Skessuhorn - 28.09.2022, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20226
Rýmka reglur
vegna líflamba-
flutnings
LANDIÐ: Samkvæmt ósk
Matvælastofnunar hefur
Svandís Svavarsdóttir mat-
vælaráðherra samþykkt
breytingu á reglugerð til að
flytja megi á milli landsvæða
lömb sem hafa verndandi eða
mögulega verndandi arfgerð
gegn riðu. Samkvæmt fyrri
ákvæðum reglugerðarinnar
var flutningur lamba óheim-
ill inn á svæði þar sem greinst
hafði riða. Til að vinna megi
gegn sjúkdómnum telur Mat-
vælastofnun mikilvægt að
hægt sé að flytja lömb á fæti
frá einu riðusvæði til annars
að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum. Skilyrði er meðal
annars sett um að sóttvarnar-
svæðið sem lömbin koma
frá sé minna sýkt af riðu en
svæðið sem þau eru flutt á, eða
að útbreiðsla riðu á svæðunum
sé sambærileg. Þar sem ætla
má að eftirspurn eftir þessum
lömbum sé meiri en framboð
hefur Matvælastofnun skil-
greint hvaða svæði og bæir
skuli njóta forgangs við kaup
á lömbum með verndandi arf-
gerð gegn riðu. -mm
Markaður fyrir
greiðslumark
LANDIÐ: Í byrjun nóv-
ember verður markaður
fyrir greiðslumark í sauðfé.
„Umsóknum um kaup og
sölu greiðslumarks skal skila
rafrænt á afurd.is. Opnað
hefur verið fyrir umsóknir.
Umsóknarfrestur rennur
út á miðnætti 1. nóvember.
Nánari upplýsingar um mark-
aðinn s.s. um forgang við
úthlutun má finna á afurd.is,“
segir í tilkynningu frá mat-
vælaráðuneytinu. Markaður
fyrir greiðslumark mjólkur
verður sömuleiðis haldinn
1. nóvember næstkomandi.
„Að hámarki er hægt að óska
eftir 50.000 lítrum til kaups
á hverjum markaði, eða alls
150.000 lítrum árlega. Til-
boðum um kaup og sölu
greiðslumarks skal skila raf-
rænt á afurd.is. Opnað hefur
verið fyrir tilboð. Tilboðs-
frestur rennur út á miðnætti
10. október nk.“ -mm
Fræðsludagskrá
hafin
DALIR: Í vetur verður
boðið upp á fræðsludag-
skrá í Nýsköpunarsetri Dala-
byggðar en markmiðið er
að fá reglulega inn erindi og
kynningar og halda utan um
kaffispjall sem íbúar geta sótt
vegna ákveðinna umræðuefna.
Þriðjudaginn 20. september
fór fram fyrsta kaffispjallið og
sneri það að Frumkvæðissjóði
DalaAuðar þar sem íbúar gátu
mætt og rætt við Lindu Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóra,
og aðra íbúa um hugmyndir
að mögulegum verkefnum. Í
tilkynningu á vef Dalabyggðar
segir að kaffispjallið hafi verið
bæði upplífgandi og fróðlegt.
-gbþ
Óháð nefnd
yfirfari reikni-
líkan Hafró
LANDIÐ: Smábátafélagið
Elding starfar á norðan-
verðum Vestfjörðum. Á
aðafundi félagsins nýverið
var samþykkt ályktun þar
sem þess er krafist að öll
reiknilíkön sem Hafrann-
sóknastofnun notar til
ákvörðunar um ráðleggingu
um heildarafla, verði rann-
sökuð af óháðri nefnd sem
í muni sitja fiskifræðingar
sem ekki starfa hjá Hafró
og síðan sjómenn sem
stunda alls konar fiskveiðar
við Íslandstrendur. Frétta-
vefurinn bb.is greindi frá,
en í ályktun Eldingar segir
einnig: „Ljóst má vera að
það er himinn og haf á milli
upplifunar sjómanna til
dæmis á stöðu þorskstofnins
og það sem Hafró leggur til
að megi veiða.“ -mm
Rafmagn truflanir
á nokkrum
stöðum
VESTURLAND: Sam-
hliða vestan hvassviðri sem
gekk yfir vestanvert landið
á laugardagskvöldið og fram
á sunnudag urðu bilanir á
nokkrum stöðum í flutnings-
kerfi rafmagns í landshlut-
anum. Á laugardagskvöldið
varð straumlaust frá klukkan
20 á línunni frá Mýrum að
Hítardal. Viðgerð lauk um
klukkan 4 um nóttina. Þá fór
rafmagn af línunni frá Vatns-
hömrum í Andakíl að Sel-
eyri klukkan 8 á sunnudags-
morgninum. Rafmagnsbilun
varð á Skógarströnd í Dölum
þegar staur við Dunká brotn-
aði, einnig klukkan 8 að
morgni sunnudags. Loks
varð að taka rafmagn af hluta
Skorradals um tíma á sunnu-
daginn vegna bilunar í landi
Indriðastaða. -mm
Um 200 manns tóku þátt í flug-
slysaæfingu Almannavarna og
Isavia á Ísafjarðarflugvelli síðast-
liðinn laugardag. Þar voru æfð við-
brögð við flugslysi á eða við flug-
völlinn. Að þessu sinni byggði
æfingin á því að flugvél með 29 far-
þega og áhöfn um borð hefði farist.
Viðbragðsaðilar Ísafjarðarbæjar
og nærliggjandi byggðarlögum
tóku þátt í æfingunni. Aðgerðar-
stjórn var virkjuð á Ísafirði sem og
Samhæfingarstöð almannavarna í
Skógarhlíð í Reykjavík.
Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri
neyðarviðbúnaðar hjá Isavia, segir
að æfingin hafi gengið afar vel.
„Almannavarnir og Isavia stóðu sem
fyrr í sameiningu að æfingunni í
samstarfi við viðbragðsaðila á svæð-
inu,“ segir Elva. „Æfing af þessu tagi
er haldin til þess að starfsfólk flug-
valla sem og björgunarsveitir, heil-
brigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvi-
lið, Landhelgisgæslan, Rauði kross-
inn og fleiri sem að þessum málum
koma séu viðbúnir ef slys verður.
Dagana fyrir æfingu var boðið upp á
fræðslu í ýmsu sem tengist störfum
viðbragðsaðila. Þeir viðburðir voru
mjög vel sóttir. Liðsheildin í dag
var afar skilvirk og samtaka. Allt
eflir þetta samvinnuna í hvers konar
hópslysum sem geta orðið á svæð-
inu.“
Næstu flugslysaæfingar Almanna-
varna og Isavia verða haldnar á
Reykjavíkurflugvelli 1. október
næstkomandi og síðan á Akureyrar-
flugvelli 15. október.
mm/ Ljósm. Landsbjörg/Ólafur
Jón.
Eins og greint var frá í síðasta
tölublaði óskaði sameinað sveitar-
félag Helgafellssveitar og Stykkis-
hólmsbæjar í byrjun júlí eftir því
við Örnefnanefnd að hún tæki
til umsagnar tillögur að nafni á
hið sameinaða sveitarfélag. Aug-
lýst var eftir tillögum að nafni og
rann út frestur til að skila inn til-
lögum 1. júní. Alls bárust 72 til-
lögur að nafni. Sveitarstjórn fór
yfir tillögurnar og ákvað að óska
eftir umsögn örnefnanefndar. Af
þeim nöfnum sem örnefnanefnd
fékk til umsagnar telur hún nöfnin
Þórsnesþing, Stykkishólmsbær og
Sveitarfélagið Stykkishólmur falla
best að nafngiftahefð í landinu.
Nefndin er einnig meðmælt því
að kenna nýsameinað sveitar félag
við Helgafell en telur ekki fara
vel á því að nota eftirliðinn -sveit.
Nefndin leggst hins vegar gegn
nöfnunum Stykkishólmsbær og
Helgafellssveit, Stykkishólmur og
Helgafellssveit, Breiðafjarðarbær
og Breiðafjarðarbyggð.
Á fundi bæjarráðs Stykkis-
hólmsbæjar og Helgafellssveitar
15. september sl. var samþykkt
að boða til íbúafundar vegna
nafns á nýja sveitarfélagið. Á
honum verður kynnt greinargerð
Örnefnanefndar og boðið til sam-
tals um niðurstöðu nefndarinnar
og fyrirliggjandi tillögur. mm
Þórsnesþing, Stykkishólmsbær
eða Sveitarfélagið Stykkishólmur
Fjölmenn flugslysaæfing
var haldin á Ísafirði
Í haustblíðunni í Stykkishólmi í síðustu viku. Ljósm. gj