Fréttablaðið - 20.12.2022, Qupperneq 28
pappann af, þá var glansdúkurinn
alveg stamur og það var ekki séns.
Á síðustu stundu ákvað ég að taka
handahlaup,“ segir fyrrverandi
antisportistinn.
„Þetta er rokklag og maður þarf
að hafa þetta grand,“ bætir hann
við. „Þetta er bara hreyfiþörf, við
skulum orða það þannig. Ég hef
bara alltaf verið svona kvikur, þrátt
fyrir fyrrum hatur mitt á almennri
líkamsrækt. Ég hleyp og fer í lík-
amsrækt sem öllum vinum mínum
finnst sjúklega fyndið. Það byrjaði
bara fyrir þremur árum. Lífið hittir
mann stundum á mjög furðulegum
mómentum. Ég var að syngja í
Bandaríkjunum í tvær, þrjár vikur
og fór út með tilbúið prógramm.
Þá er maður með heilmikinn tíma
á höndum sér. Þá hugsaði ég: Jæja,
ég ætla að prófa hvort ég geti vanið
mig á að hlaupa. Ég hljóp á hverjum
einasta degi í tæpan mánuð, fyrst
bara eitthvað smá. Eftir það hef ég
hlaupið og stundað líkamsrækt og
finnst það bara frábært.“
Handahlaupin á laugardags-
kvöldið áttu sér þannig ekki langan
aðdraganda. „Ég ákveð þetta bara
í tröppunum þegar þeir voru að
kynna mig. Ég var með sendi límd-
an á mig og í sparifötum og athugaði
hvort þetta héngi ekki allt á sínum
stað.“
Gissur útskýrir að þannig hafi
meðsöngvarar hans ekki verið með
öllu upplýstir um uppátækið. „Þeir
vissu að ég ætlaði að gera eitthvað
en þeir vissu ekki hvað. Svo var
sviðið ekki stórt.“
Jólastemning í janúar
Gissur er altalandi á ítölsku
eftir átta ára búsetu á Ítal-
íu. „Ég var þar að læra söng.
Fyrsta skipti sem við konan
mín fórum í stórmarkað að
kaupa í matinn var kom-
inn miður janú- a r,
jólin búin og
allt. Ég tók eftir
því að það var
dúndrandi jóla-
stemning í búð-
inni og verið að spila hvert jólalagið
á fætur öðru. Svo fattaði ég: Já, þetta
eru auðvitað öll ítölsku dægurlögin
sem Björgvin hefur dundað sér við
að taka og breyta í jólalög. „Ef ég
nenni“ er ekkert jólalag heldur late
eighties popplag á Ítalíu.“
Að sögn Gissurar eru: „Ítalir sjúk-
ir í gömlu góðu eighties og nineties
músíkina sína og þetta rúllar dag-
inn út og inn.“
Gissur segist hafa hlustað mikið
á Jólahjól í f lutningi
Stefáns Hilmars-
sonar og Snigla-
bandsins þegar
hann var barn,
og seg ist hafa
dýrkað það þegar
hann var tíu ára
gamall . „Þett a
var svalasta lag
í heimi,“ seg ir
hann. „Stefán er
mikill Ítalíumað-
ur og okkur datt
í hug að það væri
sniðugt og fyndið að
ég myndi snara þessu yfir á ítölsku,
þannig að ég þýddi og staðfærði
lauslega stutt erindi. Jólahjól er
ekki ítalskt dægurlag og þá fannst
okkur fyndið að gera þetta aftur á
bak. Taka íslenskt hreinræktað jóla-
lag og setja ítalskan texta inn í það.“
Fengu formlegt leyfi
Veður og færð settu strik í dag-
skrána hjá mörgum Íslendingum
um helgina og þar voru gestir og
f lytjendur Jólagesta ekki undan-
skildir.
„Trommarinn og hljómborðs-
leikarinn, býsna mikilvægir póstar
í hljómsveitinni, voru báðir veður-
tepptir á tónleikadag fyrir austan
fjall. Þeir komu klukkutíma fyrir
show, alveg sultuslakir. Það var rosa
prósess. Það var sendur risajeppi að
ná í þá og það þurfti að fá formleg
leyfi til að keyra lokaða vegi,“ segir
Gissur.
Íslendingar lögðust þannig á eitt
til að geta haldið jólagesti?
„Já klárlega!“ n
Sjá nánar á frettabladid.is
Þeir vissu að ég ætlaði
að gera eitthvað en
þeir vissu ekki hvað.
Tenórsöngvarinn Gissur Páll
Gissurarson stal senunni á
Jólagestum Björgvins sem
fram fóru í Laugardalshöll
á laugardagskvöld. Gissur
tók sig til í miðjum flutningi
á laginu Jólahjól, og fór á
handahlaupum niður stiga
og inn á sviðið og hóf upp
raust sína í nýju erindi
lagsins á ítölsku.
ninarichter@frettabladid.is
„Ég sit hérna og reyni að ná tökum
á lífi mínu í þessum ágæta jóla-
mánuði,“ segir stórsöngvarinn
Gissur Páll Gissurarson og skelli-
hlær. Það liggur beint við að spyrja
hvort glæst fimleikafortíð liggi að
baki þessum ógleymanlegu töktum
á Jólagestum Björgvins um helgina,
þar sem Gissur framdi sitt eigið
jólahjól í handahlaupum á sviðinu.
„Fimleikafortíðin er engin. Ég var
annálaður antisportisti á mínum
menntaskólaárum í Menntaskól-
anum í Kópavogi og barðist með
eldi og brennisteini fyrir því að
fá að taka bóklega leikfimi, sem
ég fékk ekki,“ segir Gissur. „Það er
bakgrunnurinn. Ég reif kjaft þarna
alveg eins og ég gat en þurfti á end-
anum að taka mína leikfimi.“
Ákveðið á síðustu stundu
Söngvarinn bætir við að þarna sé
um að ræða blöndu af gríðarlegu
keppnisskapi og ADHD. „Ég hef
alltaf verið mjög kvikur og lipur.
Þegar við vorum að æfa innkom-
una í Jólahjólið, og nú er Jólahjól
ekki aðal-tenórlagið í sýningunni
– hugsaði ég hvað ég ætti að gera,“
segir hann.
„Þá byrjaði ég á að koma hlaup-
andi niður tröppurnar, henda
mér á hnén og svona rokk-slæda
inn á sviðið. Það var rosa töff. En
vandinn var sá að þá var pappi
á gólfinu til að verja glansdúk á
sviðinu. En þegar ég ætlaði að
reyna þetta þegar búið var að taka
Á handahlaupum inn á sviðið á ítölsku jólahjóli
Gissur Páll
Gissurarson
gerði sér lítið
fyrir og snaraði
og staðfærði í
ítalskt erindi af
klassíska smell-
inum Jólahjól.
mynd/mummi Lú /
AnítA ELdjárn
20 Lífið 20. desember 2022 ÞRIÐJUDAGURFréttablaðiðLífIÐ Fréttablaðið 20. desember 2022 ÞRIÐJUDAGUR