Verktækni - 2018, Qupperneq 8
Aðalfundur VFÍ – ársskýrsla 2017-2018
Aðalfundur VFÍ 2018 var haldinn 17. apríl. Í
aðdraganda aðalfundar fara fram kosningar
í stjórnir félagsins: Aðalstjórn VFÍ, stjórn
Kjaradeildar og stjórn Deildar stjórnenda
og sjálfstætt starfandi.
Ársreikningur
Rekstrarhagnaður ársins var tæpar 55,3
milljónir króna en rekstrartekjur námu
203,4 milljónum króna. Heildareignir í lok
ársins samkvæmt efnahagsreikningi námu
rúmum 206,1 milljónum króna en heildar-
skuldir tæpum 30,6 milljónum króna. Eigið
fé var því jákvætt um rúmar 175,6 milljónir
króna.
Félagafjöldinn
Í ársbyrjun 2018 voru félagsmenn VFÍ 4210. Í
árslok 2017 voru konur 16,8% félagsmanna.
Hlutfallið lækkaði nokkuð við sameiningu
VFÍ og TFÍ enda konur hlutfallslega mun
færri í tæknifræðinni. Skrifstofa VFÍ veitir
einnig félagsmönnum í Stéttarfélagi tölvunar-
fræðinga og Stéttarfélagi byggingarfræðinga
þjónustu. Í árslok 2017 voru félagsmenn í
þessum tveimur félögum samtals 587.
Fjölgun kvenna – lægri meðalaldur
Við samantekt úr félagakerfinu í árslok
2017 vakti tvennt sérstaka athygli. Í fyrsta
lagi hve konum hefur fjölgað í stéttinni og
í öðru lagi jákvæð þróun varðandi aldurs-
samsetningu. Þetta sést vel er bornir eru
saman 30 – 34 ára aldurshópurinn og 65
– 69 ára hópurinn. Yngri hópurinn er nærri
þrefalt fjölmennari en sá eldri og konur eru
um þriðjungur félagsmanna í aldurshópun-
um 30 – 34 ára en einungis þrjár konur eru
í hópunum 65-69 ára af 240.
Ávarp formanns
Í ávarpi sínu sagði Páll Gíslason formaður
VFÍ meðal annars: „Á starfsárinu vann
stjórn að stefnumótun fyrir félagið. Stjórn
var sammála um að grunn leiðarvísir til
framtíðar fælist í orðunum fagmennska,
frumkvæði, samvinna og sanngirni.
Hlutverk félagsins er að vera drifkraftur
lífskjara og velferðar félagsmanna sem
stendur vörð um gæði menntunar og
fagkunnáttu. Félagið vill vera framsækið
forystuafl og sterk rödd í málefnum sam-
félagsins sem snerta verkfræði og tækni-
fræði.“
Stjórnir VFÍ - Aðalstjórn VFÍ
Formenn Kjaradeildar og Deildar stjórn-
enda og sjálfstætt starfandi eru nú aðal-
menn í stjórn í stað þess að hafa einungis
áheyrnar- og tillögurétt. Í stjórn VFÍ
sitja Páll Gíslason formaður, Kristjana
Kjartansdóttir varaformaður, Jóhannes
Benediktsson, María S. Guðjónsdóttir,
Þorvaldur Tolli Ásgeirsson, Sveinn Ingi
Ólafsson, Birkir H. Jóakimsson og vara-
meðstjórnendur eru Helgi Þór Ingason og
Sigurður Örn Hreindal.
Stjórn Kjaradeildar VFÍ
Stjórn Kjaradeildar VFÍ er þannig skip-
uð: Birkir H. Jóakimsson formaður, Hlín
Benediktsdóttir varaformaður, Erlendur
Örn Fjeldsted, Heimir Örn Hólmarsson,
Margrét Elín Sigurðardóttir og varameð-
stjórnendur eru Helga Helgadóttir, Kristín
Arna Ingólfsdóttir og Einar Halldórsson.
Stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt
starfandi
Í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt
starfandi eru: Sveinn Ingi Ólafsson for-
maður, Davíð Á. Gunnarsson, Svana Helen
Björnsdóttir og Gylfi Árnason er með-
stjórnandi.
Ársskýrsla félagsins er á vefnum:
www.vfi.is undir „útgáfa“.
8 / VERKTÆKNIAF stjórnarborði VFÍ
Þökkum styrktaraðilum VerkTækni golfmótsins
Íslenskir aðalverktakar hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | iav.is
Við breytum vilja í verk
OHSAS
18001
Occupational
Health and Safety
Management
OHS 606809
ISO
9001
Quality
Management
FM 512106
FÆRNI | FRUMKVÆÐI | FAGMENNSKA
Verkís er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem
býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði.
Reynsla og þekking skilar sér til viðskiptavina í traustri
og faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum lausnum.