Borgarsýn - 2018, Page 3

Borgarsýn - 2018, Page 3
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar 3 út frá skemmtilegum sjónarhornum um brýn efni. Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis­ og skipulagsráðs hefur haft umsjón með fundunum ásamt Gunnari Hersveini verk efnis stjóra miðlunar fyrir hönd á umhverfis­ og skipulagssviðs Reykja­ víkur borgar. Þrír góðir gestir eru á hverjum fundi sem hafa undirbúið sig vel og tekið þátt í því að dýpka umræðuna og finna skemmtilega fleti. Ríkir hugarfar skapandi hugsunar í Reykjavík? Umræðuefni hafa verið af ýmsum toga og ávallt gerð tilraun til skapa breidd. Dæmi um efni er spurningin um hvort Reykjavík sé skapandi borg? Hugtakið sköpun (e. creativity, creative city) hefur notið vinsælda undanfarin ár í borgarumræðu. Andstæðan við skap­ andi borg gæti verið einsleit borg. Eitt einkenni umbreytingar birtist þegar borg gengur sköpuninni á hönd og skapandi greinar á ýmsum sviðum menningar breyta þekktum byggingum í svæði fyrir listir og menningu. Nýlegt dæmi um það er Marshall húsið við Grandargarð sem var síldarbræðsla í hálfa öld en verður menningar­ og myndlistarmiðstöð. 12. Ríkir hugarfar sköpunar í Reykjavík? 15. nóvember 2016. 13. Útivist í borgarumhverfi. 17. janúar 2017. 14. Borg gangandi vegfarenda. 14. febrúar 2017. 15. Borg hjólandi vegfarenda. 14. mars 2017. 16. Til hvers eru borgir? 10. október 2017. 17. Framtíðarborgin Reykjavík. 14. nóv 2017. 18. Snjallborgin Reykjavík. 16. janúar 2018. 19. Ásýnd borgar í litum, ljósum og listum. 13. febrúar 2018 . 20. Til hvers er skipulag? 13. mars 2018. Markmiðið með fundunum er að færa umræðu um skipulags­ og umhverfismál í vítt og breitt samhengi. Leitað er eftir gagnrýnni og hressilegri umræðu þar sem ólík sjónarmið og reynsluheimar mætast á málefnalegum grunni. Ekki er boðið upp á átök milli andstæðra sjónar miða heldur felst aðferðin í því að greina og opna fyrir möguleika og að fólk haldi áfram að hugsa málin eftir fundina. Þótt kærkomið sé að heyra ögrandi sjónarmið. Rætt er á mannamáli Frá einum fundinum á Kjarvalsstöðum Uppbygging borgarhverfa og þétting byggðar veltur upp tækifærum og áskorunum í þessum efnum. Nefna má að samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur ber að stuðla að skapandi og ögrandi umhverfi og auka veg allra skapandi greina við mótun umhverfis. Það eru ekki bara miðborgir sem geta verið skapandi heldur einnig hverfin eins og til dæmis Breiðholtið þar sem list í opinberu rými hefur breiðst út t.a.m. á blokkarveggjum. Ef til vill laðar það að sér skapandi fólk sem heldur áfram að móta andrúmsloft, umhverfi og menningu staðarins. Segja má að tilraun standi yfir til að gera Breiðholt að skapandi stað. Umhverfis­ og skipulagssvið þakkar öllum gestum sem hafa lagt fram krafta sína og öllum borgarbúum og öðrum gestum sem hafa komið á fundina. Hægt er að horfa á upptökur af umræðufundunum á síðunni netsamfelag.is

x

Borgarsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Borgarsýn
https://timarit.is/publication/1749

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.