Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Page 20
Á töflu XIX sést að af þeim 223 sem létust eða þörfnuðust bráðrar
innlagnar á sjúkrahús eftir umferðarslys samkvæmt sjúkraskrám
Slysadeildar, fundust 160 á skrá Umferðarráðs. Allir sem létust
fundust á skrá Umferðarráðs en hins vegar aðeins 71% þeirra sem
þörfnuðust bráðrar innlagnar á sjúkrahús þar af voru 7% ranglega
skráðir með lítil meiðsli.
Á töflu XX sést að af þeim 223 sem létust eóa þörfnuðust bráðrar
innlagnar á sjukrahús eftir umferðarslys, vantaði á skrá Umferðar-
ráðs 26% þeirra sem slösuðust svona alvarlega og voru varðir í
umferðinni, 22% þeirra sem slösuðust svona alvarlega á vélhjólum,
70% þeirra sem slösuðust svona alvarlega á reiðhjólum og 16%
þeirra sem slösuðust svona alvarlega gangandi í umferðinni, miðað
við sjúkraskrár Slysadeildar Borgarspítalans.
Tafla XXI sýnir að sem næst helmingur þeirra 1.882 sem rannsóknin
nær til komu með s júkrabif reið eða lögreglu á Slysadeildina eða
936.
Af þeim 223 sem létust eða þörfnuðust bráðrar innlagnar á sjúkra-
hús voru 190 eða 85% fluttir með sjúkrabifreið til Slysadeildar-
innar þar af annaðist Reykjavíkurdeild Rauða Krossins flutning 13A
eða 71% þessara sjúkraflutninga.
Við könnun á dagbókum sjúkraflutningamanna Reykjavíkurdeildar
Rauða Krossins kom í ljós að tildrög, tími og komuleið voru í
öllum tilvikum í samræmi við upplýsingar í sjúkraskrám Slysa-
dei1da r.
Lögreglunni í Reykjavík var kunnugt um að 6A9 væru fluttir á
Slysadeild, þó var þeim aðeins kunnugt um að 362 þeirra hefðu
slasast, þar af 194 "lítið" og 168 "mikið" í umdæmi þeirra (sjá
viðauka) .
Niðurstöður þessa hluta rannsóknarinnar benda því til að van-
skráning opinberra aðila á umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu
árið 1975 sé um eða yfir 71%. Ef þau reiðhjólaslys þar sem ekki
var um árekstur að ræða eru undanskilin, nemur vanskráningin um
eða yfir 65%.
18
l