Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1990, Side 139
SAMANTEKT
1 byrjun árs 1985 tóku gildi ný tóbaksvarnalög hér á landi. Samkvæmt þeim
voru reykingar takmarkaöar á opinberum stöðum, sala til barna var bönnuð,
settar voru fiölbreyttar viðvaranir á tóbaksvörur (frá miðju ári 1985), og
fleiri ráóstafanir voru gerðar,.
Tóbaksvarnanefnd, sem skipuö var samkvæmt lögunum, var meðal annars gert
skylt að fylgjast með neyslu tóbaks. Nefndin fékk Hagvang hf til að gera
þrjár úrtakskannanir á ári i fjögur ár, 1985-1988. Örtakið var 1000-1500
manns hverju sinni og svörun 75-79%. Heildarfjöldi þátttakenda þessi ár var
11473 manns. Niðurstöðurnar, sem birtar eru i þessari skýrslu, sýna að á
þessum árum hefur dregið úr daglegum reykingiim frá þvi að um 40,0% full-
orðinna islendinga (18-69 ára) reyktu áriö 1985 i 36,2% árið 1986, 35,2%
árið 1987 og 34,7% árió 1988.
Dregið hefur bæði úr reykingum karla og kvenna og er samdráttur i flestum
aldurshópum. Árið 1988 reyktu um 35% karla daglega, þar af 27% sigarettur.
Á sama tima reyktu 34% kvenna daglega, þar af 33% sigarettur (tafla 84).
Karlar reyktu að meðaltali 18 sígarettur á dag en konur 14 (tafla 77). Svo
virðist sem konum gangi ekki verr en körlum að hætta að reykja (tafla 21).
Minnstar reykingar voru meðal þeirra sem störfuðu við opinbera þjónustu,
30%, en mestar i sjávarútvegi, 50% (tafla 89). Langskólagengið fólk reykti
minna en aórir (tafla 88). Reykingar voru meiri i Reykjavik og á Reykjanesi
en i öðrum kjördæmum.
Þær kannanir sem gerðar voru fyrir 1985 eru ekki fyllilega sambærilegar við
þessar nýju kannanir. ÞÓ virðist augljóst, m.a. skv. rannsóknum Hjarta-
verndar, (tafla 91) að dregið hafi úr reykingum síðustu árin. Með því að
spyrja fólk árið 1988 hvort það hefði reykt fyrir tíu, tuttugu eöa þrjátiu
árum kom i ljós aö reykingar karla virðast hafa náð hámarki fyrir \am
tuttugu árum en reykingar kvenna fyrir um tíu árum (tafla 80).
Kannanir á vegum Borgarlæknisembættisins i Reykjavik sýna að dregið hefur
verulega úr reykingvim grunnskólanema. Árið 1974 reyktu 23% nemenda (12-16
ára) daglega, en aóeins 9% árið 1986 (tafla 92). Einnig hefur dregið veru-
lega úr reykingum skólaunglinga, 15-20 ára (tafla 94).
Sala á sigarettum frá Áfengis- og tóbaksverslun rikisins var árið 1988 um
2310 stykki á hvern fullorðinn ibúa (tafla 103). Dregið hefur úr
tóbakssölunni síðustu ár.
LJm 93% fullorðinna eru hlynntir takmörkunum á reykingum á vinnustöðum
(tafla 108), 83% telja að gagn sé að reyklausum degi (tafla 111) og 89% eru
hlynntir þvi aö opinberir aóilar hætti að veita tóbak (tafla 113).
Island er nú að komast í hóp þeirra landa þar sem minnst er reykt (tafla
81). íslendingar ætla ekki að láta þar við sitja og stefna að þvi að útrýma
tóbaksreykingum fyrir næstu aldamót, samkvæmt heilbrigðisáætlun sem
rikisstjórnin samþykkti vorió 1987.
137