Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Qupperneq 8
Ljóst er að viðamiklar rannsóknir þarf til þess að fá svör við
öllum þessum spurningum. Slíkar rannsóknir höfðu til skamms tíma
ekki verið gerðar hérlendis en líkur bentu til að umfang vanda-
málsins væri vanmetið (1,11,12).
Fyrir frumkvæði bráðanefndar Borgarspítalans og að tilstuðlan
starfshóps um slysavarnir, sem landlæknir veitti forstöðu og
stofnað var til á vegum ALFA-nefndar 1981 í tilefni Alþjóðaárs
fatlaðra, hóf undirritaður rannsókn á umferðarslysum ársins 1975
meðal annars í þeim tilgangi að kanna afleiðingar slysanna. Sér-
staka áherslu skyldi leggja á að kanna afleiðingar þeirra slysa
sem kröfðust innlagnar á sjúkrahús.
Þess var vænst að niðurstöður ransóknarinnar svöruðu hluta ofan-
greindra spurninga, auk þess að gefa vísbendingu um áreiðanleika
opinberra skýrslna um umferðarslys, álag á sjúkrahús vegna
umferðarslysa , og hvar ætla mætti að fyrirbyggjandi aðgerðir kæmu
að bestum notum.
Ætlunin var að kanna í stórum dráttum hei1brigðisvandamá1in af
völdum umferðarslysa, frá faraldsfræðilegu sjónarmiði.
Rannsókninni var einnig ætlað að vera eins konar forkönnun á
mælitæki (þ.e. eyðublaði) Slysadeildar Borgarspítalans og auðvelda
með því frekari rannsóknir úr gögnum dei1darinnar. Auk þess var
hugsanlegt að í ljós kæmu gallar í mælitækinu, sem mætti lagfæra
og kostir, sem aðrar slysamóttökur á landinu gætu notfært sér
í framtíðinni.
Þakkir eru færðar Bókasafni, Bráðanefnd, riturum, Tölvudeild,
Vísindasjóði og yfirlæknum Borgarspítalans, Starfshópi um slysa-
varnir, sem stofnaður var í tilefni Alþjóðaárs fatlaðra 1981,
Landlækni, riturum, Rannsóknarstof u Fláskólans við Barónsstíg,
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, Hagstofu íslands, Tryggingastofnun
ríkisins, Rauða Krossi íslands, Lögreglunni í Reykjavík, Umferðar-
ráði, Umferðarlæknisfræðifélagi íslands og OÓnasi Ragnarssyni
ritstjóra, sem las handrit, kom með ábendingar og undirbjó útgáfu
áfangaskýrsunnar.
6