Borgarsýn - 2018, Blaðsíða 15

Borgarsýn - 2018, Blaðsíða 15
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar 15 nemenda kalla á mikinn sveigjanleika varðandi húsnæði, búnað og starfshætti. Líkamleg hreyfing og þjálfun er mikilvæg þessum nemendum og styður við betri námsárangur þeirra. Með sundlaug á staðnum og bættri íþrótta­ og frístundaaðstöðu verður ekki lengur þörf á að aka nemendum bæjarhluta á milli til að sækja þessa þjónustu. Skólinn er staðsettur í grónu hverfi og við hönnunina var reynt að taka tillit til þess eins og kostur var. Allt ytra fyrirkomulag bygginga skólans miðar að því að ásýnd þess gagnvart aðliggjandi byggð sé sem mildust og er hluti viðbyggingarinnar felldur inn í landið. Þannig er íþróttasalurinn niðurgrafinn til hálfs og félagsmiðstöðin byggð inn í landið austan við skólann. Í sumar verður svo unnið við endurgerð og frágang skólalóðarinnar, en lóðin er hönnuð þannig að hún mæti sérstökum þörfum nemenda skólans. Verkefnisstjóri framkvæmdar Einar H. Jónsson Verktakar Ístak hf Suðurverk ehf Hönnun OG Arkitektar VSÓ verkfræðingar Eftirlit Verkfræðistofan Hnit ehf Yffirlitsmynd af framkvæmdum

x

Borgarsýn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Borgarsýn
https://timarit.is/publication/1749

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.