Skyggnir - 01.10.1979, Blaðsíða 3

Skyggnir - 01.10.1979, Blaðsíða 3
Gamall kommi getur ekki lengur orða bundist. Hvílík smán fyrir fyrrverandi skoðanabræður -mína, kommana2g hef hingað til talað lítið og skrifað ennþá minna en nú verð Ig að leysa frá skjóðunni. Er Ig gekk í þennan skóla hafði Ig heyrt hvílíkt kommabæli þetta væri, og gladdist við það í hjarta mínu. En síðan hef Ig “snúi$ frá hinum rltta átrúnaði, og er það aðallega vegna þess aö Ig vil ekki vera talinn í hópi með þeim örmu þrælum, er kommúnista nefna sig. Já, hvílíkt rangnefniT Þvílíka vanvirðu við kommúnismann slst ekki hlr á næstu grösum, nema ef til vill í hinum svokölluðu"kommúnistat löndum. Ýmsir áberandi persónuleikar hlr í skólanum teljast til þessa hóps. Þau hópuðu sig á samkundu nokkra, sem er útdauð, og virðist það vera vegna þess, að það átti að fara að kenna því fólki kommún- isma, en sem von var, fór það fyrir ofan garð og neðan. í fyrra var háð "snörp" ritdeila milli "vinstrisinna" og Dell- ings hlðan, um klæðaburð Dellingsins. Umræður á svo lágu plani fara vonandi ekki fram aftur,og er það skólanum til háborinnar skammar, að slíkir vanvitar þrífist innan veggja skóians. Eru enda allaballar hlr komnir úr Heimdalli eða viðlíka fllögum. Sýnir það best hvaðan þessir gervikommar eru runnir, þ.e.a.s. af sömu slóðum og Dellingar. Enda virðast þeir lítið vit hafa á .kommúnisma, en hafa einatt sömu hugðarefni og títtnefndir Dellingar. Kommúnismi þeirra er grátbroslegur. Hann einkennist af menningar- snobbi, samstöðu um tillögur (hvers efnis sem þær kunna að vera) í nemendaráði, ólátum hvers konar og yfirleitt öllu sem ekki getur tal- ist kommúnismi. Er rætt er við þetta fólk, kemur í ljós fáfræði þess á kenningum Marx. Barnabækur á við Þætti úr sögu sósíalismans eru aftur á móti alltaf í útláni á bókasafninu. Bækur eftir sænska uppeldis- fræðinga, MMkiljur og Kommúnistaávarpið (aldrei lesið) og fllagsskír- teini (ógatað eftir veturinn) prýða eigur þeirra. Einatt má sjá þá á bókasöfnum, þar sem þeir taka 20 bækur um uppeldismál, heimspeki, stjórnmál og listir á hinum ýmsustu málum og skila ætíð ólesnum aftur. Sumir þeirra hafa jafnvel bendlað sig við anarkisma, sem'' þó má ekki við áföllum eftir að fífl eitt gerði stykki sín hlr síðastliðinn vetur og varð honum til háborinnar skammar. Flest fólk virðist verða að ganga í gegnum tímabil uppreisnar- girni og bendlar sig þá oft við kommúnisma. Þetta fólk er það sem nú ræður þjóðfllaginu, sbr. Vilmund Gylfason o.fl.. Væri ekki nær af ykkur gervikommum að hætta að setja blett á nafn kommúnismans og sýna lit, þann eina lit, þann eina lit sem ykkur er eðlilegur? Það má þó segja Dellingum til hróss, að þeir eru engir gervidellingar, heldur sýna hvað þeir eru. Að svo mæltu vil Ig biðja ykkur að hætta að klessa rauða litnum yfir þann bláa, og finna einhvern annan stað fyrir barnabrek ykkar en nemendaráð. N.N. Anonymous. /ík$ftÓKASAF kt,- . ESS3 QBBM ggssia gttsa

x

Skyggnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skyggnir
https://timarit.is/publication/1736

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.