Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Síða 12
HELSTU NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNARINNAR
Rannsóknin nær til 1882 íslendinga sem slösuðust í umferðarslysurr
þar af áttu 1645 lögheimili á höfuðborgarsvæðinu þannig að tíðni
umferðarsJysa þar árið 1975 svarar til 1409 á 100.000 íbúa á ári,
sem er hærra hlutfall en í hliðstæðum sjúkrahúsarannsók.num á
Norðurlöndunum (15,16).
Hynd 2 sýnir árstíðasveif1u umferðarslysanna en hámarki náðu þau í
september.
Hynd 3 sýnir árstíðasveiflu umferðarslysa bæði varinna vegfarenda
(ökumanna og farþega í bifreiðum) og óvarinna vegfarenda.
Hynd 4 sýnir mismunandi árstíðasveiflu umferðarslysa meðal ólíkra
vegfarenda. Hámark slysa var í september, sérstaklega vegna
meiðsla á vörðum vegfarendum að haustinu. Hámark reiðhjólaslysa
var snemma sumars, en slys á gangandi vegfarendum og vegfarendum á
vélhjólum seinni hluta vetrar og að hausti.
lafla II sýnir að ölvun var skráð orsök í 5,5% tilfella og algeng-
ust við slys á gangandi vegfarendum eða 10,2%, hjá vörðum vegfar-
endum 5,9% en fátíðari við slys á vélhjólum 2,9% og á reiðhjólum
0,6%. Þetta er í samræmi við eldri ályktanir (17) um að áfengis-
neysla væri fátíð herlendis sem ein af orsökum umferðarslysa.
Tafla III sýnir að ölvun var skráð hjá 16 eða 7,5% þeirra sem
þörfnuðust bráðrar innlagnar á sjúkrahús, en hjá 86 eða 5,2%
þeirra sem ekki þröfnuðust bráðrar innlagnar á sjúkrahús.
Tafla IV sýnir fjölda slasaðra eftir eðli umferðarslysa. Hikill
meirihluti slasaðist í árekstrum, alls 1243. Þar af um það bil
helmingur vegna árekstra milli ólíkra vegfarenda. Alls slösuðust
639 án þess að um árekstur væri að ræða, það er í einföldum
umferðarslysum (single accidents).
Slasaðir
Alls slösuðust 1882 (1135 karlar, 747 konur), 3 (2 karlar, 1 kona)
voru látnir við komu, 6 (5 karlar, 1 kona) létust 1-11 dögum frá
slysinu. Af þeim sem lifðu þörfnuðust 214 (141 karl, 73 konur)
bráðrar innlagnar á sjúkrahús þar af 36 á Gjörgæsludeild (24
karlar, 12 konur), en 1659 (987 karlar, 672 konur) þurftu ekki
bráðainnlögn, en af þeim voru þó 74 (29 karlar, 45 konur) lagðir
inn á endurhæfingardeild, til rannsókna og meðferðar, aðrir voru
meðhöndlaðir án innlagnar.
Hynd 5 sýnir aldursdreifingu þeirra sem slösuðust. Hámark er í
aldurshópnum 15-19 ára. Af öllum sem slösuðust voru 53% yngri en
20 ára. Sá yngsti var á fyrsta ári en sá elsti á níræðisaldri.
Hynd 6 sýnir að hámark er í sama aldurshópi þegar fjöldinn í
hverjum aldurshópi slasaðra á höfuðborgarsvæðinu er borinn saman
við íbúafjölda í viðeigandi aldurshópi á sama svæði.
10
I