Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Blaðsíða 9
CAGNASÖFN
Að minnsta kosti fimm uppsprettur gagna til faraldsfræðilegra
rannsókna á umferðarslysum finnast hérlendis. Lögregluyfirvöld
hafa skýrslur sem fjalla um slysin sjálf, aðallega með tilliti
til þess hvort um saknæmt atferli hafi verið að ræða. Trygginga-
Celögin hafa aðallega skýrslur um bætur vegna fjárhagslegs tjóns,
^jukrahúsin um meiðsli og læ’kningaviðleitni, sjúkrasamlögin um
x®kningakostnað og Tryggingastofnun ríklsins um örorkumat og
9reiðslur. Umferðarráð gerir mánaðarlega yfirlit um þau umferðar-
slys sem lögregluyfirvöld landsins tilkynna og reynir að meta
meiðsli "mikil" eða "lítil", eftir atvikum af þ eim gögnum sem
^aðið hefur aðgang að. Eins og áður sagði hafa hin mörgu trygg-
ingafélög gögn um bætur vegna meiðsla og eignatjóns í umferðar-
ohöppum. Þessi gögn eru þó ekki í aðgengilegu formi. Trygginga-
eftirlitið, sem birtir árlega yfirlit yfir afkomu hinna ýmsu
vatryggingagreina, flokkar ekki meiðsli og eignatjón vegna
umferðaróhappa sérstaklega, en þau geta verið bætt úr ábyrgðar-
tryggingum og líftryggingum.
hessar uppsprettur eru takmarkaðar, meðal annars vegna van-
skraningaar eðli málsins samkvæmt. Sé enginn í sök eða full ljóst
er hver á sök er lögregla oft ekki sótt eða skýrsla ekki skrifuð
t-d. þegar reiðhjólaóhöpp verða. Auk þess eru hjóireiðamenn venju-
tega ótryggðir. Efniviður tryggingafélaganna reyndist ekki
ððgengilegur fyrir þessa rannsókn en gögn Umferðarráðs og lög-
re9lu reyndust gagnleg.
m árabil hefur farið fram ýtarleg gagnasöfnun á Slysadeild
,°rgarspítalans. Síðastliðin tólf ár hefur skráningin þar verið
, tölvutæku formi m.a. vegna framsýni Hauks Kristjánssonar,
paverandi yfirlæknis deildarinnar. Á venjulegu þjónustusvæði
ennar er hún eina opna slysamóttakan. Nokkrar heilsugæslustöðvar
°9 sjúkrahús önnur en Borgarspítalinn eru á þessu svæði. Því má
reikna með að ef til vill hafi einhverjir íbuar þjónustusvæðisins
yerið meðhöndlaðir á sjúkrastofnunum án milligöngu Slysadeildar-
rnnar og einnig má reikna með að íbúar rannsóknarsvæðisins hafi í
ernhverjum mæii slasast utan þjónustusvæðis Slysadeildarinnar og
Pyi e.t.v. hlotið meðferð í öðrum byggðarlögum. Allar tölur verða
Þvi að skoðast sem lágmarkstölur (minimum material) hvað varðar
Umferðarslys á þessu svæði.
7