Heilbrigðisskýrslur - 04.12.1987, Blaðsíða 85
Bein i mat:
Bein i mat valda.oft slysum, jafnvel dauöaslysum hjá öldruðum. Bein hafa
fundist i harófiski og reyktum fiski sem er á boðstólum. Einnig er
nauósynlegt aö athuga matarvenjur vangefinna og sjúklinga til að draga úr
hættu á köfnun.
07 Efni til hreingerninga.
Fjöldi hreingerningaefna, flest innflutt, eru til sölu hérlendis ásamt
islenskum efnum. Textinn sem skýrir frá innihaldi og viðvörun er oftast á
erlendu máli. Sum efni eru alls ekki merkt. Mörg efni eru mjög hættuleg
og hafa valdið alvarlegum slysum. Fyrir 10-15 árum voru aðeins fáar vörur
merktar, svo sem vitissódi. í reglugerð nr. 479/1977 er skrá yfir
eiturefnin og varúóarmerkingar. En vörur sem „komu seinna á markaðinn voru
ekki merktar. Auglýsing nr. 147/1985 sem birti lista um haettulegan varning
er nú þegar úrelt. Skv. auglýsingu verða innflytjendur erlendra vara og
framleiðendur islenskra hreingerningaefna að taka ábyrgó á slysum af völdum
efnanna. Aðalvarnir eru i höndum foreldra. Skv. byggingareglugerð 1979
veróa að vera i öllum ibúðum tveir læsanlegir skápar, einn fyrir efnavörur
og annar fyrir lyf. Foreldrar veróa sjálfir að setja læsingar á skápa i
eldri ibúðum. Börn á öðru ári eru i mestri hættu enda hættir þeim til að
bragöa á öllu (hættulegustu efnin eru vítissódi og duft fyrir sjálfvirkar
uppþvottavélar). Vélarnar mega ekki vera opnar i návist barna og duftið má
ekki vera i opnum eóa opnanlegum skápum.
08 Húsgögn.
Mörg slys verða vegna falls úr rúmum i heimahúsum, elliheimilum og jafnvel
á sjúkrahúsum. Til að koma i veg fyrir slik slys er nauðsynlegt að setja
upp grindur við sjúkrarúmin en i heimahúsum að setja stóla vió rúmin. Fólk
á efri árum á erfitt með að setjast niður og standa upp úr lágum stólum og
sófum. Æskilegt væri aó nota norska stóla sem fánlegir eru með mishá sæti,
hærri fyrir aldraó fólk þótt bólstruð séu. Kollar geta einnig verið
hættulegir fyrir aldraó fólk eða fatlað. Borð og borðplötur eru hættuleg
vegna hvassra kanta og horna.
Alvarlegustu slysin eru vegna hægra bruna i bólstruðum húsgögnum og
eldsvoða sem getur fylgt á eftir. f bólstruðum húsgögnum og rúmum myndast
eiturgas, oftast er um kolsýring (CO) að ræða en einnig blásýru (CNH), ef
um bruna prótinefna (svo sem ullar) er að ræða. Árió 1979 voru 5 dauðaslys
vegna kolsýringseitrunar á Reykjavikusvæðinu. Fjöldi dauðaslysa i
Reykjavík, vegna umferðaróhappa, voru einnig 5. Árin 1971-1975 ollu
bólstruð húsgögn 25% allra dauðaslysa við bruna i Bandaríkjunum. Rannsókn
og merkingar húsgagna er i gangi á Norðurlöndum. Æskilegt væri að nota
staðlaóan stól (British standard BS 5852 Part I 1979) sem mælikvaróa um
brunahættu, eins og gert er á Norðurlöndum.
11 Snyrtivörur.
Sólarlampar hafa valdió brunaslysum hjá unglingum, jafnvel timabundinni
blindu, þar sem viðeigandi gleraugu voru ekki notuð. Sólarlampar veróa að
vera útbúnir með úrverki og bjöllu. Snyrtivörurnar ættu að vera geymdar i
læstum lyfjaskáp enda drekka ung börn alls konar vökva, jafnvel naglalakk.
83