Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2018, Side 5
- 5 -
Ályktanir
samþykktar á Landsfundi
Sjálfsbjargar lsh 2018
Ályktun um ferðaþjónustu fatlaðra
Frá því nýtt fyrirkomulag í ferðaþjónustu fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu var tekið upp hefur ríkt van-
traust af hálfu farþega til ferðaþjónustu fatlaðra.
Fyrir lok árs 2018 þurfa sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu að sýna fram á leiðir til úrbóta sem
beðið hefur verið eftir við skipulag og þjónustu
ferðaþjónustu fatlaðra. Afar mikilvægt er að sveitar-
félögin sýni fram á úrbætur í þessum efnum sem
allra fyrst.
Samkvæmt áliti umboðsmanns Alþingis, liggur
fyrir að öll sveitarfélög þurfi að veita hreyfihöml-
uðum íbúum sínum ferðaþjónustu, líka í hinum
dreifðari byggðum. Landsfundur Sjálfsbjargar
landssambands hreyfihamlaðra haldinn 21. apríl
2018 skorar á þau sveitarfélög sem ekki nú þegar
veita ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk að einhenda sér
í að veita hana, sé eftir henni óskað, enda er hún
lögbundin.
Ályktunin var borin upp til samþykktar og var
hún samþykkt.
Ályktun um kjaramál fatlaðra
Landsfundur Sjálfsbjargar landssambands hreyfi-
hamlaðra haldinn 21. apríl 2018 skorar á ríkisstjórn
Íslands að tryggja fötluðu fólki í landinu full
mannréttindi. Króna á móti krónu skerðing við-
gengst ennþá hjá þeim sem eru á örorkulífeyri. Þá
skerðingu ber að afnema nú þegar. Koma þarf í veg
fyrir að örorka sé ávísun á fátækt.
Samtökin krefjast þess að ríkisstjórnin, sveitarfé-
lögin og atvinnulífið tryggi framboð á hlutastörfum
nú þegar eins og kveðið er á um í stjórnarsáttmála
ríkistjórnarinnar.
Nýtt kerfi utanum örorkulífeyri og hugsanlegt
starfsgetumat verður aldrei skiptimynt fyrir bætt
kjör. Landsfundurinn krefst þess að farið verði í þær
viðræður sem boðaðar hafa verið við forsvarsmenn
öryrkja, en hafa ekki formlega farið af stað ennþá.
Ályktunin var borin upp til samþykktar og var
hún samþykkt.
Ályktun um samning Sameinuðu
þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Landsfundur Sjálfsbjargar harmar að ekki eigi að
fullgilda viðauka við samninginn en hann gerir ráð
fyrir kvörtunarleið til Sameinuðu þjóðanna sem er
nauðsynleg hreyfihömluðu fólki. Skýring stjórnvalda
að viðaukinn hafi ekki verið fullgiltur vegna þess að
hann feli í sér valdaframsal er vafasöm, m.a. í ljósi
þess að ályktun Alþingis gerði ráð fyrir að viðauk-
ann ætti að fullgilda fyrir árslok 2017.
Bergur Þ. Benjamínsson formaður ásamt gullmerkis-
hafanum Ragnari Gunnari Þórhallssyni.
Starfsmenn fundarins önnum kafnir.
María Richter og Þórdís Rún Þórisdóttir
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa
Sigurðardóttir, ávarpar fundinn.
Formaður og fundarstjóri.
Þórdís Rún ritari og Hjörtur
Eysteinsson fundarstjóri.
Þorsteinn Fr. Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri skýrir málin.
Fulltrúar úr Sjálfsbjörg á höfuðborgar svæðinu.
Fylgst með.
Gjaldkeri Sjálfsbjargar, María Óskarsdóttir, með
ýmislegt á prjónunum.
l a n D s f u n D u r