Kirkjublaðið - 22.05.1944, Blaðsíða 2

Kirkjublaðið - 22.05.1944, Blaðsíða 2
1 KIRKJUBLAÐI0 Lýð veldi á Islandi Viðhorf kirkjunnar kemur út hálfsmánaðarlega, ca. 25 blöð á ári. Auk þess vandað og stórt jólahefti. Verð kr. 15,00 árg. Nýir áskrifendur fá hina prýðilegu jólabók blaðsins 1943 í kaupbæti. Útgefandi og ábyrgðarmaður: Sigurgeir Sigurðsson, biskup. Utanáskrift blaðsins er: KIRKJUBLAÐIÐ Reykjavík. Pósthólf 532. Tekið á móti áskrifendum í síma 5015 frá kl. 10—12 og 1—5 e. h. ísafoldarprentsmiðja h.f. B Y G G Ð A- ANNÁLA R Á síðustu árum hefir vaknað mik- ill og lofsverður áhugi á söguritun héraða landsins. Ýmsar ágætar hér- aðslýsingar og héraðssögur hafa þegar verið gefnar út, og enn fleiri eru í undirbúningi. í Reykjavík hafa verið stofnuð mörg félög þeirra manna, sem ætt- aðir eru og upprunnir úr sömu byggð eða sýslu. Þessi félög hafa það markmið bæði að. auka kynn- ingu þeirra samsýslunga, sem í höf- uðstaðnum dvelja, og einnig og ekki síður hitt, að viðhalda tengslunum við átthaga sína og æskubyggð og efla velferð hennar og gengi. Eitt af því, sem þessi félög hafa tekið sér fyrir hendur, er að leita samvinnu við sýslunefndir og hreppsnefndir heima fyrir um öflun hvers konar gagna og fróðleiks við- víkjandi hlutaðeigandi byggðarlagi, sögu þess, menningu og staðháttum, með það fyrir augum, að samdar verði og gefnar út ítarlegar héraðs- sögur og héraðslýsingar. í mörgum sýslum landsins miðar þessu þarfa og ágæta verki vel á- fram, og má vænta þess, að innan tiltölulega fárra ára verði þjóðin bú- in að eignast héraðssögur úr öllum byggðum landsins, og er óþarft að fara um það mörgum orðum, hvilík- ur fengur er í slíkum ritum. Þeir, sem að þessum verkum hafa unnið og eru að vinna nú, munu allir hafa komizt að sorglegri raun um það, hversu örðugt er að afla hinna nauðsynlegustu gagna til þess að geta skrifað slíkar héraðssögur. Heimildirnar eru af skornum skammti,, dreifðar víðs vegar í bók- um, blöðum, skjölum og handritum. Sumt er þetta meira og minna óáreiðanlegt og úr lagi fært, og víða hljóta að verða stórar eyður í sög- una, af því að heimildir vantar með öllu um viss tímabil. Allir munu vera á einu máli um það, að með ritun héraðssagnanna er verið að vinna þjóðhollt verk og þarft, og þeim bera verðugar þakkir, sem til þess leggja fram krafta og fé. En jafnframt því að safna forn- um fróðleik um lífið og starfið í hin- um dreifðu byggðum landsins, þurf- um við, ef vel á að vera, jafnframt að sjá um það, að það sem nú er að gerast, megi einnig geymast og varðveitast komandi kynslóðum ó- brjálað og í því formi, að sæmilega aðgengilegt megi teljast, þegar fræðimenn framtíðarinnar taka að skrá héraðssögur nútímans, sem þá verður orðinn að fjarlægri fortíð. Ég hefi stundum verið að hugsa EINAR JONSSON myndhöggvari Sjá grein um hann á næstu síðu. um það, hvílík ómetanleg gullnáma það myndi vera fyrir þá, sem nú eru að skrá sögur héraðanna, ef áreiðan- legir annálar væru nú fyrir hendi í hverri sveit, þar sem skráð hefði verið jafnóðum allt það markverð- asta, er í sveitinni hefði borið við, jafnvei þótt þeir annálar næðu ekki nema 50—100 ár aftur í tímann. Og því ættum við þá ekki að skapa slíka gullnámu handa sagn- fræðingum framtíðarinnar ? Hvernig litist ykkur á, að allar sveita- og bæjarstjórnir á landinu bindust um það samtökum nú, á þessum merki- legu tímamótum í sögu þjóðarinnar, er lýðveldi verður stofnað hér á ný, að gangast fyrir því, að í hverri sveit og hverjum kaupstað verði hafið að rita árlegan annál byggðar- innar, þar sem alls þess er getið, er markverðast hefir skeð á árinu og byggðina varðar? í slíkum annál skyldi geta um af- komu atvinnuvega, verðlag og verzl- un og annað slíkt, er máli þætti skipta. Þar væri getið barnsfæðinga, giftinga, hverjir burt hefðu flutt eða að komið. Þar væru skráð mannalát og slysfarir og með hverj- um atvikum að hefðu borið. Einnig mætti skrá stuttorða lýsingu og æfi- ágrip þeirra, er látizt hefðu. Þá skyldi getið allra hinna stærri fé- lagslegra framkvæmda, og yfirleitt engu því sleppt, er markvert gæti talizt fyrir sögu sveitarinnar. Prestar gætu víða verið heppilegir til þess að rita slíka annála í sókn- um sínum, og sjálfsagt væri að þeir, ásamt viðkomandi hreppstjóra eða bæjarstjóra, undirrituðu annál hvers árs og vottuðu þannig að rétt væri hermt. Ég er ekki í vafa um, að slíkir annálar sem þessir, mundu mjög fljótlega verða handhæg heimild fyr- ir þá, sem kynnast vildu sögu sveit- ar sinnar, því það er alkunna, að jafnvel um ýmsa þá atburði, sem gerzt hafa á landi hér fyrir 10 árum eða svo, er nú erfitt að fá óyggjandi og sannar heimildir. Og fyrir sagn- fræðinga framtíðarinnar verða svona annálar ómetanlegur fjár- sjóður. Árlegur kostnaður við samningu annálanna verður hverfandi lítill, og það litla fé mun áreiðanlega bera mikla vexti og margfaldast að gildi eftir því sem tímar líða fram. S. V. fíiskup kominn heim Biskupinn er nú fyrir skömmu kominn heim heilu og höldnu ér för sinni til Kanada og Bandaríkjanna. Átti hann tal við blaðamenn á heim- ili sínu stuttu seinna og drap þar á það markverðasta um för sína. Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, fór biskupinn vestur um haf í febrúarmánuði síðastliðn- um til þess að sitja 25 ára afmælis- hátíð Þjóðræknisfélagsins, sem full- trúi ríkisstjórnarinnar. Eftir afmælishátíðina ferðaðist hann um allar helztu Islendinga- byggðir vestra; fór meðal annars vestur á Kyrrahafsströnd og allt suður til Kaliforníu. Mun hann hafa flutt rúmlega 50 erindi, predikanir og ræður á þessu ferðalagi, bæði fyrir íslenzkum og amerískum til- heyrendum. Biskupinn lætur yfirleitt prýði- lega af för sinni, þó að dálítið væri hún erfið og þreytandi á stundum. Voru viðtökurnar hvarvetna hinar ástúðlegustu, og létu menn víða í ljós sérstakt þakklæti sitt til ríkis- stjórnarinnar hér fyrir að hafa sent þennan fulltrúa sinn, þjóðarinnar og kirkjunnar í heimsókn yfir hafið. Alveg sérstaklega gladdi það bisk- upinn, að finna þá hlýju, ástúð og tryggð, sem Vestur-íslendingar hvarvetna ala í brjósti til heima- landsins og alls þess, sem íslenzkt er. Allir báðu þeir að heilsa heim, heilsa kunningjum, ættingjum og vinum — og heilsa íslandi, móður- og minningalandinu, vöfðu æfintýra- ljóma og seiðandi fegurð og tign, norður í Atlantsálum. Biskupinn var mjög hugfanginn af Ameríku, þessum frjóu löndum Það er alkunna að í þeim löndum. þar sem Guðs kristni skipar öndvegi trúarinnar, koma lang flestir safnaðarnýliðanna frá sunnudagaskólunum. Þetta fyrirbrigði 'er meira að segja mjög áberandi í Japan, þótt kristindómurinn sé þar ekki mestu ráðandi. í Japan bætast árlega við söfnuðinn nær 20.000 skírnarhvítvoðungar, og meira en 50 hundraðshlutar þeirra koma frá sunnudagaskólunum, eða hafa sótt þá lengur eða skemur. Fyrir skömnlu hófst gegnsýrður efnishyggjuháskóli í Tokíó, sem ekki átti snefil af kristilegum lífsskoðunum í fór- um sínum, handa um það að kynna sér áhuga stúdentanna fyrir trúarbrögðum. Skólameist- aranum varð það mæðulegt undr- unarefni, að við rannsókn þessa kom í ljós, að meiri hluti há- skólamanna höfðu mikinn áhuga á kristindómi. Aðalorsökina til þessarar kristindómskenndar mátti rekja til áhrifanna frá sunnudagaskólunum. Þjóðkirkja íslands fagnar þeim einhug, sem ríkir meðal ríkisstjórn- ar fslands og allra stjómmálaflokka landsins um lausn sjálfstæðismáls- ins og stofnun lýðveldis á íslandi eigi síðar en 17. júní næstkomandi og væntir, að þjóðin einnig sýni fag- urlega einhug sinn við atkvæða- greiðsluna hinn 20.-—23. maí n. k. í því sambandi vil ég minna á það, að margir hinna íslenzku presta hafa jafnan tekið virkan þátt í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar frá upp- mikillar víðáttu og ótæmandi mögu- leika og f jölbreytni. Hann dáðist að tækni, framförum og menningu þessara ungu ríkja, sem sameina í undursamlega eining hin ólíkustu þjóðerríi, f jarskyldar tungur, háttu, siðu og menning. Hann kvaðst hvarvetna hafa mætt hinum alúðlegustu og hlýjustu við- tökum, og það hefði glatt sig að finna, hve Ameríkumenn bera hlýj- an hug til íslands og voru fúsir að fræðast bæði um land og þjóð. Töldu þeir Vestur-íslendinga jafnan hafa reynzt hina nýtustu og ágætustu þegna, er hefðu skarað fram úr öðr- um á mörgum sviðum, og létu í ljós þá ósk og von, að vaxandi samskipti, samúð og skilningur mætti takast með Bandaríkjaþjóðinni og íslend- ingum, báðum aðilum til efnalegra og menningarlegra hagsbóta. Má fullyrða, að þessi för biskups- ins hafi orðið til þess að auka vinar- hug Bandaríkjaþjóðarinnar til ís- lendinga, jafnframt því sem hún hefir enn treyst vináttuböndin milli íslendinga sjálfra beggja megin hafsins. Sökum áhrifa frá Norður- álfu-guðfræðinni, hafa á síðari tímum komið fram nokkrir Japanprestar, sem hafa tekið upp á því að loka augunum fyr- ir gildi sunnudagaskólafræðsl- unnar og telja hana ekki á marga fiska. ’Halda þeir því fram, að hinn sanni kristindóm- ur færist fyrst í aukana við vakningarboðun. Ég get aldrei fallist á að trú- arbragðafræðsla sé andvíg vakn- ingarstarfi. Mín persónulega reynsla er sú, að ég snérist tii kristinnar trúar, þegar ég var á 14. árinu, þá félagi í biblíu- námsflokki, er kom saman að eins einu sinni á viku. Ég var skírður þegar ég var 15 ára gamall. Og þá fræðslu og full- vissu um Krist, sem ég átti þá, hana á eg í öllum aðalatriðum sunnudagaskólanum að þakka. Þess vegna hefi ég sterka trú á því, að unnt sé að leiðbeina ungum sveinum og meyjum til Krists' með fræðslu þeirri, sem þau fá í sunnudagaskólunum. hafi. Jafnframt hafa prestarnir um aldir með starfi sínu, þar á meðal starfinu í þágu þjóðlegrar fræðslu og með söfnun og varðveizlu þjóð- legra fræða, átt sinn mikilvæga þátt í því, að varðveita tungu, sögu og menning þjóðarinnar, en það verða jafnan að vera þeir traustu horn- steinar, er frelsiskröfur sérhverrar þjóðar hljóta að verulegu leyti að byggjast á. Má hiklaust vænta þess, að hin íslenzka prestastétt muni ein- huga styðja að almennri þátttöku þjóðarinnar í þeirri atkvæða- greiðslu, sem í hönd fer, og að þeir haldi áfram að vera verðir hinna þjóðlegu verðmæta. En jafnframt því að fagna endan- legu fullveldi ríkisins vil ég benda á, að kirkjan lítur svo á, að fengnu frelsi fylgi ekki að eins dýrmæt rétt- indi, heldur einnig mikilvægar skyldur, sem þjóðin öll verði að rækja, svo frelsið megi verða henni að fullum notum og til varanlegrar blessunar. Hið innra frelsi, þroski, göfgi og trú einstaklinganna sjálfra er ófrá- víkjanlegt skilyrði þess, að hið stjórnarfarslega frelsi fái notið sín og þjóðin verði farsæl og langlíf í landinu. í þeirri von og trú, að hið ytra og innra frelsi megi haldast í hendur — halda vörð um þjóð og land — bið ég vorn himneska föður að styrkja og blessa þjóðina, er hún nú stígur hið örlagaríka, langþráða lokaspor í aldalangri baráttu sinni fyrir fullri endurheimt frelsis síns og sjálf- stæðis. Reykjavík, 17. maí 1944. Ég hefi sannfærst um það og sannreynt, eftir 26 ára starf í skuggahverfum stórborganna, að þeir sem bezt studdu þetta um- bótastarf kirkjunnar í þessum sóðabælum voru mennirnir, sem höfðu fengið fræðslu í sunnu- dagaskólunum og síðan hlotið skírn. Án sunnudagaskóla eða trúarbragðafræðslu er alómögu- legt að fá góða og örugga fé- laga, sem síðar eiga að bera uppi samkomurnar í verka- mannahverfum iðnaðarborg- anna. Þegar ég byrjaði kristn- unarstarf mitt í ódámshverfun- um árið 1909, réði vinur minn, Hachihama prestur, mér til þess að reyna að frelsa börnin á þess- um hörmunarsvæðum á undan hinum fullorðnu. En ég hugsaði sem svo, að ef ég eyddi meiri tíma börnunum til handa en fullorðna fólkinu, yrði ég að eiga það á hættu að verða að bíða minnst 10 eða 15 ár, þang- að til að ég gæti stofnað söfnuð í hverfinu. Eg reyndi að koma upp góðum söfnuði með því að koma drykkjurútum, slagsmála- hundum og alls kyns bófum til að sjá að sér og iðrast, og ég hafði mikinn áhuga fyrir þessu og lagði í það mikla vinnu og fyrirhöfn. En þegar ég hafði haldið þessu áfi’am í 26 ár, varð ég að viðurkenna, að börnin í skuggahverfinu urðu morðingj- S. V. Sigurgeir Sigurðsson. T. KAGAWA: Sumiudagaskólarnir Þýðing þeirra og gildi

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.