Fréttablaðið - 20.12.2022, Síða 14

Fréttablaðið - 20.12.2022, Síða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. sjofn@frettabladid.is Í tilefni þess að Gunna Sigga vann þessa vinsælu keppni var hún feng- in til að fullkomna brauðtertuna og setja hana í jólabúning í þættinum Mat og heimili á Hringbraut þar sem boðið var upp á eitís-jólakaffi eins og það gerist best. Brauðtertan var í forgrunni og sló í gegn. Gunna Sigga er fædd og uppalin á Ísafirði og er yngst átta systkina. Foreldrar hennar eru Guðrún Val- geirs og Matthías Vilhjálmsson. Gunna Sigga vinnur sem ritari hjá Háskólasetri Vestfjarða þar sem hún nýtur sín í starfi og er í raun miklu meira en ritari. „Til Ísafjarðar hafa komið um eða yfir 200 nem- endur og ég hef trúlega komið eitt- hvað að matargerð fyrir þau öll, fer í hlutverk móður á meðan þau eru hérna í haf- og strandsvæðanámi og sjávarbyggðanámi,“ segir Gunna Sigga sem er mikill ástríðukokkur. „Ég hef alltaf unnið eitthvað í kringum mat um ævina hvort sem það var í frystihúsi um fermingu eða í veislum á veitingastaðnum Krúsinni á Ísafirði, kokkur á togara eða sem smurbrauðsfrú í Kaup- mannahöfn.“ Þegar Íslandsmótið í brauð- tertugerð, sem haldið var á vegum Ormsson, var auglýst í haust, varð Gunna Sigga strax heit fyrir því að taka þátt. „Ég sá eftir að hafa ekki tekið þátt í keppninni árið 2019 en hún var haldin á vegum Brauð- tertufélags Erlu og Erlu á Menn- ingarnótt. Ég ákvað því að slá til að þessu sinni þegar ég sá þessa aug- lýsingu frá Ormsson, skráði mig til leiks og keyrði í bæinn eftir vinnu á föstudegi, en keppnin var haldin á laugardegi.“ Kom, sá og sigraði Spurð segir Gunna Sigga að upp- skriftin að rækjubrauðtertunni sé nokkuð svipuð og oft áður nema hún hafi bætt við einu leynihrá- efni sem hafi toppað bragðið. „Ég setti ferskt dill í brauðtertuna sem gerir svakalega gott bragð og kemur bragðlaukunum á flug. Yndisleg hjón gáfu mér mikið af salati, dilli, eggjum og sítrónum sem þau rækta í Önundarfirði sem ég notaði í brauðtertugerðina en rækjurnar eru frá Kampa Ísafirði. Ég setti brauðtertuna saman á föstudagskvöldi þegar ég kom til Reykjavíkur en skreytti hana síðan á laugardagsmorgni rétt fyrir keppnina.“ Dómnefndin gat ekki staðist þessa girnilegu rækjubrauðtertu og er Gunna Sigga því Íslands- meistari með bragðbestu brauð- tertuna. Ómissandi að baka á aðventunni Kræsingar sem voru í boði á níunda áratugnum, eins og áhorfendur sáu í Verbúðinni í sjón- varpinu, eru í miklu uppáhaldi hjá Gunnu Siggu. „Ég er frekar mikið fyrir brauðtertur og finnst gaman að bjóða upp á kökur, pönnukökur, kleinur og mat,“ segir hún. „Núna þegar styttist í jólin og aðventugleðin ómar um allt finnst mér mikilvægt að það séu til mömmukökur, sörur og lagkökur, það eru mínar uppáhaldskökur og ómissandi að baka á aðventunni. Ég baka ekki mikið meira fyrir mig og Karl Eron, einkasoninn, kannski meira fyrir vini og kunn- ingja. Síðan finnst mér ómissandi að fara í góða vestfirska skötu á Þorláksmessudag hjá Björgunar- félagi Ísafjarðar og pylsu í Hamra- borg á hádegi á aðfangadag. Mér finnst síðan jólin koma þegar byrjað er að sýna jólamyndirnar en jólin eiga að snúast um samveru og frábært að komast líka á jóla- tónleika. Fyrir eitís-jólakaffið í þættinum Mat og heimili var hátíðarborðið dekkað í eitís-stíl og veitingarnar sem bornar voru fram sömu- leiðis. Hrafnhildur Þorleifsdóttir, blómaskreytir og eigandi Blóma- Jólasmákökurnar njóta vinsælda og gleðja bæði auga og munn. Hér eru þær fallega settar á disk. Rækjubrauðtertan hennar Gunnu Siggu Rækjusalatið á brauðtertuna 450 g rækjur (byrja á að láta þær þiðna) 6 egg, söxuð 400 g majónes ¼ tsk. aromat ¼ tsk. sítrónupipar ¼ tsk. grillkrydd ¼ tsk. engifer ½ -1 tsk. saxað ferskt dill Fyrir brauðtertuna og skraut Eitt brauðtertubrauð, skorið langsum (gerir fjórar hæðir) Majónes og sýrður rjómi til að smyrja brauðtertuna með eftir smekk Egg, agúrkur, sítrónur, salat, dill og rifsber í skreytingu Geymið smá af rækjunum. Getið auðvitað notað það grænmeti sem til er að hverju sinni. Byrjið á því að gera rækjusal- atið. Þegar það er tilbúið er brauð- tertan sett saman, ég geri fjórar hæðir. Skerið endana af brauðinu. Hrærið saman majónes og sýrðan rjóma, jöfn hlutföll. Smyrjið brauðtertuna að lokum með blöndunni af majónesi og sýrðum rjóma. Geymið í ísskáp yfir nótt. Skreytið rétt áður en þið berið brauðtertuna fram. Rifsberin setja brauðtertuna í jólabúninginn. n Elva Ágústsdóttir stílisti og Hrafnhildur Þorleifsdóttir blómaskreytir sáu um að dekka hátíðarborðið í eitís-stíl og nutu jólakræsinganna með Gunnu Siggu og Sjöfn Þórðar. FRéttABLAðið/VALLi gallerís við Hagamel, sá, ásamt Elvu Stefánsdóttur stílista, um að dekka borðið þar sem rauðar jólastjörnur og grænt greni spiluðu aðalhlutverkið enda mikið um rauðar jólastjörnur á heimilum landsmanna á níunda áratugnum. Mánaðarbollarnir voru teknir fram enda eru þeir fullkomnir fyrir heitt súkkulaði jafnt sem kaffi. Gunna Sigga sá um að setja vinningsbrauðtertuna í jólabúning og boðið var upp á uppáhaldssmá- kökur viðstaddra, mömmukökur, vanilluhringi, piparkökur, spesíur og súkkulaðibitakökur. Loks var boðið upp á lagterturnar sem hafa fylgt þjóðinni í áranna rás, bæði ljósa og brúna sem bakaðar voru af bakarameistaranum Steinþóri í Björnsbakaríi. Eitís-jólakaffið var síðan toppað með jólakonfektinu frá Nóa Síríusi sem borið var fram í fallegum konfektkassa þar sem íslensk náttúra skartaði sínu fegursta. Gunna Sigga sviptir hér hulunni af uppskriftinni að vinningsbrauð- tertunni sem tilvalið er að bjóða upp á með jólakaffinu í ár. Hver man ekki eftir jólaböllunum sem haldin voru um land allt þar sem boðið var upp á dýrindis brauð- tertur, jólasmákökur og lagtertur? Jólahefðir og -siðir eins og þessar eru klassík sem gaman er að halda á lofti með yngri kynslóðunum og rifja upp hlýjar jólaminningar úr bernsku. Lítil jólasmákaka eða dýrindis brauðterta getur komið okkur á bragðið og jólaminn- ingarnar verða til. n Margir baka lagtertur fyrir jólin, hver með sínu nefi, annað hvort hrærðar eða hnoðaðar. Ég er frekar mikið fyrir brauðtertur og finnst gaman að bjóða upp á kökur, pönnu- kökur, kleinur og mat. Guðrún Sigríður S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ NETVERSLUN LAXDAL.IS Glæsilegur hátíðarfatnaður 2 kynningarblað A L LT 20. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.