en 16 ára við akstur slíkra
farartækja.
Sett er hlutlægt viðmið um ölvun
ökumanns smáfarartækis sem fela í
sér sömu mörk og eiga við akstur
vélknúinna ökutækja og jafnframt
um viðurlög við slíkum brotum.
Mælt er fyrir um að óheimilt sé
að eiga við rafmagnsreiðhjól, smá-
farartæki eða létt bifhjól í flokki I
svo að hámarkshraði þeirra verði
umfram 25 km á klst. Sama á við
um létt bifhjól í flokki II að undan-
skildu því að hámarkshraði þeirra
má vera 45 km á klst.
Slysum vegna
smáfarartækja
fjölgað mikið
Í kynningu um frumvarpið í sam-
ráðsgátt segir að umferð smáfarar-
tækja, sérstaklega rafhlaupahjóla,
hafi aukist og slysum hafi fjölgað
mikið á síðustu árum. Breytingar á
umferðarvenjum hafa leitt til þess
að 17% þeirra sem slösuðust alvar-
lega í umferðinni á síðastliðnu ári
voru á rafhlaupahjólum, en umferð
þeirra er þó innan við 1% af allri
umferð. 42% alvarlega slasaðra í
umferðinni á síðasta ári voru gang-
andi, hjólandi eða á rafhlaupahjóli
og stór hluti fyrrgreindra slysa átti
sér stað seint á föstudögum eða
laugardögum.
„Í hópi óvarinna vegfarenda sem
slösuðust alvarlega í umferðinni á
síðastliðnu ári voru ungmenni áber-
andi og komu mörg ung börn, allt
niður í átta ára gömul á neyðarmót-
töku Landsspítalans vegna slysa á
rafhlaupahjólum. Framleiðendur
mæla almennt fyrir um 14 til 16
ára aldurstakmark til notkunar raf-
hlaupahjóla sinna en ung börn má
sjá á rafhlaupahjólum ætluðum
eldri notendum. Þá er með einfaldri
breytingu hægt að aka aflmiklum
rafhlaupahjólum á mun meiri hraða
en þeim er ætlað að ná, svo að þau
eiga til dæmis enga samleið með
umferð gangandi vegfarenda,“ segir
í kynningu ráðuneytisins um boðað
frumvarp.
mm
Á fundi hreppsnefndar Skorradals-
hrepps 22. september síðastliðinn
voru m.a. til afgreiðslu fundargerðir
skipulags- og byggingarnefndar
hreppsins frá því fyrr í sumar. Í
fundargerð nefndarinnar frá 22.
ágúst var fjallað sérstaklega um
meintar óleyfisframkvæmdir Skóg-
ræktarinnar á jörðunum Stóru-
-Drageyri og Bakkakoti á svæði
þar sem aðalskipulag gerir ekki ráð
fyrir að skógrækt sé stunduð.
Hreppsnefnd lét eins og kunn-
ugt er í byrjun júní í sumar stöðva
framkvæmdir á vegum Skóg-
ræktarinnar á þessum jörðum
þar sem annars vegar var um að
ræða óleyfisframkvæmd í hlíðum
Dragafells í landi Stóru-Drageyrar
og hins vegar varðandi gróðursetn-
ingu skógarplantna í landi Bakka-
kots. Sveitarstjórn staðfesti í síð-
ustu viku ákvörðun skipulags- og
byggingarnefndar þess efnis að
fela lögmanni sínum að leggja fram
kæru til lögreglu fyrir hönd sveitar-
félagsins vegna óleyfisframkvæmda
Skógræktarinnar í landi Bakkakots
og Stóru-Drageyrar. Það er gert á
grundvelli ákvæða skipulagslaga og
náttúruverndarlaga. mm
Skorradalshreppur mun kæra Skógræktina
Horft yfir hluta jarðarinnar á Stóru-Drageyri þar sem Skógræktin sótti um að
planta trjám, en sveitarfélagið hefur hafnað þar sem verkefnið samræmist ekki
aðalskipulagi. Ljósm. mm
Nýtt frumvarp bannar yngri en
13 ára að aka rafhlaupahjólum
Tvímennt á rafhlaupahjóli sem er stranglega bannað. Ljósm. Víkurfréttir/JPK
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
LAGERSALA
Að Kalmansvöllum 1.
70% AFSLÁTTUR OG MEIRA AF ÖLLUM FATNAÐI.
ATH: Gjafakort og inneignir gilda ekki á lagersölu.
OPNUNARTÍMI
FIMMTUDAGINN 29. September kl. 13-18.
FÖSTUDAGINN 30.september kl. 13-19
LAUGARDAGINN 01.október kl. 11- 16