Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2022, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 28.09.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 202220 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna GJ málun ehf málningarþjónusta Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Fyrstu hausttónleikar Kalmans listafélags Söngur farfuglanna er er yfir- skrift fyrstu tónleika hausts- ins hjá Kalman listafélagi sem haldnir verða í Vinaminni á Akranesi nk. fimmtudagskvöld klukkan 20. Fram kemur sér- lega efnileg ung sópransöng- kona, Bryndís Guðjónsdóttir, ásamt flautuleikaranum Pamela De Sensi og Guðríði St. Sigurðar- dóttur píanóleikara. Þar flytja þær fágaða og spennandi efnisskrá fyrir sópran, flautu og píanó eftir 19. og 20. aldar tónskáld þar sem m.a. ástríðufullir hljómar eftir Ciardi, Donizetti, Alybyev og Rodrigo blandast saman við róman tíska og fágaða hljóma franskra tónskálda og skapa skemmtilegar andstæður. Miðaverð er kr. 3000 en kr. 2500 fyrir félaga í Kalman listafé- lagi. Næstu Kalman tónleikar haustsins verða svo síðustu fimmtudagana í október og nóvember, þann 27. október og 24. nóvember og hefj- ast kl. 20. Á októbertón- leikunum kemur fram dúóið frá- bæra Hundur í óskilum með þeim félögum Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen. -fréttatilkynning Pennagrein Hún var sorgleg sölumessan í Borgar nesi sem við landeigendur og hagsmunaaðilar mættum nauð- beygð á í liðinni viku. Erlendu stór- fyrirtækin með íslensku húskarlana í forsvari hafa bundist samtökum undir heitinu Vestanáttin eða Versta áttin. Það verður að segjast að þarna innan um og saman við bregður fyrir kunnuglegum andlitum úr fjármálahruninu. Og Verstu áttina leiðir svo loftslagssérfræðingur ríkis stjórnarinnar, Vilhjálmur Egils- son. Þar með ógildir hann sjálfur sitt eigið grænbókarþvottaplagg sem hann útbjó fyrir stjórnvöld á liðnum vetri. Í þeim pappír var hrópað á 125 prósenta aukningu í raforkufram- leiðslu núna eða strax í þágu lofts- lags og náttúru. Vilhjálmur sagðist þó aðspurður á fundinum vera þarna fyrst og fremst sem ellilífeyrisþegi og það er kannski táknrænt fyrir það hverjir eru að móta framtíðina. Þetta Verstu-áttar samstarf fer af stað til að berja á nær- samfélaginu, vinna í litlum sveitar- stjórnum, selja þvælu og bæla andóf. Mikil og öflug meirihluta andstaða er á heimavellinum við því að breyta löndum okkar, dölum og hlíðum í Borgarfirði í iðnaðarsvæði og það verður ekkert gefið eftir. Norðurá, Kjarrá og Þverá eru meðal fegurstu laxveiðiáa Evrópu. Á milli Þverár- hlíðar og Norðurárdals eru víðerni í alfaraleið, heiðavötn og ósnortið heiðaland sem er einstakt á heims- vísu. Friðlýst náttúruvætti eru þarna upp og niður sveitir, fjallasýn og hraunbreiður sem prýtt hafa borg- firsku póstkortin áratugum saman. Að minnsta kosti þrír blautir draumar um vindvirkjanir og iðnaðar svæði eru á teikniborðum þessara lukkuriddara fyrir Norður- árdal og Þverárhlíð. Á fundinum í Borgarnesi var reynt að höfða til þess að fólk yrði að færa fórnir svo Kínverjar hætti að brenna kol og svo Norðurál megi stækka og vaxa sem atvinnuskapari í héraði. Norðurál þarf náttúru og ef illa fer þá verðum við kannski að nefna dalinn uppá nýtt: Norðurálsdalur. Og höfum á hreinu að Borgfirðingar eru svo sannarlega að taka þátt í breyttum og auknum orkuflutningi á landsvísu. Fólkið á umræddum slóðum stendur nú þegar í viðkvæmum samninga- viðræðum við Landsnet um nýja Holtavörðulínu í gegnum lönd jarð- anna. Það eitt er nógu stórt framlag. Þarna í sölumessunni var talað niður til heimafólks, ýjað að því að það gæti fengið vinnu við að sinna vindmyllum og talað um að það kæmu einhverjir aurar í kassa sveitar- félagsins. Ungur hagfræðingur frá Dílott greiningarfyrirtækinu flutti sitt eigið keypta álit sem lukku- riddararnir og erlendu fyrirtækin hafa greitt fyrir og útvegað efnivið og upplýsingar til. Sú skýrsla var ekki pappírsins virði þar sem hún tók ekki inn stærstu breyturnar. Stóra breytan náttúran sjálf var ekki til mats, gildi hennar og gersemi fyrir framtíðina og fólkið sem er ekki fætt ennþá og líka fyrir fólkið sem lifir á staðnum í náttúrunni og núinu. Ekkert um það hjá Dílott. Og þá er nú hin breytan risastór. Það er fólkið og fyrirtækin á svæð- Sorgleg sölumessa úr verstu átt inu, upp og niður dalinn. Fólk sem á og rekur sín eigin stórfyrirtæki, landverndar og skógræktarfyrirtæki til að búa í haginn fyrir framtíðar náttúru- og menningartengda ferða- þjónustu, hótel- og veitingarekstur, verðlaunabýli sem hafa verið rekin mann fram af manni, háskóli sem státar af því að vera á náttúruminja- skrá og gerir út á að vera skólasam- félag í náttúruparadís. Þá eru þarna um allar sveitir landsvæði sem verið er að þróa fyrir sumarhúsabyggðir, margvíslega lífræna ræktun og hvað- eina. Fólkið í dalnum og undir hlíð- inni og um allt hérað á sín fyrirtæki og er með sín eigin áform sem eru ekki ómerkilegri en áform Helga Hjörvars á Hafþórsstöðum og Ólafs Ólafssonar á óðali feðra sinna í Hvammi. Og þau eru ekki ómerki- legri en gráðugu stórfyrirtækin frá Noregi sem þurfa að sækja á önnur mið þar sem það er orðið svo heitt undir þeim í heimalandinu. Þá eru þessi fyrirtæki í heimabyggð ekki ómerkilegri en draumar, vonir og þrár Tryggva Þórs Herbertssonar, Friðjóns Þórðarsonar, Ketils Sigur- jónssonar og allra þeirra sem merkja nú þúfur og vilja breyta sveitum annars fólks í iðnaðar svæði án til- lits til þeirra áforma sem heimafólk hefur. Já, heimafólk er lykilorðið. Ég spyr mig líka hvernig mönnum líður sem ætla að kljúfa samfélög og halda sínu striki þrátt fyrir andóf og reiði heimafólks og hvort að þeim sé sama? Þeir fengu enda þá spurn- ingu í Borgarnesi og kusu að svara henni ekki. Það er deginum ljósara að stjórnmálaflokkar þurfa að halda krísufundi á landsvísu um þessi mál og senda svo skýr skilaboð heim í héröðin svo sveitarstjórnarfulltrúar standi vörð um hagsmuni íbúa en ekki stórfyrirtækja úti í heimi. Ein- hver sagði í þessu ferli: Mundu samt að þetta er ekkert persónu- legt. Það sat í mér. Því í raun er þetta mjög persónulegt. Það verður varla persónulegra. Þarna eru erlend stórfyrirtæki og húskarlar þeirra með mikið fjármagn á bak við sig að ásælast það sem okkur er kærast; náttúru og land. Þeir víla ekki fyrir sér að grafa undan tilvist fólksins í sveitinni, nágranna, vina og fjöl- skyldna og fyrirtækja í heimabyggð. Og auðvitað tökum við til varna fyrir allt það sem okkur er kærast. Það verður ekki persónulegra. Kristín Helga Gunnarsdóttir

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.