Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.12.2022, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.12.2022, Qupperneq 12
Taumlaus gleði og erfið reynsla Íþróttaárið 2022 færði okkur margar góðar stundir, stór afrek en einnig erfið töp. Í því kristallast íþróttirnar og hvað innlend- an vettvang varðar, sem og afrek Íslendinga á erlendri grundu, var af nægu að taka og er því stiklað á stóru í innlendum íþróttaannál Fréttablaðsins og eftirfarandi listi ekki tæmandi. Fram undan er nýtt ár og spennandi innlent íþróttaár . aron@frettabladid.is UFC Gunnar Nelson sneri aftur í bar­ daga búrið á vegum UFC í London í mars eftir rúmlega tveggja ára fjarveru. Gunnar vann yfirburða­ sigur gegn Takashi Sato en meiðsli komu síðan í veg fyrir að Gunnar keppti aftur á árinu. Hann stefnir hins vegar á bardaga á komandi ári. Golf Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson varð í nóvem­ ber aðeins annar Íslendingurinn til að tryggja sér þátttökurétt á Evrópumótaröð karla í golfi, næst­ sterkustu mótaröð heims. Með því fetaði Guðmundur í fótspor Birgis Leifs Hafþórssonar sem komst fyrstur Íslendinga á Evrópumóta­ röðina árið 2006. Perla Sól Sigur brands dóttir úr Golf klúbbi Reykja víkur ritaði nafn sitt í sögu bækurnar á árinu þegar hún varð Ís lands meistari í golfi og það að eins 15 ára gömul. Perla Sól er næstyngsti kylfingurinn til þess að verða Íslandsmeistari í kvenna­ flokki á eftir Ragnhildi Sigurðar­ dóttur. Fyrir Íslandsmeistaratitilinn hafði Perla tryggt sér Evrópumeist­ aratitilinn í flokki stúlkna 16 ára og yngri á European Young Masters. Í karlaflokki varð Kristján Þór Einars­ son Íslandsmeistari. Fótbolti Breiðablik varð Íslandsmeistari karla í fótbolta í annað skipti í sögu félagsins og í fyrsta sinn síðan árið 2010. Keppt var eftir nýju keppnisfyrirkomulagi í efstu deild karla þar sem deildinni var skipt í tvo hluta eftir að öll lið höfðu leikið heima og að heiman hvert við annað. Blikar voru vel að titlinum komnir og hömpuðu að lokum hinum nýja Bestu deildar­ skildi. Þá bar Valur sigur úr býtum í Bestu deild kvenna og hefur félag­ ið því hampað Íslandsmeistaratitl­ inum þrettán sinnum í kvenna­ flokki. Það héldu Valskonum engin bönd í Bestu deildinni og fór svo að liðið endaði með sex stiga forskot á toppnum. Valskonur bættu um betur og tryggðu sér einnig bikarmeistaratitilinn með sigri á erkifjendunum í Breiðabliki í úrslitaleiknum. Valur er þannig orðinn sigursælasta félagið í sögu bikarkeppni kvenna Víkingur Reykjavík varði bikar­ meistaratitil sinn í karlaflokki með því að leggja FH að velli í úrslita­ leik Mjólkurbikarsins. Víkingar hafa einokað bikarmeistaratitilinn undir stjórn Arnars Gunnlaugs­ sonar og unnið hann þrisvar sinnum í röð. Körfubolti Valsmenn náðu að binda enda á 39 ára bið félagsins eftir Ís­ landsmeistaratitli í karlaflokki í körfubolta með því að leggja Tindastól að velli í úrslitaeinvígi Subway­deildarinnar sem fór alla leið í oddaleik. Sá leikur reyndist síðasti leikur íslensku körfubolta­ goðsagnarinnar Pavels Ermolinskij á ferlinum. Stjarnan varð bikarmeistari karla í körfubolta eftir átta stiga sigur á Þór Þorlákshöfn í úrslita­ leik sem leikinn var í Smáranum í Kópavogi. Stjörnumenn hafa undanfarin ár gert sig gildandi í bikarkeppninni en þetta var fjórða árið í röð sem liðið komst alla leið í úrslitaleikinn. Í kvennaflokki varð það Njarð­ vík sem hampaði Íslandsmeistara­ titlinum eftir sigur í oddaleik gegn Haukum í úrslitaeinvígi Subway­ deildarinnar. Þetta er í annað skiptið í sögunni sem Njarðvík verður Íslandsmeistari kvenna í körfubolta en fyrsti Íslands­ meistaratitill liðsins kom í hús árið 2012. Þá urðu Haukar bikarmeist­ arar kvenna eftir sjö stiga sigur á Breiðabliki í úrslitaleiknum. EM í hópfimleikum Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum keppti til úrslita á Evrópumeistaramótinu í Lúxemborg sem fór fram í september og endaði liðið í öðru sæti. Þá gerði íslenska stúlknalandsliðið sér lítið fyrir og nældi sér í bronsverðlaun í unglingaflokki á sama móti. Karla­ landsliðið í náði ekki á verðlaunapall á sama móti en liðið endaði í fjórða sæti. Sund Anton Sveinn McKee synti til úrslita í 200 metra bringusundi á Heimsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fór fram síðasta sumar. Anton endaði í 6. sæti í úrslita­ sundinu, aðeins sekúndubrotum frá Íslandsmeti sínu í greininni en um var að ræða þriðja besta árangur Íslendings á HM í 50 metra laug til þessa. Hann fylgdi því eftir og lenti í sjötta sæti á EM í 50 metra laug í sömu grein. Íslensku landsliðin í handbolta Íslenska karlalandsliðið í hand­ bolta endaði í 6. sæti á Evrópumót­ inu sem fór fram í Ungverjalandi og Slóvakíu í byrjun árs. Strákarnir okkar þurftu að yfirstíga mikla erfiðleika er Covid­19 herjaði á lykilmenn liðsins en frammistaða liðsins á mótinu gefur góð fyrirheit fyrir komandi heimsmeistaramót sem hefst í janúar. Ómar Ingi Magn­ ússon varð markahæsti leikmaður mótsins með 59 mörk. Tveir fremstu handboltamenn Íslands, þeir Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson, urðu Þýskalandsmeistarar með liði sínu Magdeburg og þá var Ómar Ingi valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með miklum yfirburðum. Einnig urðu þeir félag­ arnir heimsmeistarar félagsliða með Magdeburg sem hafði betur gegn Barcelona í úrslitaleik Heims­ bikarsins sem fór fram í Damman í Sádi­Arabíu. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta náði ekki að tryggja sér sæti á EM í handbolta í gegnum undankeppni mótsins þar sem liðið þurfti að láta í minni pokann gegn Serbum og Svíum. Hins vegar náði liðið að tryggja sér umspils­ leiki við Ungverja um laust sæti á HM 2023 eftir samanlagðan 17 marka sigur úr einvígi liðsins við Ísrael. Landslið Íslands í fótbolta Kvennalandslið Íslands í fótbolta komst taplaust í gegnum riðla­ keppni EM í knattspyrnu sem fór fram á Englandi í sumar, allir leikir liðsins enduðu með jafntefli og þar með lauk þátttöku Íslands á mótinu. Liðið komst einnig í um­ spilsleik um laust sæti á HM 2023 en þurfti þar að þola slæmt tap á útivelli gegn Portúgal. Karlalandslið Íslands í fótbolta tók þátt í B­deild Þjóðadeildar UEFA í ár, gerði jafntefli í öllum fjórum leikjum sínum og endaði í 2. sæti síns riðils. Árið var hugsað sem undirbúningsár fyrir 2023 þar sem liðið hefur leik í undan­ keppni EM 2024. Þá tók liðið þátt og bar sigur úr býtum á Baltic Cup æfingamótinu undir lok árs. Handbolti Það héldu karlaliði Vals í handbolta engin bönd á árinu sem er að líða. Liðið sópaði til sín öllum þeim titlum sem í boði voru hér heima og gerði sig gildandi í riðlakeppni Evrópudeildarinnar nú á seinni helmingi ársins. Valsmenn hafa verið á mikilli siglingu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar og verður spenn­ andi að fylgjast með liðinu á árinu 2023. Í kvennaflokki var það Fram sem varð Íslands­ meistari í handbolta en liðið lagði að velli nágranna sína í Val í úrslitaeinvígi Olísdeildarinnar. Hið öndverða var uppi á teningnum er kom að bikarkeppni kvenna í handbolta en þar tryggðu Vals­ konur sér bikarmeistaratitilinn með sigri á Fram í úrslitaleiknum. Landsliðin í körfubolta Karlalandslið Íslands í körfubolta hefur verið að gera flotta hluti í undankeppni HM á árinu og var um tíma mjög nálægt því að tryggja sér sæti á HM í fyrsta sinn. Þetta hefur liðið gert í fjarveru lykilmannsins Martins Hermannssonar sem hefur glímt við meiðsli. Og þó svo liðið hafi þurft að sætta sig við vond úrslit undir lok árs er hægt að horfa á þetta ár björtum augum. Kvennalandslið Íslands í körfu­ bolta lék þrjá leiki í annarri umferð undankeppni EM í körfubolta núna í nóvember. Liðið vann síðari leik sinn á móti Rúmenum en hafði áður tapaði gegn þeim, Spán­ verjum og Ungverjum og situr í þriðja sæti riðilsins þegar tveir leikir eru eftir. Íþróttir Innlendur annáll 20. desember 2022 þriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.