Kirkjublaðið - 31.10.1953, Page 5

Kirkjublaðið - 31.10.1953, Page 5
KIRKJUBLAÐIÐ 5 Líkræða... Framh. við útför hans. Það sáu allir, sem biskupsdóm hans þekktu. Svo var hann heill, að ailan feril sinn frá æskuárum og að efstu stund helgaði hann kirkju Krists. Þar fann hann hlutverk- ið, sem honum hafði verið trúað fyrir. Hann leit hvorki til hægri né vinstri eftir öðrum verkefn- um, þótt vafalaust ætti hann þeirra kost. Kirkjan átti hug hans allan og þessvegna var honum trúað fyrir biskupsstafn- um. Þrotlaust vann hann að innri málum hennar, og út á við kom hann fram henni til sæmd- ar. Hann ferðaðist sem fulltrúi þjóðar sinnar og ríkisstjórnar um byggðir Vestur-lslendinga og ávann sér þær vinsældir, að fá munu þess dæmi um aðra menn, ef til eru. Með skeytum, blómaskrúði og kveðjum hafa Vestur-lslendingar sýnt hug sinn yfir hafið heim. í margs- konar félagslífi tók hann þátt og átti samskipti við mikinn fjölda ólíkra manna. Sumum kann að hafa þótt sem þetta hlyti að dreifa starfskröftum hans, en af nánum kynnum full- yrði ég, að allt þetta starf var hann að vinna fyrir kirkjuna. Með einurð sá hann um það, að kirkja íslands gleymdist ekki, þar sem hann var. Kirkjustjórn hans verður hér ekki rakin, eða um einstök af- rek hans talað. Frá því mun kirkjusaga íslands segja á sín- um tíma. Á tveim tungum getur ekki leikið, að með biskupsdómi hans hefst nýr áfangi í sögu kirkju vorrar, sem bar á ýmsan hátt nýjan svip. Það var fjarri skaplyndi hans að ganga að öllu gamlar og troðnar brautir. Og mér er kunnugt um það, að sá blær frjálslyndis, frjálsmann- legrar framkomu og víðsýnis, sem fylgdi honum, vakti athygli erlendra kirkjuhöfðingja, er hann sat fundi þeirra. Um tvo stórbrotna samtíðar- menn á biskupastólum Islend- inga var sagt, að annar þeirra hafi gengið sniðvegu að marki sínu, en hinn gengið eins og björninn beint framan að hverj- um vanda, og hafi þó báðir kom- ið upp á einum stað. Það er auð- sætt, hvorum þessara manna herra Sigurgeir líktist meir í biskupsdómi sínum. Sniðvegu hygg ég að honum hafi ekki ver- ið sýnt um að ganga, en drengi- lega gekk hann beint að erfið- leikunum. Vitanlega urðu marg- ir erfiðleikarnir honum ofjarl- ar. Margar vonir hans brugðust. Margt, sem hann vildi vinna, er óunnið enn. Yfir líkbörum hans, eins og allra látinna hugsjóna- manna, svífa vonir, sem ekki fengu að rætast, vonir, sem verða enn að bíða þess, að verða að veruleika. Enginn hugsjóna- maður hlýtur þá hamingju, að sjá allt rætast, sem hann dreymdi. Með kirkjuna og þjóna hennar vildi hann stefna svo hátt, að ekki gat allt rætzt, sem hann þráði. Það varð honum oft að harmi. „En bak við heilaga harma er himininn altaf blár“, og hinn blái himinn bjartra vona gaf honum altaf nýjan eld, nýjan þrótt til þeirrar baráttu, sem entist honum fram á hinstu stund. Menn voru honum engan veg- inn ævinlega sammála um allt í biskupsstjórn hans. Jafnvel ekki vinir hans. Til þess var hann of djarfur og stundum of berorður. Ef hann hefði kunnað sniðvegu herra Jörundar á Hól- um og viljað ganga þá, hefði margt orðið honum mýkra und- ir fæti. En skapgerð hans var önnur. Hann var alla ævi ungi presturinn, sem lagði fótgang- andi á ófæruveginn út til Bol- ungarvíkur og lítt tjáði að letja. Hann var allra manna ljúf- astur í umgengni við vini sína og sýndi oftast fágætan hæfi- leika til að umgangast hina ólík- ustu menn. Um það bera vott þær stórmiklu vinsældir, er hann aflaði sér á hinum mörgu yfirreiðum sínum, vísitazíum, um prófastsdæmin, en þær rækti hann af svo mikilli kostgæfni, að hann var nú langt kominn með að vísitera landið allt. En jafnhliða þeirri ljúfmennsku, sem hann hlaut ástsældir sínar af, var hann ósveigjanlegur um allt, sem hann taldi máli skipta, og gat verið svo einráður, að vinum hans þótti nóg um. En árekstrarnir komu oftast til af því, að hann elskaði dýpri og helgari ræktarelsku en aðrir menn málefnið, sem honum var hjartfólgnast: málefni kirkj- unnar. Þeir, sem ekki dreymdi drauma hans um framtíðar- kirkjuna, hlutu að misskilja hann og finnast jafnvel fátt til um eldinn, sem í honum brann. Hér var vafalaust hvorttveggja: veikleiki hans og styrkur. Vér komum hingað frá heim- ili hins látna biskups, og þótt þess hafi verið fagurlega minnzt þar, má ekki undan falla að minnast þess einnig hér, hve hamingja hans var stór í heim- ilinu. Biskupsfrúin og börnin hjálpuðust að því, að gera heim- ilið svo úr garði, að ótrúlegt er að nokkurt heimili í höfuðstaðn- um hafi hýst eins ótrúlegan fjölda gesta úr öllum stéttum þjóðfélagsins, sem hús biskups- ins. Og biskupsfrúin gerði meira. Með lífsskilningi sínum, sínu sannkristna hjarta og sinni mildu rósemi, veitti hún hinum örgerða baráttumanni það heim- ilisskjól, sem honum var ómet- anlegt. Fyrir það stendur kirkja íslands í þakkarskuld, sem aldrei verður goldin, við þig, göfuga biskupsfrú. Börnum biskupsins, systur hans, sem dvelur hér, systur í fjarlægð, tengdadætrum hans, sonarbörn- um og ástvinum öllum, vottum vér hjartanlegustu samúð. Vér kveðjum hér í dag biskup Islands. í þessari gömlu kirkju, þar sem hjartsláttur þjóðar- innar hefir heyrst á stærstu augnablikum hennar í meira en hálfa aðra öld, heyrum vér enn í dag hjartaslátt þjóðar, sem harmar biskup sinn og horfir al- varleg á að einu blaði íslenzkrar kirkjusögu er flett. Hér á þess- um stað hefir kirkjan kvatt marga biskupa sína. Síðastur var sunginn til moldar á Hólum, herra Sigurður Stefánsson, en sá hálærði herra, dr. Hannes Finnsson, síðastur í Skálholti, hinum háa stað, sem hófst með vegsemd, en hrópar nú í niður- læging sinni, hvort íslenzk þjóð vilji sæmd sína eða eigi á níu alda afmæli hins fyrsta stóls á Islandi. Síðan hafa biskupar verið kvaddir hér í dómkirkj- unni, og það ber ljóma yfir nöfn þessara manna, þegar þau eru nefnd: Herra Geir Vídalín, herra Steingrímur Jónsson, herra Helgi Thordersen, dr. Pétur Pétursson, herra Hall- grímur Sveinsson, herra Þór- hallur Bjarnarson, dr. Jón Helgason, og nú bætist við: Herra Sigurgeir Sigurðsson. Þegar þessi nöfn eru nefnd, þeirra kirkjuleiðtoga, sem luku vegferðinni og voru kvaddir hér á þessum stað, sjáum vér fyrir oss raðir kynslóðanna, sem koma og fara, „allar sömu ævi- göng“. Svo streymir tímans stóra móða, og í djúpum sínum felur hún örlög einstaklinga og þjóða, þúsund bros og þúsund tár, örlög barnsins jafnt og þess, sem biskupstignina ber. Allt breytist. Nýjar kynslóðir koma með ný lífsviðhorf og nýj- an sið. Hin ytri form falla, kenningar standa ekki í stað. En einn er sá, sem ekki breytist: Hærra og hærra rís Kristur yfir allt þetta hverfula, síbreytilega mannlíf. Vér heyrum, eins og hljómkviðu þúsund radda, nið- inn af öldu aldanna. Hún sogar í djúpið kórkápur kirkjuhöfð- ingjanna og mítur biskupanna felur hún í gleymsku. Sic transit gloria mundi. En hærra og hærra gnæfir krossinn Krists, krossinn, sem næst liggur hj arta þess manns, sem vill vera krist- inn biskup. Og krossinn bendir hærra: Yfir jarðneska kvöl, yfir vonbrigði, sorg og sár, inn í himin Guðs. Þaðan stefnir ljós, það eru líknstafir Guðs, sem lauga í dauðanum, jafnt bisk- upsins brá sem barnsins auga. Dýrð sé góðum Guði í hæstum hæðum. Amen. Frá athöfninni í Dómkirkjunni.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.