Skyggnir - 01.10.1979, Blaðsíða 6
n
Um langt skeið hefur áróð-
ursmaskína auðvaldsins (Morg-
unblaðið, Þjóðviljinn, Neisti
og Stéttabaráttan) reynt eft-
ir mætti að níða niður eitt
mesta stórmenni þessarar ald-
ar, Leoníd Ilitsj Brézjnéf,
og gert tilraun til að flekka
mannorð hans sem mest hún má.
Við undirritaðir sjáum
okkur knúna til að upplýsa
nemendur M.H. um sannleikann
um mikilmennið L.I.Brézjnéf.
Vér styðjumst einkum við
Fréttir frá Sovétríkjunum,
12. tölublað, desember 1976.
L.I.Brézjnéf fæddist í
verkamannafjölskyldu í Dne-
prodzjerxinsk árið 1906. Hann
hóf vinnuferil sinn á fyrstu
árum hins sovéska ríksis.
Þetta voru erfið ár. Hungur,
fátæktifáfræði og upplausn,
voru sá arfur sem keisarastj-
órnin skildi eftir sig. Við
þjóðinni blasti það verkefni
að koma efnahagslífinu á
réttan kjöl. Sovéska þjóðin
laut forystu flokksins, sem V.
I.Lenín stofnaði, og hóf nú að
umbylta hinu gamla og frum-
stæða Rússlandi af mikilli
ósérhlífni, og breyta því í
nýtt sósíalískt ríki. A þessu
tímabili kom fram ágæt kynslóð
frúmherja í hinni sósíalísku
uppbyggingu, með L.I.Bréxjnéf
í fararbroddi.
Brézjnéf hefir allotaf ver-
ið tengdur almenningi traustum
böndum. Við hver einustu
þáttaskil í sögu Sovétríkjanna
var hann ávallt í fremstu röð,
þar sem erfiðleikarnir voru
mestir, og útheimtu þyngstan
ábyrgðarhlut.
Bréxjnéf gekk snemma í Kom-
somol, en þar nam hann hiri
flóknu vísindi um lífið,
stéttabaráttuna og uppbyggingu
hins nýja þjóðfélags. Skömmu
f (Bréznef, 25. flokksþing KFS)
síðar gekk hann í flokkinn, og
hefur síðan þjónað mál^stað hans
dyggilega.
I síðari heimsstyrjöldinni
gegndi Brézjnéf ýmsum ábyrgðar-
stöðum og vann sig fljótt upp í
virðingarstöður, bæði innan
flokksins og hersins. Hann var
með réttu orðin ein af þekkt-
ustu stríðshetjum SSSR, og tók
þátt í sigurförinni yfir Rauða
Torgið.
Árið 1957 var Brézjnéf kjör-
inn í forsætisnefnd KFS. Jafn-
framt því tók hann virkan þátt
í störfum æðstu stofriana sov-
éska ríkisvaldsins. Á árunum
1960-1964 var hann forseti for-
sætisnefndar Æðsta Ráðsins. Ár-
ið 1964 var hann svo kjörinn
aðalritari KFS. En jafnvel
eftir það hélt hann áfram að
starfa innan forsætisnefndar
Æðsta Ráðsins.
Störf Bréznéfs í helstu em-
bættum flokks og ríkis hafa
verið mikil og margþætt. Þau
hafa tekið til mjög mismunandi
verkefftna í hinum fjölbreyti-
legustu sviðum. I samræmi við
meginregluna um samvirka for-
ystu sem lögð hefur verið til
grundvallar stjórnunarstörfum í
SSSR vinnur Bréznéf að því
ásamt samstarfsmönnum sínum að
leggja línurnar í innan- og ut-
anríkismaíum þjóðarinnar og
tekur frumkvæði í tillöguflutn-
ingi um meiri háttar mál sem
hljóta viðtækan stuðning. Hann
hefir yfirumsjón með lausn
ýmissa vandamála varðandi efna-
hagsþróun í þjóðarbúsk^pnum,
varðandi tækni, vísindi og
menningarmál. Höfuðmarkmiðið
er ávallt umhyggja fyrir mann-
inum, fyrir velferð allrar
þjóðarinnar - en það er ávallt
æðsta markmið Kommúnistaflokks-
ins. Nafn Bréznéfs er tengt
öllum þeim árangri sem sovéska
þjóðin hefur náð á síðastliðnum