Borgarsýn - 2018, Blaðsíða 8
Borgarsýn 21 8
Grænt bókhald
fyrir alla borgina
Umhverfi
Unnið var með hugbúnaðarfyrirtækinu
Klöppum að því að ná utan um magn
tölur en gögnum er streymt beint frá
birgjum í gegnum upplýsingagátt. Losun
gróðurhúsalofttegunda er reiknuð í
samræmi við aðferðafræði Green house
Gas Protocol, sem fylgt er af aðild ar
fyrir tækjum loftslagssamnings Reykja
víkur borgar og Festu.
Birting niðurstaðna verður í gegnum töl
fræðivef Reykjavíkurborgar og í gegnum
sér staka umhverfisskýrslu sem verður
birt samhliða fjárhagsuppgjöri hvers
árs. Helstu niðurstöður 2015–2016 eru
að notkun á eldsneyti jókst lítillega milli
ára. Aukning er helst í metani á kostnað
bensíns og í samræmi við það minnkar
losun gróðurhúsalofttegunda vegna
eldsneytis notkunar.
Grænt bókhald Reykjavíkurborgar er nú
sett fram í fyrsta sinn fyrir alla borg ina.
Það var þróað hjá umhverfis og skipu
lags sviði meðal annars út frá umhverfis
stjórn un ar kerfi sviðsins sam kvæmt
ISO 14001 staðlinum. Tekið er mið af
umhverfis og auðlindastefnu borgar
innar sem finna má í Aðal skipulagi
Reykjavikur.
Kolefnisleysi árið 2040
Umhverfisþættir sem settir eru fram í
grænu bókhaldi Reykjavíkurborgar eru
elds neyti, rafmagn og úrgangur. Bók
haldið nær yfir starfsemi borgarinnar í
heild sinni og tekur meðal annars mið af
lofts lags mark miðum sem er kolefnis hlut
leysi árið 2040.
Hlutfall vistvænna ökutækja í rekstri
borgarinnar lækkar á milli ára. Raf
magns notkun stendur í stað en mikil
aukning á skráðri losun vegna raf
magns notkunar skýrist af sölu á upp
runa ábyrgðum og sést einnig á hlutfalli
endur nýjan legrar orku sem fer niður
um 50%. Úrgangur eykst en flokkaður
úrgangur er meiri og er því losun vegna
úrgangs minni en ella auk þess sem
kostnaður pr. tonn lækkar á milli ára.
Vistvæn ökutæki
Nefna má sem dæmi úr bókhaldinu að
hlutfall vistvænna ökutækja á vegum
Reykjavíkurborgar árið 2016 var 82% en
bifreiðar sem geta bæði notað metan
og bensín eru taldar visthæfar þó að
strangt til tekið sé ekki hægt að kalla
þá vistvæna nema eingöngu sé notað
metan. Í umhverfis og auðlindastefnu
sem sett var 2013 var markmiðið að
75% bílaflotans væri visthæfur og er því
mark miði náð. Hins vegar þarf hlut
fall visthæfra bíla að vera orðið 100%
fyrir árið 2025 til að uppfylla mark mið
lofts lags stefnu frá 2016 um að bílafloti
borgar innar verði án losun gróður húsa
lofttegunda.
Umhverfis- og
skipulagssvið
Reykjavíkurborgar
hefur verið með
grænt bókhald
frá árinu 2013. Nú
hefur bókhaldið
verið tekið upp
fyrir borgina alla
Magn flokkaðs og óflokkaðs úrgangs 2015 og
2016. Óflokkaður úrgangur er almennt sorp og
grófur úrgangur.
3.0000
tonn
2.500
1.500
500
0
1.000
2.000
1.284
2015
Flokkað
Magn úrgangs
Óflokkað Heildarsumma
1.039
2015
2.323
2015
1.662
2016
988
2016
2.650
2016