Borgarsýn - 2018, Qupperneq 6

Borgarsýn - 2018, Qupperneq 6
Borgarsýn 21 6 Skipulag þar sem heimilt er að byggja allt að 200 ibúðir á reitnum og gert er ráð fyrir byggðin geti verið 2–5 hæðir. Markmið breytingartillögu er að mæta aukinni eftirspurn eftir íbúðarhús næði, stuðla að fjölbreyttara húsnæðis fram­ boði, bæta ásýnd svæðisins og styrkja Árbæinn sem lífvænlegt hverfi til lengri tíma. Íbúðirnar eru ætlaðar fyrir almenn­ an mar kmið og einnig til úthlutanar til hús næðis félaga án hagn aðar sjónar miða í samræmi við húsnæðis stefnu borg­ arinnar. Í samræmi við stefnu í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010–2030 um þétt ingu byggðar og til þess að bregðast við hús næðis skorti á höfuð borgar svæð inu var ákveðið að nýta land spildu á milli Bæjarháls og Hraun bæjar undir íbúðar­ byggð. Vilji Reykja víkur borgar lá fyrir um að breyta landnotkunarskilgreiningu úr opnu svæði í íbúðarbyggð og hefja gerð nýs deiliskipulags með það fyrir augum að fjölga íbúðum í hverfinu. Í upphafi árs 2017 efndi Reykjavíkurborg til hugmyndarleitar fyrir svæðið og var tillaga A2F arkitekta valin til frekari útfærslu. Deiliskipulagstillagan styrkir svæðið með fjölgun íbúða til samræmis við stefnu um þéttingu byggðar í aðalskipulagi. Með tillögunni fjölgar íbúum á svæðinu sem stuðlar að betri nýtingu á núver­ andi innviðum borgarinnar og styrkir verslun á svæðinu. Staðsetning byggð­ ar innar er góð m.t.t. opinberrar þjón­ ustu og tengist vel helstu göngu­ og hjóla leiðum innan borgarinnar auk þess að almenningssamgöngur eru góðar í Fleiri íbúðir í Árbæinn Skipulagsuppdráttur, A2F arkitektar Í meginatriðum felst skipulag á hagnýtingu lóðar- innar við Tungu- háls úr opnu svæði í íbúðarbyggð og fjölgun íbúða Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir svæði við Tunguháls sem kallað hefur verið Hraunbær – Bæjarháls var í auglýsingu frá 30. janúar – 13. mars sl. Samhliða var auglýst breyting á landnotkun í aðal skipulagi Reykjavíkur 2010–2030

x

Borgarsýn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Borgarsýn
https://timarit.is/publication/1749

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.