Fréttablaðið - 20.12.2022, Side 30

Fréttablaðið - 20.12.2022, Side 30
Mér finnst ég eiga tilfinningalegt sam- band við jökla og fjöll. Laufey Elíasdóttir AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 PINTO U-sófi með vinstri eða hægri tungu. Koníakslitað Kentucky bonded leður. 349 x 206 x 85 cm. 349.990 kr. 419.990 kr. SPARAÐU 70.000 KR. AFGREIÐSLUTÍMI NÆSTU DAGA 20. DES. ÞRIÐJUDAGUR 11–19 21. DES. MIÐVIKUDAGUR 11–19 22. DES. FIMMTUDAGUR 11–19 23. DES. FÖSTUDAGUR 11–20 24. DES. LAUGARDAGUR 10–13 25. DES. JÓLADAGUR LOKAÐ 26. DES. 2. Í JÓLUM LOKAÐ 27. DES. ÞRIÐJUDAGUR 11–18 ECLIPSE Borðstofuborð, svartur askur. Stækkanlegt. 200 x 110 x 77 cm. 249.990 kr. 279.990 kr. SPARAÐU 30.000 KR. LUCIA Hornsófi, hægra eða vinstra horn. 310 x 204 x 81 cm. 469.990 kr. 569.990 kr. SPARAÐU 100.000 KR. ONTARIO Borðstofustóll, grár eða drapplitaður. 26.990 kr. 33.990 kr. SPARAÐU 7.000 KR. CRESTON Borðstofustóll, ýmsir litir. 31.990 kr. 39.990 kr. SPARAÐU 8.000 KR. MATIS U-sófi með hægri eða vinstri tungu. 317 x 186 x 78 cm. 229.990 kr. 279.990 kr. SPARAÐU 50.000 KR. Hönnuðurinn María Erics- dóttir Panduro og Laufey Elíasdóttir ljósmyndari standa fyrir prentseríu sem kallast Takk, jöklar. Þær vinna grafíkverk upp úr öllum jöklum á Íslandi út frá með- vitund um aðsteðjandi ógn vegna hnattrænnar hlýnunar. ninarichter@frettabladid.is „María var að vinna fyrir systur mína fyrir rúmlega tíu árum. Þar kynntumst við,“ segir Laufey Elías- dóttir um aðdraganda verkefnis- ins. „Svo kemur María í heimsókn til mín og langar í samstarf. Hún sér Snæfellsjökul, orginalinn, uppi á vegg hjá mér og heillast svona af honum. Við ákváðum að fara af stað með jöklaverkefni og búa til grafík úr ljósmyndum. Við erum búnar að mynda Eiríksjökul en ætlum að mynda f leiri jökla. Sá eini sem er tilbúinn er Snæfellsjökull,“ segir hún. Ljósmyndin sem María sá á veggnum hjá Laufeyju var tekin af Snæfellsjökli á Djúpalónssandi í nóvember 2017. „Mér finnst ég eiga tilfinninga- legt samband við jökla og fjöll. Mér finnst erfitt að vita af hlýnun jarðar og að jöklarnir okkar séu að bráðna og hverfa, hægt og rólega. Mér finnst mikilvægt að tengjast. Það er ein- hver náttúrutenging,“ segir Laufey sem segist fara mikið í sjóinn og sækja þangað kraft. Hún segir mikil- vægt að anda inn í hjartað til að við- halda umræddri tengingu. Hissa yfir áhrifunum „Ég var hissa þegar ég sá jökla- myndina hjá Laufeyju,“ segir María. „Mér fannst þetta svo f lott og var hissa yfir hvað þetta hafði mikil áhrif á mig. Mér finnast fjöll og jöklar klisju kennd, eins og sólar- lag. Ég er hönnuður og hugsa svo mikið visjúal. Ég vil alls ekki hafa sólarlagsmynd í kringum mig,“ segir María og hlær. Hún tekur þó fram að hún eigi mynd af Heklu sem hún fann á nytjamarkaði, sem tekin var fyrir mörgum árum. „Hún er mislituð og hefur furðu mikil áhrif á mig. Ég heillast mikið af Heklu. En mér fannst þetta skemmtilegt verkefni, að reyna að sjá jökla í öðru ljósi, sérstaklega út af hlýnun jarðar. Þó að ég færi inn í verkefnið með þetta markmið er ég samt hissa yfir hvað það hefur verið skemmtilegt, og hvað ég hlakka mikið til að vera í kringum þessa jökla,“ segir hönn- uðurinn. María segist fá mikið út úr því að ferðast í kringum Eiríks- jökul og bætir því við að hún hafi aldrei keyrt í kringum hann eða upp að honum áður. Skemmtilegt hafi verið að búa til verk af jökli sem hana langaði að horfa á inni í stofu. „Litirnir hjálpa líka. Svo er gaman að blanda tegund af mynd af náttúru við abstrakt list. Ég er ánægð með hvernig það kom út,“ segir María. Þær stefna á að vinna myndir af öllum jöklum og síðastur verður Ok, jökullinn sem nú er horfinn. „Við endum á honum. Við stefnum á þrjú til fimm ár til að klára þetta allt. Við ætlum að fara af stað í janúar, keyra inn á Kjöl og taka Langjökul. Svo þurfum við að fara vestur – og út um allt,“ segir María. „Hugsunin er líka að mynda jöklana alltaf í ljósa- skiptunum. Þegar maður gerir það verður myndin svona blá sem er mjög heillandi,“ segir María. Myndin af Snæfellsjökli hangir uppi í Kaffifélaginu á Skólavörðu- stíg. n Allir Íslands jöklar verða prentuð grafíklistaverk Laufey Elíasdóttir og María Panduro Ericsdóttir heillast af jöklum og lyfta þeim í listinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRyGGUR ARI ninarichter@frettabladid.is Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, hefur haft í nógu að snúast á aðventunni. Í Mosfellskirkju í kvöld klukkan 20 heldur hún síðustu tónleikana fyrir jól undir yfirskriftinni Diddú og drengirnir, en umræddir drengir eru blásarasextett sem starfað hefur með söngkonunni í aldarfjórðung. „Við höfum gert þetta árlega og Mosfellskirkja hefur verið okkar heimahöfn öll árin. Við höfum farið víða,“ segir Diddú létt í bragði. Vegna 25 ára samstarfsafmælis hafa Diddú og drengirnir leikið fleiri tón- leika á þessu ári en vanalega. „Við erum með mjög fjölbreyti- legt prógramm. Þetta er alltaf rosa- lega notaleg stemning í sveitinni. Það er bara hægt að kaupa miða við innganginn. Við höfum þetta sveita- legt og heimilislegt,“ segir Diddú. „Við syngjum íslensk og ítölsk og frönsk jólalög. Þetta er mjög jólalegt og alþjóðlegt prógramm sem við erum með. Svo syngja allir saman í lokin, Heims um ból,“ segir hún. Er Diddú búin að undirbúa jólin 2022? „Nei, það er svo erilsamt alla þessa aðventu að ég hef ekki komist í það ennþá,“ segir hún. „Ég fæ alltaf alla heim á aðfanga- dag og er að dúlla í eldhúsinu allan daginn. Þess vegna hef ég ekki tekið að mér söng á aðfangadag. Ég verð í faðmi fjölskyldunnar.“ n Diddú og drengirnir í aldarfjórðung Diddú slær upp tónleikum í Mosfells- kirkju í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN 22 Lífið 20. desember 2022 FréttAblAðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.