Skessuhorn - 28.09.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Fyrstu hausttónleikar Kalmans listafélags
Söngur farfuglanna er er yfir-
skrift fyrstu tónleika hausts-
ins hjá Kalman listafélagi sem
haldnir verða í Vinaminni á
Akranesi nk. fimmtudagskvöld
klukkan 20. Fram kemur sér-
lega efnileg ung sópransöng-
kona, Bryndís Guðjónsdóttir,
ásamt flautuleikaranum Pamela
De Sensi og Guðríði St. Sigurðar-
dóttur píanóleikara. Þar flytja þær
fágaða og spennandi efnisskrá fyrir
sópran, flautu og píanó eftir 19.
og 20. aldar tónskáld þar sem m.a.
ástríðufullir hljómar eftir Ciardi,
Donizetti, Alybyev og Rodrigo
blandast saman við róman tíska og
fágaða hljóma franskra tónskálda
og skapa skemmtilegar andstæður.
Miðaverð er kr. 3000 en kr. 2500
fyrir félaga í Kalman listafé-
lagi.
Næstu Kalman tónleikar
haustsins verða svo síðustu
fimmtudagana í október og
nóvember, þann 27. október
og 24. nóvember og hefj-
ast kl. 20. Á októbertón-
leikunum kemur fram dúóið frá-
bæra Hundur í óskilum með þeim
félögum Hjörleifi Hjartarsyni og
Eiríki Stephensen.
-fréttatilkynning
Pennagrein
Hún var sorgleg sölumessan í
Borgar nesi sem við landeigendur
og hagsmunaaðilar mættum nauð-
beygð á í liðinni viku. Erlendu stór-
fyrirtækin með íslensku húskarlana
í forsvari hafa bundist samtökum
undir heitinu Vestanáttin eða Versta
áttin. Það verður að segjast að þarna
innan um og saman við bregður
fyrir kunnuglegum andlitum úr
fjármálahruninu. Og Verstu áttina
leiðir svo loftslagssérfræðingur
ríkis stjórnarinnar, Vilhjálmur Egils-
son. Þar með ógildir hann sjálfur sitt
eigið grænbókarþvottaplagg sem
hann útbjó fyrir stjórnvöld á liðnum
vetri. Í þeim pappír var hrópað á 125
prósenta aukningu í raforkufram-
leiðslu núna eða strax í þágu lofts-
lags og náttúru.
Vilhjálmur sagðist þó aðspurður á
fundinum vera þarna fyrst og fremst
sem ellilífeyrisþegi og það er kannski
táknrænt fyrir það hverjir eru að
móta framtíðina. Þetta Verstu-áttar
samstarf fer af stað til að berja á nær-
samfélaginu, vinna í litlum sveitar-
stjórnum, selja þvælu og bæla andóf.
Mikil og öflug meirihluta andstaða
er á heimavellinum við því að breyta
löndum okkar, dölum og hlíðum í
Borgarfirði í iðnaðarsvæði og það
verður ekkert gefið eftir. Norðurá,
Kjarrá og Þverá eru meðal fegurstu
laxveiðiáa Evrópu. Á milli Þverár-
hlíðar og Norðurárdals eru víðerni
í alfaraleið, heiðavötn og ósnortið
heiðaland sem er einstakt á heims-
vísu. Friðlýst náttúruvætti eru þarna
upp og niður sveitir, fjallasýn og
hraunbreiður sem prýtt hafa borg-
firsku póstkortin áratugum saman.
Að minnsta kosti þrír blautir
draumar um vindvirkjanir og
iðnaðar svæði eru á teikniborðum
þessara lukkuriddara fyrir Norður-
árdal og Þverárhlíð. Á fundinum
í Borgarnesi var reynt að höfða til
þess að fólk yrði að færa fórnir svo
Kínverjar hætti að brenna kol og svo
Norðurál megi stækka og vaxa sem
atvinnuskapari í héraði. Norðurál
þarf náttúru og ef illa fer þá verðum
við kannski að nefna dalinn uppá
nýtt: Norðurálsdalur. Og höfum
á hreinu að Borgfirðingar eru svo
sannarlega að taka þátt í breyttum og
auknum orkuflutningi á landsvísu.
Fólkið á umræddum slóðum stendur
nú þegar í viðkvæmum samninga-
viðræðum við Landsnet um nýja
Holtavörðulínu í gegnum lönd jarð-
anna. Það eitt er nógu stórt framlag.
Þarna í sölumessunni var talað
niður til heimafólks, ýjað að því að
það gæti fengið vinnu við að sinna
vindmyllum og talað um að það
kæmu einhverjir aurar í kassa sveitar-
félagsins. Ungur hagfræðingur frá
Dílott greiningarfyrirtækinu flutti
sitt eigið keypta álit sem lukku-
riddararnir og erlendu fyrirtækin
hafa greitt fyrir og útvegað efnivið
og upplýsingar til. Sú skýrsla var
ekki pappírsins virði þar sem hún
tók ekki inn stærstu breyturnar.
Stóra breytan náttúran sjálf var ekki
til mats, gildi hennar og gersemi
fyrir framtíðina og fólkið sem er
ekki fætt ennþá og líka fyrir fólkið
sem lifir á staðnum í náttúrunni og
núinu. Ekkert um það hjá Dílott.
Og þá er nú hin breytan risastór.
Það er fólkið og fyrirtækin á svæð-
Sorgleg sölumessa úr verstu átt inu, upp og niður dalinn. Fólk sem
á og rekur sín eigin stórfyrirtæki,
landverndar og skógræktarfyrirtæki
til að búa í haginn fyrir framtíðar
náttúru- og menningartengda ferða-
þjónustu, hótel- og veitingarekstur,
verðlaunabýli sem hafa verið rekin
mann fram af manni, háskóli sem
státar af því að vera á náttúruminja-
skrá og gerir út á að vera skólasam-
félag í náttúruparadís. Þá eru þarna
um allar sveitir landsvæði sem verið
er að þróa fyrir sumarhúsabyggðir,
margvíslega lífræna ræktun og hvað-
eina. Fólkið í dalnum og undir hlíð-
inni og um allt hérað á sín fyrirtæki
og er með sín eigin áform sem eru
ekki ómerkilegri en áform Helga
Hjörvars á Hafþórsstöðum og Ólafs
Ólafssonar á óðali feðra sinna í
Hvammi. Og þau eru ekki ómerki-
legri en gráðugu stórfyrirtækin frá
Noregi sem þurfa að sækja á önnur
mið þar sem það er orðið svo heitt
undir þeim í heimalandinu. Þá eru
þessi fyrirtæki í heimabyggð ekki
ómerkilegri en draumar, vonir og
þrár Tryggva Þórs Herbertssonar,
Friðjóns Þórðarsonar, Ketils Sigur-
jónssonar og allra þeirra sem merkja
nú þúfur og vilja breyta sveitum
annars fólks í iðnaðar svæði án til-
lits til þeirra áforma sem heimafólk
hefur.
Já, heimafólk er lykilorðið. Ég
spyr mig líka hvernig mönnum
líður sem ætla að kljúfa samfélög og
halda sínu striki þrátt fyrir andóf og
reiði heimafólks og hvort að þeim
sé sama? Þeir fengu enda þá spurn-
ingu í Borgarnesi og kusu að svara
henni ekki. Það er deginum ljósara
að stjórnmálaflokkar þurfa að halda
krísufundi á landsvísu um þessi mál
og senda svo skýr skilaboð heim í
héröðin svo sveitarstjórnarfulltrúar
standi vörð um hagsmuni íbúa en
ekki stórfyrirtækja úti í heimi. Ein-
hver sagði í þessu ferli: Mundu
samt að þetta er ekkert persónu-
legt. Það sat í mér. Því í raun er
þetta mjög persónulegt. Það verður
varla persónulegra. Þarna eru erlend
stórfyrirtæki og húskarlar þeirra
með mikið fjármagn á bak við sig
að ásælast það sem okkur er kærast;
náttúru og land. Þeir víla ekki fyrir
sér að grafa undan tilvist fólksins í
sveitinni, nágranna, vina og fjöl-
skyldna og fyrirtækja í heimabyggð.
Og auðvitað tökum við til varna
fyrir allt það sem okkur er kærast.
Það verður ekki persónulegra.
Kristín Helga Gunnarsdóttir