Verktækni - 2018, Side 10
10 / VERKTÆKNI
Þann 27. nóvember var opnað
við hátíðlega athöfn nýtt
Tæknifræðisetur Háskóla Íslands
í Menntasetrinu við Lækinn í
Hafnarfirði. Jón Atli Benediktsson
rektor Háskóla Íslands og Rósa
Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í
Hafnarfirði, undirrituðu samning
um afnot Tæknisfræðisetursins af
húsnæði Menntasetursins. Í frétt á
vef HÍ kemur fram að með flutningi
tæknifræðinámsins í Menntasetrið
hyggist Háskóli Íslands efla enn
frekar umgjörð þess og jafnframt
leggja sterkan grunn að styttra
fagháskólanámi í tæknigreinum.
Tæknifræði til BS-náms hefur undanfarin
níu ár farið fram á vettvangi Keilis að Ásbrú
í Reykjanesbæ en nemendur útskrifast
formlega frá Verkfræði- og náttúruvísinda-
sviði Háskóla Íslands. Þar sem starfsemi
Keilis að Ásbrú hefur aukist mikið, eflst
og þróast og til þess að svara ákalli bæði
atvinnulífs og nemenda var ákveðið að
ráðast í breytingar á fyrirkomulagi tækni-
fræðinámsins og finna því stað nær höf-
uðborgarsvæðinu. Samningar náðust við
Hafnarfjarðabæ fyrr á árinu um aðstöðu
fyrir námið í Menntasetrinu við Lækinn og
hófst kennsla þar í haust. Þar stunda nú 43
nemendur nám í greininni.
Flutningurinn er afar mikilvægur fyrir
eflingu umgjarðar og aðstöðu tæknifræði-
náms en rekstur þess mun alfarið flytjast
til Háskóla Íslands um áramót. Karl Sölvi
Guðmundsson, dósent við Rafmagns- og
tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, verð-
ur forstöðumaður Tæknifræðisetursins en
hann hefur unnið ötullega að flutningi þess
í Hafnarfjörð ásamt starfsfólki einingarinnar
hjá Keili sem kemur nú formlega til starfa
hjá Háskóla Íslands.
Nýtt Tæknifræðisetur Háskóla Íslands
Myndin er frá opnunarathöfn Tæknifræðiseturs HÍ. Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor
Háskóla Íslands, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði, Karl Sölvi Guðmundsson dósent
við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður setursins, Kristinn
Andersen deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar og Hjálmar Árnason
framkvæmdastjóri Keilis. Mynd/Kristinn Ingvarsson.