Skyggnir - 01.10.1979, Blaðsíða 12

Skyggnir - 01.10.1979, Blaðsíða 12
I tilefni af hinum miklu deilum sem geisað hafa ’nér i skólaum um skeytið sem sent var Samtökum herstöðva- andstæðinga 31. september s.l., fór skósveinn blaðs- ins á stúfuna og hafði upp á flutningsmanni tillög- unnar; Ástráði Haraldssyni formanni tónlistarfélags. Fyrst var Astráður spurður að bví hvort hann 'nefði búist við slíkum andbyr gegn tillögu sinni, begar hann bar hana upp.. "Já, bví tilgang’or tillögunnar var fyrst og fremst að skapa umræður um málið í skólanum. Ég bjóst því við og vonaðist efte- ir beim mótmælum sem fram hafa komið." Hvernig undirtektir fékk tillagan í nemendaráði og urðu miklar umræður um hana? "Þegar ég bar tillöguna upp, bar ég hana upp með þeirri fullvissu að hún yrði sambykkt vegna þess að ég vissi að vinstri menn eru í meirihiuta í nemendaráði.. Það urðu ekki miklar umræður um tillöguna þar sem allir nemendaráðsm.enn eru með fullmótaðar skoðanir í þessu máli og vissu því að þar yrði engum snúið." Hvað viltu segja um þau rök andstæðinga tillögunnar, að með samþykkt hennar hafi nemendaráð farið út fyrir verksvið sitt? "Verksvið nemendaráðs er hvergi skilgreint i lögum og þar sem við vitum að óhugsandi er að taka hlutlausa ákvörðun um nokkurt mál þá taldi ég og tel enn að réttara sé að taka hreina og skýra afstöðu í málum heldur en að vera að lsðupokast með skoðanir sínar. "Eg lít ekki á samþykkt þessarar tillögu sem valdníðslu en ef nemendur líta svo á, þá legg ég til að samþykkt verði á mig van- traust á næsta skólafundi og mun ég þá að sjálfsögðu segja af mér hið snarasta." A hverju áttu von á skólafundinum á miðvikuaag? "Ég á von á því að það sannist að meirihluti nemenda Mennta- skólans við Hamrahlíð sé með nógu miklu viti til þess að gera sér ljósa grein fyrir þvi hversu mikilvæg úrsögn íslands úr Atlandshafsbandalagsins og brottför hersins er." Hvað viltu gera að lokaorðum þínum? "Að lokum legg ég til að Morgunblaðshöllin verði jöfnuð við jörðu.. Lifi byltinginí" & f -gh.

x

Skyggnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skyggnir
https://timarit.is/publication/1736

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.