Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2018, Qupperneq 25

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra - 15.05.2018, Qupperneq 25
- 25 - Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar var sett á laggirnar árið 2012. Vefsíða miðstöðv- arinnar hefur frá upphafi verið kjarninn í starfsemi hennar. Á vefsíðunni (www. thekkingarmidstod.is) má finna margvís- legan fróðleik sem gagnast hreyfihömluðu fólki sem og aðilum er tengjast þeim s.s. fagfólki og aðstandendum. Þar má finna upplýsingar um réttindamál, aðgengismál, atriði er tengjast atvinnu og menntun, vel- ferð, tómstundum og fræðslu. Skorað er á lesendur að kíkja á síðuna næst þegar farið er á netið og endilega sendið okkur ábendingar um hvað betur má þar fara og eru allar hugmyndir um áhugavert efni vel- komnar. Þá viljum við sérstaklega benda á myndbönd þar sem hópur hreyfihamlaðra einstaklinga tjá sig um sína fötlun og sín lífsviðhorf. Þetta eru sérlega áhugaverð myndbönd og því um einstaka jafningja- fræðslu að ræða. Hér á eftir er greint lítil- lega frá þessum myndböndum. Svanur Ingvason Svanur Ingvarsson, húsasmiður og kennari, segir frá reynslu sinni af útivist og íþróttum fyrir og eftir mænuskaða. Í myndbandinu segir hann m.a: ,,Það finnst mér tilbreyting, að gera eitthvað annað heldur en að vera í sama hjólastólnum, að fara í önnur tæki og leika sér“ Brandur Karlsson Bjarnason Brandur fjallar um aðdragandann að stofnun Frumbjargar frumkvöðlamið- stöðvar Sjálfsbjargar 2016. Þar segir hann m.a: „Það er gríðarlega mikilvægt að vera með vettvang þar sem þú getur svona fengið að blómstra“. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir Fötlunarlistakonan Kolbrún Dögg sýnir brot úr gjörningnum „Taumhald, tjald og typpi“ sem hún framdi á málþinginu „Sköpun skiptir sköpum“ 4. september 2015. Hún fjallar einnig um aðgengi fatl- aðs fólks að listnámi og mikilvægi þess að hafa NPA (Notendastýrða persónulega aðstoð).  Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Rúnar Björn er formaður NPA miðstöðv- arinnar og segir hér frá því hvernig líf hans snérist við þegar hann fékk Not- endastýrða Persónulega Aðstoð. Helga Magnúsdóttir Hér segir Helga frá reynslu sína af vinnu- markaðnum og mikilvægi þess að vera virkur í samfélaginu. Andri Valgeirsson Hér segir Andri frá þeim viðhorfum sem hann hefur fundið fyrir í samfélaginu og viðhorfi til lífsins. Arna Sigríður Albertsdóttir Arna Sigríður talar hér um mikilvægi hreyfingar og hvað hreyfing hefur gert fyrir hana. Í myndbandinu segir hún m.a: „Í dag verð ég sjaldnar veik og mér líður almennt betur núna heldur en áður en ég byrjaði að æfa mikið“. Þorkell Sigurlaugsson Þorkell ræðir hér um þátttöku hreyfihaml- aðs fólks í lífinu. Þuríður Harpa Sigurðardóttir Þuríður Harpa segir okkur frá hennar reynslu af því að byggja upp sjálfsmynd sína eftir slys. Þorbera Fjölnisdóttir Hér talar Þorbera um sína upplifun og reynslu af fötlun og foreldrahlutverkinu. Eins og áður sagði eru jafningjamynd- böndin vistuð á vefsíðu Þekkingarmið- stöðvar Sjálfsbjargar, www.thekkingarmidstod.is Jafningjamyndbönd Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar

x

Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Klifur : fréttablað Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra
https://timarit.is/publication/1653

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.