Fréttablaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 8
n Halldór
n Frá degi til dags
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is, Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Neysla
vímugjafa
er í sumum
tilfellum
ekkert
annað en
plástur á
blæðandi
sár.
ALLT FYRIR
JÓLIN Í EINNI FERÐ
Maður heyrir stundum frasann
að fólk geti sjálfu sér um kennt.
Oft eru það hinir velmegandi,
þeir sem hafa fæðst með silfur-
skeið í munni, sem tala þannig.
Það gleymist stundum að þeir sem sagðir eru
geta sjálfum sér um kennt – geta oft alls ekki
sjálfum sér um kennt. Ekki ef grannt er skoðað.
Bjargir okkar til að blómstra í lífinu eru nefni-
lega ójafnar.
Sum börn eiga aldrei séns, eins og vinkona
mín í ljósmæðrastétt nefndi við mig kvöld
eitt. Fyrr um daginn hafði hún tekið á móti
barni. Barni sem fæddist með mikinn þunga á
grönnum herðum: erfiðar félagslegar aðstæður
og grun um meðgönguskaða.
Við gleðjumst yfir því ljósi sem skín þegar
nýtt barn kemur í heiminn en sum okkar áttu
aldrei séns, sum börn fá enga forgjöf. Þeir sem
draga stutta stráið eiga betra skilið en að þurfa
allt lífið að heyra að andbyrinn sé þeirra sök.
Þegar heimilislausir fengu orðið á Hringbraut
fyrir skömmu sagði einn kunningi við mig að
það væri ótrúlegt að fólk „kysi sjálft svona lífs-
stíl“. Upp úr því spunnust umræður um hvort
nokkur kysi eymdina sjálfviljugur. Samtalið
leiddi til þeirrar spurningar hvað hefði gerst
í lífi hins heimilislausa áður en fíknin náði
yfirhöndinni. Því neysla vímugjafa er í sumum
tilfellum ekkert annað en plástur á blæðandi
sár, mein sem aldrei grær.
Við ættum kannski í aðdraganda jólanna að
varast að dæma aðra. Hvort sem um ræðir efna-
litla eða heimilislausa, þá sem reyna af veikum
mætti að brosa til okkur í gegnum vímuna.
Sumir stjórnmálamenn líta þó ekki á það
sem æskilegt markmið að auka jöfnuð í sam-
félaginu með sköttum eða öðru sem heldur
þeim á floti sem verst standa. Kannski sprettur
sú fáfræði upp vegna skorts á skilningi á að
aðeins sum okkar hafa úr raunverulegum tæki-
færum að spila. Aðeins sum okkar geta sjálfum
sér um kennt. Sumir trúa að með vinnusemi,
áræðni, dugnaði og vilja geti hver sem er náð
fram markmiðum, grætt á daginn og grillað á
kvöldin. Þeir mættu íhuga eftirfarandi:
Jöfnuður minnkar fátækt.
Jöfnuður leiðir til heilbrigðara samfélags.
Jöfnuður eykur lífslíkur.
Jöfnuður minnkar hættu á ofbeldi.
Jöfnuður eykur möguleika á haldbærri
menntun.
Jöfnuður eykur lífsgæði fatlaðra og annarra
jaðarsetta.
Jöfnuður er efnahagslega mikilvægur.
Jöfnuður er vörn gegn órétti. n
Dómharkan
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
gar@frettabladid.is
Ófærð fyrir byrjendur
Nokkuð snjóaði á suðvestur-
horni landsins á föstudagskvöld
og fram á laugardag. Setti það
strik í ýmsa reikninga. Þótt
um hafi verið að ræða uppá-
komu af alvanalegu tagi urðu
margir hvumsa vegna hinna
óhjákvæmilegu afleiðinga sem
fylgja ofankomu í slíku formi og
magni. Lesendur sem þekkja og
muna ítölsku teiknimyndafígúr-
una Línuna gátu þar séð hana
endurspeglast í viðbrögðum
sumra samborgara sinna sem
heimtuðu að geta komist leiðar
sinnar hnökralaust og það á
stundinni.
Sjálfskaparvíti
Þótt einhverjir hafi kannski
brugðist við snjóþyngslunum
og ófærðinni með dálítið ýktum
hætti er ekki annað hægt en
að viðurkenna að sumt hefði
mátt betur fara er kom að því
að greiða leið fyrir hina önnum
köfnu borgara. Þeir voru þó
þegar enn betur er að gáð ef til
vill sjálfum sér verstir með því
að ana af stað og stinga sér á
bílum sínum á bólakaf í næsta
skafl og sitja þar fastir og koma
með því í veg fyrir að hreinsun
gatnakerfisins gæti gengið
snurðulaust fyrir sig. En góðu
tíðindin er þó alltaf þau að nú
er kominn jólasnjór – þótt hann
verði kannski orðinn útblásturs-
brúnn á aðfangadag. n
Við afgreiðslu fjárlaga í desember fór fram hinn
árlegi jólagjafaleikur ríkisstjórnarinnar. Sá leikur
hefur það eitt að markmiði að geta við lok hans
barið sér á brjóst og sagt: „Sko, víst erum við góð
við öryrkja!“ Leikurinn hefst á því að fjármála- og
efnahagsráðherra leggur fram strípuð fjárlaga- og
fjáraukalagafrumvörp þegar kemur að réttindum
öryrkja.
Við umfjöllun í fjárlaganefnd og afgreiðslu
málanna eru svo, á elleftu stundu, lagðar fram
breytingartillögur sem oft eru samhljóða því sem
stjórnarandstaðan hefur áður lagt fram og þær
afgreiddar með lúðrablæstri.
Eftir fimm ára setu ríkisstjórnar Katrínar
Jakobsdóttur treysti hún sér loks til að hækka
frítekjumark atvinnutekna öryrkja í 200 þúsund
krónur á mánuði til samræmis við frítekjumark
eftirlaunafólks en frítekjumarkið hefur staðið í
stað frá því að Samfylkingin var síðast í stjórn.
Eingreiðsla, svokallaður jólabónus, upp á 60
þúsund krónur var einnig afgreidd en hana var
ekki að finna í upphaflegum tillögum fjármála-
ráðherrans.
Samfylkingin fagnar því að sjálfsögðu innilega
að tekjulægstu íbúar landsins fái sinn jólabónus.
Hann kemur sér örugglega vel. Fyrir hækkuðu
frítekjumarki atvinnutekna hefur Samfylkingin
barist árum saman enda löngu tímabær breyting.
Afleiðing kerfisins
Á Íslandi býr fatlað fólk og þau sem misst hafa
starfsgetuna eða glíma við langvinna sjúkdóma
við fátækt og jaðarsetningu. Það er mannanna
verk. Afleiðing kerfis sem heldur fólki undir oki
fátæktar jafnvel kynslóð fram af kynslóð.
Sumir virðast hafa sætt sig við að sú staða sé
óumbreytanleg en það gerir Samfylkingin ekki.
Það er pólitískt forgangsmál okkar að breyta
örorkulífeyriskerfinu svo að það byggist á mann-
réttindum fólks en ekki tilfallandi greiðslum sem
eiga meira skylt við ölmusu en nokkuð annað. n
Ölmusa eða réttindi
Þórunn
Sveinbjarnar-
dóttir
þingkona Sam-
fylkingarinnar
– jafnaðarflokks
Íslands
Sam-
fylkingin
fagnar því
að sjálf-
sögðu
innilega
að tekju-
lægstu
íbúar
landsins
fái sinn
jólabónus.
Skoðun Fréttablaðið 20. desember 2022 ÞRIðJuDAGuR