Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Page 14
Mynd 16 sýnir aldursdreifingu og kyn þeirra farþega í bifreiðum
sem slösuðust (197 karlar, 267 konur). Konur eru í meirihluta í
öllum aldurshópum þessa vegfarendahóps, nema í aldurshópnum 15-19
ára .
Mynd 17 sýnir aldursdreifingu og kyn þeirra sem slösuðust á vél-
hjólum (125 karlar, 14 konur). Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem
slösuðust í þessum vegfarendahópi eru karlar í aldurshópnum 15-19
ára.
Mynd 18 sýnir nánari samanburð á aldursdreifingu ökumanna bifreiða
annars vegar og ökumanna vélhjóla hins vegar. Hámarksfjöldi
meiðsla á ökumönnum vélhjóla er við 15 ára aldur en við 18 ára
aldur hjá ökumönnum bifreiða.
Mynd 19 sýnir a1dursdreifingu og kyn þeirra sem slösuðust á reið-
hjólum (234 karlar, 111 konur). Karlar eru í meirihluta. Flestir
eru í aldurshópnum 5-9 ára.
Mynd 20 sýnir aldursdreifingu og kyn þeirra gangandi vegfarenda
sem slösuðust í umferðinni (212 karlar, 141 kona). Karlar eru í
meirihluta og flestir eru í aldurshópnum 5-9 ára.
Mynd 21 sýnir að felstir koma úr Reykjavík en færri úr nágranna-
byggðunum, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Seltjarnarnesi og Mos-
fellshrepp.
Á mynd 22 sést að álíka margir komu frá þessum stöðum öllum miðað
við íbúafjölda hvers staðar. Af myndinni sést að rúmlega 14 af
hverjum 1000 íbúum á höfuðborgarsvæðinu komu þetta ár á Slysa-
deildina vegna meiðsla úr umferðarslysum.
Meiðslin
Tafla VII sýnir fjölda sjúkdómsgreininga í helstu áverkaflokkum
meðal varinna og óvarinna vegfarenda. Tognanir eru algengari meðal
varinna en beinbrot algengari meðal óvarinna vegfarenda. Fimmti
hver sjúklingur hafði fleiri en eina sjúkdómsgreiningu.
Tafla VIII sýnir aðaláverka (innlagnar- eða dánarorsök) þeirra sem
lögðust inn á sjúkrahús eða létust eftir umferðarslys. Alls höfðu
59 árverka á höfuðkúpu eða heila, 13 brot á and1itsbeinum, 73
beinbrot af ýmsu tagi eða aðra áverka sem heyra undir bæklunar-
lækningar, 19 höfðu áverka á brjóstkassa eða brjóstholslíffæri, 16
árverka á kvið eða kviðarholslíf færi, 13 sár á húð, 7 voru með
mar, 20 höfðu fjöláverka (þ.e. minnst 2 innlagnarástæður og auk
þess inn1agnarástæðu á gjörgæslu, eða áverka sem valda bráðum
dauða, sjá viðauka).
Mynd 23 sýnir aldursdreifingu þeirra 214 sem þörfnuðust bráðrar
innlagnar á sjúkrahús svo og aldursdreifingu þeirra 1659 sem með-
höndlaðir voru án slíkrar innlagnar. Þrír voru látnir við komu á
Slysadeildina, og 6 létust á fyrstu 11 dögum frá slysinu. Heildar-
tíðni innlagna þeirra sem slösuðust var 11,4%. Stærsti hluti
yngra fólksins þarfnaðist ekki innlagnar á sjúkrahús. Heildar
dánartíðni þeirra sem slösuðust í umferðarslysum og komið var með
á Slysadeildina var 0,5%.
12
i