Leikhúsmál - 01.03.1940, Blaðsíða 11
Leikluísmál
n
Lártis Pálsson í ,,Sjö dauðadyggðir
Lárus Pálsson.
Þessi ungi leikari er ættaður úr Reykjavík.
— Hel'ir hann lokið námi á leikskóla konung-
lega leikhússins í Kaupmamiahöfn (1937).
Hann var svo starfandi við það leikhús sem
leikari í eitt ár. — Nú er hann fastráðinn við
annað leikhús borgarinnar, sem nefnist „Ridd-
arasalurinn". Er það lítið, en hefir vakið á sér
mikla eftirtekt á síðari árum fyrir gott leik-
ritaval og nýja stefnu í dönskum leikhúsmál-
um. — Flestir leikararnir eru ungir, en hæfi-
leikamiklir. — Leikhússtjórinn er ungur gyð-
ingur, Samuel Resekov að nafni. — Lárus
Pálsson hefir fengið þarna mörg góð hlutverk,
og með þeim getið sér hinn bezta orðstír.
Greifmn í „Rigolctto“ eflir Vcrdi (Stcfano Islandi).
Stefano Islandi.
íslenzki söngvarinn, sem flestir íslendingar
munu kannast við héðan að heiman, hefir nvi
verið starfandi við konunglega leikhúsið i
Höfn þetta leikár og sungið ýms hlutverk í
mismunandi óperum. Þar á meðal Don José í
óperunni „Carmen“ eftir Bizet og í óperunni
„Rigoletto" eftir Verdi. Hefir hann og hlotið
hina heztu dóma, og mun hann nú vera einn
allra hezti tenórsöngvari hér á Norðurlöndum.
Frá Þórshöfn.
Um hvítasunnuna minntist Leikfélag Þórs-
hafnar 25 ára afmælis síns, með leiksýningu
þar á staðnum. Var sýnt leikritið „Vara-
skeifan“ eftir Eirík Bögh, er leikfélag þetta
sýndi þar í fyrsta sinn fyrir 25 árum og sem
þessi starfsemi hófst með. — Hátíðahöld þessi
hófust með ræðuhöldum og hljómleikum.
Leikfélag Þórshafnar hefir starfað næstum
óslitið öll þessi ár, án nokkurs opinbers fjár-
styrks. Hafa félagsmenn þess lagt á sig hið
mesta erfiði, til að halda við leikstarfsemi í
þorpinu. Er það eitt af þeim mörgu dæmum,
sem sýna hinn mikla og lofsverða áhuga ís-
lendinga fyrir hinni dramatisku list. Félagið
hefir haft sýningar á mörgum þekktum leik-
ritum. Má þar til nefna „GaIdra-Loft“, „Lén-
harð fógeta“, „Hamingju“ eftir Karen Bram-
son o. m. fl. — Allmörg síðustu árin hefir hér-
aðslæknirinn Eggert Einarsson og frú hans,
Magnea Jónsdóttir, staðið framarlega í leik-
starfseminni, og hefir frúin leikið flest stærstu
kvenhlutverkin, enda er hún aðalleikkona fé-
lagsins. — Því miður getur blaðið ekki að
þessu sinni birt myndir frá þessum sýning-
um, en væntir þess að geta gert það síðar.