Borgarsýn - 2018, Síða 2

Borgarsýn - 2018, Síða 2
Borgarsýn 21 2 Leiðari Inngangur Í Reykjavík stendur yfir mikið umbreyt­ ingarskeið og víðsvegar má byggingar rísa og götur sem taka á sig nýja mynd. Það sem er kannski minna sýnilegt en þeim mun mikilvægara, er að flest öll umbreytingarskref eru tekin í þágu betra umhverfis enda ætlar Reykjavíkurborg að vera orðin kolefnishlutlaus árið 2040. Þéttari byggð ýtir undir vistvænar sam­ göngur, blönduð byggð tryggir atvinnu­ tæki færi og þjónustu í göngufæri og umbreyt ing gatna er gjarnan til að bæta aðstæður gangandi og hjólandi. Í inn­ viðum nýrra uppbyggingasvæða er lögð áhersla á blágrænar ofanvatnslausnir sem felast í því að veita ofanvatni á náttúru legan hátt niður í jarðveginn í stað þess að veita því í hefðbundin frá veitu kerfi. Þannig tekst að viðhalda vist vænum vatnabúskap og í leiðinni er hægt að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika. Víða er gert ráð fyrir djúpgámum sem munu bæta aðstöðu til flokkunar úrgangs enda er reglan er sú að þegar fjár festa á í innviðum á nýjum þétt inga svæðum skal leggja áherslu á lausnir sem eru góðar fyrir umhverfið og þar af leiðandi fyrir borgarbúa. Sem dæmi má nefna að megin fors enda spenn andi ramma­ skipu lags fyrir Skeif una er að það liggur við svo kallaðan þétt ingar ás frá vestri til austurs, sem Borg ar lína mun fara um. Borg ar línan byggir á hugmyndum um hágæða hrað vagna kerfi um allt höfuð­ borgar svæðið en samgöngumiðuð þróun borga byggir á því að þéttast sé byggt þar almenningssamgöngur eru hvað öflugastar. Í úthverfum borgarinnar er einnig tölu­ vert svigrúm fyrir uppbyggingu og er Hús næði sjálfs eign ar stofn unin Bjarg að hefja byggingu á 155 íbúðum við Móa­ veg í Grafarvogi og einnig er spennandi upp bygg ing í undirbúningi við Tunguháls en þar munu rísa um 200 íbúðir, þar af tæplega helmingur á vegum Bjargs. Framkvæmdir og viðhald er stór hluti af starfsemi umhverfis­og skipulagssviðs og það er sérstakt ánægjuefni að nú í byrjun apríl eigi að taka í notkun glæsi­ lega sundlaug við Klettaskóla. Sund­ laugin er þjálfunar­og kennslulaug sem Mannlíf er í nýrri viðbyggingu norðvestan við núver andi skóla og mun bæta aðstæður nem enda til muna. Á síðasta ári voru lagðir 7.350 m2 af göngu­ og hjólastígum í borginni og í rúm lega í helming þeirra var notað endur unnið malbik. En tilraunir hafa verið gerðar með slíkt um árbil eins og lesa má nánar um í blaðinu. Gaman er að segja frá því að um leið og vora tekur sjáum við gríðarlega aukningu á notkun hjólastíganna í borginni og má í því samhengi nefna að mánudaginn 26. febrúar s.l. mældust 211 reiðhjól á stígnum í Nauthólsvík en daginn eftir voru 411 á reiðhjólum. Tvöföldun varð einnig á Geirsnefi, umferðin fór úr 93 hjólum í 187 og aukningin í Elliðaárdal var úr 105 í 172 hjól 27. febrúar. Til sendur að setja upp fleiri teljara á þessu ári til að safna gögnum. Þetta eru góð tíðindi enda mikið lýðheilsu­ og umhverfis mál að nota vistvæna ferða máta. Lykilatriðið í að ná Reykjavík kol efnis hlut lausri árið 2040 er einmitt að auka hlut vistvænna samgangna. Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Umhverfis­ og skipulagssvið Reykja­ víkur borgar hefur undanfarin ár staðið fyrir fundarröðinni Borgin, heim kynni okkar, um umhverfis­ og skipulags mál. Fundirnir eru haldnir á haust­ og vor­ misseri á Kjarvalsstöðum á Klambra túni og hafa alla tíð verið mjög vel sóttir af almenningi og fagfólki. Heiti fundanna hafa verið eftirfarandi: 1. Hver á borgina? 10. október 2014 2. Er borgin heilsusamleg? 12. nóvember 2014. 3. Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu? 13. janúar 2015. Kjarvalsstaðfundir Umhverfis- og skipulagssviðs 4. Hver eru áhrif borgarumhverfis á hamingju? 10. febrúar 2015. 5. Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi? 10. mars 2015. 6. Er miðborgin fyrir ferðamenn, íbúa eða alla? 13. október 2015. 7. Vinsamleg borg fyrir börn og unglinga. 10. nóvember 2015. 8. Loftslagsmál - hvað getum við gert? 9. febrúar 2016. 9. Menningararfurinn í brennidepli. 15. mars 2016. 10. Fjölmenning í ljósi umhverfis og skipulags. 12. apríl 2016. 11. Fagurfræðin í borgar skipu- laginu. 11.október 2016. Umhverfis- og skipu lags svið Reykja víkur- borgar hefur skipu lagt tuttugu umræðu- fundi þar sem til raun gerð til að færa umræðu um skipu lags- og umhverfis mál í vítt og breitt samhengi

x

Borgarsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Borgarsýn
https://timarit.is/publication/1749

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.