Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2018, Qupperneq 18
- 18 -
Þegar grúskað er í gömlum blöðum Sjálfs-
bjargar er ýmislegt sem vekur athygli og
jafnvel má þar finna atriði sem ekki eru á
allra vitorði í dag. Þannig rákumst við á
smá pistil í blaði Sjálfsbjargar frá árinu 1971
þar sem fjallað er um stofnun Össurar hf.,
sem í dag er eitt stærsta fyrirtæki landsins
og starfar líka á alþjóðlegum vettvangi.
Og viti menn Sjálfsbjörg var þar meðal
stofnenda og fyrirtækið hóf starfsemi sína í
Sjálfsbjargarhúsinu. Til gamans birtum við
hér þennan pistil um stofnunina.
„Á síðastliðnum vetri stofnuðu Sjálfs-
björg landssamband fatlaðra, Samband
íslenskra berklasjúklinga, Styrktarfélag
vangefinna ásamt Össuri Kristinssyni,
gervilimasmið, hlutafélagið Össur. Hlutafé
er kr. 750 þúsund eða kr. 150 þúsund frá
hverjum aðila. Hlutafjárframlag Sjálfs-
bjargar greiðist með húsaleigu. Tilgangur
félagsins er að reka gervilimaverkstæði
og skylda starfsemi. Verkstæðið verður
á jarðhæð í A-álmu (næst Kringlumýrar-
braut) og fær til umráða um það bil 202
m2. Húsnæðið er innréttað samkvæmt
tillögum Össurar Kristinssonar og verður
aðstaðan góð. Gengið er slétt inn frá götu
og einnig er innangengt úr öðrum álmum
hússins, en það er mjög hagkvæmt fyrir þá
íbúa hússins sem þurfa á þjónustu gervi-
limasmiðs að halda. Þarna verða einnig
seld belti fyrir bakveika og „Langers“ inn-
legg í skó. Beltin verða flutt inn frá Svíþjóð
hálfunnin og fullnaðarfrágangur þeirra
síðan unnin eftir máli.
Össur Kristinsson lauk námi í gervilima-
smíði í Svíþjóð á síðastliðnu ári og er mjög
ánægjulegt að fá hann til starfa hingað
heim. Á verkstæðið hefur verið ráðinn Atli
Smári Ingvarsson húsgagnasmiður, Reykja-
vík.“
Við þetta má bæta að umrætt húsnæði
sem Össur hf. byrjaði í er húsnæðið sem
Halaleikhópurinn hefur verið með til afnota
undanfarin ár. Össur hf. hóf síðan formlega
starfsemi 1. október 1971.
Upphaf Össurar hf.
Össur Kristinsson – mynd tekin 1971.
Höfuðstöðvar Össurar hf. hafa aðeins stækkað frá upphafinu í Hátúninu
Viðurkenningar fyrir gott aðgengi sundlauga
Nokkrar viðurkenningar hafa verið veittar fyrir gott aðgengi að sundlaugum í kjölfar ársverkefnis Sjálfsbjargar, „Sundlaugar okkar ALLRA!“
Sundlaugin á Egilsstöðum. Björn Ingimarsson bæjar-
stjóri Fljótsdalshéraðs og Hafsteinn Ólason sundlaugar-
starfsmaður taka við sérstakri viðurkenningu frá Sjálfs-
björgu lsh, sem Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum hlaut
fyrir gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða að sundlauginni
frá hendi Guðna Sigmundssonar formanns Sjálfsbjargar
á Mið-Austurlandi (lengst t.v.).
Ásvallalaug í Hafnarfirði. Hér afhendir Bergur Þorri
Benjamínsson formaður Sjálfsbjargar bæjarstjóra
Hafnarfjarðar og forsvarsmönnum sundlaugar-
innar viðurkenningu fyrir gott aðgengi að sund-
lauginni.