Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1985, Page 28
VIDAUKI A: SKILGREININGAR (DEFINITIONS)
FARALDSFRÆÐI (EPIDEMIOLOGY). UMFERÐARLÆKNISFRÆÐI (TRAFFIC MEDICINE).
Höfuðborgarsvaeðið, (The Reykjavík area): Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes,
Hafnarfjörður og syðri hluti Kjósarsýslu (þ.e. Garðahr., Bessastaðahr. og
Mosfellshr.).
Mannfjöldi, (Population): Meðal mannfjöldj 1975, mannfjöldi (31. des. 1974 +
31. des. 1975)/2 eftir heimili, kyni og aldri.
UMFERÐ (TRAFFIC)
1. Umferðarslys, (Road traffic accident): Þegar að minnsta kosti eitt ökutæki
á hreyfingu á eða útaf vegi á aðild að óhappi þar sem einn eða fleiri menn
slasast eða láta lífið. Slys þar sem aðeins gangandi vegfarendur eiga hlut
að telst ekki umferðarslys þó það gerist á vegi.
Einfalt umferðarslys, (Single accident): Þegar aðeins eitt ökutæki á aðild
að umferðarslysi og það án áreksturs við annað ökutæki eða gangandi
vegfaranda.
Umferðarslys vegna áreksturs, (Accident by collision): Þegar ökutæki og
gangandi vegfarandi rekast saman eða tvö eða fleiri ökutæki rekast saman og
eiga með því móti aðild að umferðarslysi.
2. Ökutjeki, (Vehicle): Tæki á hjólum eða beltum, ætlað til aksturs á vegi,
einnig dráttar- og vinnuvélar þegar ökumenn þeirra teljast vegfarendur.
Ekki teljast til ökutækja þau tæki sem fylgja spori eða eru ætluð til
leikja eingöngu, t.d. þríhjól ætluð börnum.
Bifreið, (Motor car): Velknúið ökutæki sem ætlað er til aksturs á vegi, þó
ekki vélhjól, beltabifhjól (snjósleðar), dráttar- eða vinnuvélar,
Hjól, (Cycle): Eftirtalin hjól teljast ökutæki: Reiðhjól (Cycle), vélhjól
(Motorcycle) þ.e. létt bifhjól (Moped) og þung bifhjól (Heavy motorcycle)
og einnig beltabifhjól, þegar ökumenn þeirra teljast vegfarendur.
3. Vegur, (Road): Hvers konar gata eða svæði, sem notað er til almennrar um-
ferðar þar með talið bifreiðastæði, gangstéttir, einkavegir, sumar- og
vetrarvegir, en ekki sérstakar lokaðar lóðir, kappakstursbrautir eða
torfærubrautir.
4. Vegfarandi, (Road user): Maður á vegi eða í eða á ökutæki á vegi.
Varinn vegfarandi, (Protected road user): Ökumaður eða farþegi í bifreið
eða öðru vélknúnu ökutæki með húsi.
Óvarinn vegfarandi, (Unprotected road user): Vegfarandi á vélhjóli, reið-
hjóli eða gangandi vegfarandi.
Ökumaður, (Driver): Maður sem ekur ökutæki.
Farþegi, (Passenger): Maður, annar en ökumaður, sem er í eða á ökutæki.
Gangandi vegfarandi, (Pedestrian): Vegfarandi, sem ekki er ökumaður eða
farþegi ökutækis. Hann telst gangandi vegfarandi þó hann sé ekki á gangi
í beinum skilningi, þannig telst t.d. barn á þríhjóli, eða í barnavagni
vera gangandi vegfarandi. Gangandi vegfarandi getur ekki átt aðild að
einföldu umferðarslysi.
ALVARA MEIÐSLA (SERIOUSNESS OF INOURY)
Dauðaslys, (Fatal accident): Umferðarslys telst dauðaslys ef einn eða
fleiri menn látast vegna afleiðinga slyssins innan 30 daga frá því.
Fjöláverki, (Multipe injuries): Þegar sami sjúklingur hefur minnst tvo
aðskilda áverka á mismunandi líkamshlutum, sem hvor um sig myndi krefjast
bráðrar innlagnar á sjúkrahús og ástand hans krefst innlagnar á gjörgæslu-
deild, eða veldur bráðum dauða.
26
l