Verktækni - 2018, Qupperneq 11

Verktækni - 2018, Qupperneq 11
VERKTÆKNI / 11   Verkfræðingafélag Íslands hélt Fjölskyldudag verkfræðinnar í annað sinn sunnudaginn, 26. ágúst. Öllum félagsmönnum var boðið í Húsdýragarðinn með fjölskyldum sínum. Þátttaka var mjög góð enda sumarveður, góð stemmning og Vísindasmiðja HÍ og Stjörnu-Sævar vöktu mikla hrifningu. Með þessum degi vill Verkfræðingafélag Íslands leggja sitt af mörkum til að efla áhuga barna á vísindum og tækni. Kannanir hafa sýnt að skortur er á tækni- menntuðu fólki og mikilvægt að efla áhuga íslenskra barna á tækni- og raungreinum. VFÍ og Vísindasmiðja HÍ starfa saman Verkfræðingafélags Íslands og Vísinda- smiðja Háskóla Íslands ákváðu að taka höndum saman um að efla áhuga ungs fólks á vísindum, tækni og nýsköpun. Samstarfssamningur þess efnis var undir- ritaður í marsmánuði 2018. Á grundvelli samningsins veitti Verkfræðingafélagið Vísindasmiðjunni 500 þúsund króna styrk til þess að vinna fræðsluefni fyrir vef Vísindasmiðjunnar. Byrjað var á efni tengdu forritun en Vísindasmiðjan hefur lagt aukna áherslu á að efla færni bæði kennara og nemenda í að nýta möguleika forritunar og tengja hana mismunandi námsgreinum. Samstarfssamningurinn gerir einnig ráð fyrir að Vísindasmiðjan taki þátt í Fjölskyldudegi verkfræðinnar sem haldinn er í ágúst ár hvert. Hefur þetta tekist einstaklega vel og mikill fjöldi lagt leið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og kynnst hluta af þeim tækjum, tilraunum og tólum sem finna má í Vísindasmiðjunni. Fræðsla um loftslagsmál Samningur VFÍ og Vísindasmiðjunnar er endurskoðaður árlega og nú er unnið að því að útfæra verkefni sem miðar að því að fræða gesti Vísindasmiðjunnar um lofts- lagsmál. Áherslan er á lausnir fremur en slæmar framtíðarhorfur, jafnframt á mik- ilvægi þess að nemendur öðlist ekki bara skilning á þeim þáttum sem orsakað hafa þau vandamál sem nú steðja að, heldur einnig getu – og trú á eigin getu – til að leysa vandamálin. Forritun fyrir börn félagsmanna VFÍ Einnig er í undirbúningi tilraunaver- kefni þar sem börnum félagsmanna Verkfræðingafélagsins verður boðið upp á kennslu í forritun í Vísindasmiðjunni. Ráðgert er að fyrsta hópnum verði boðið á vormánuðum 2019 verður sá viðburður auglýstur með tölvupósti til félagsmanna VFÍ. VFÍ vill einnig taka þátt í að efla Legókeppnina, First Lego League Ísland. Verður unnið að því að móta samstarf við Háskóla Íslands á nýju ári. Vísindasmiðja Háskóla Íslands var opnuð vorið 2012 og aðsetur hennar er í Háskólabíói. Markmiðið smiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum og fræð- um með gagnvirkum og lifandi hætti og styðja þannig við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda. Leiðbeinendur í smiðjunni eru kennarar og nemendur Háskóla Íslands. Smiðjan er fyrst og fremst ætluð nem- endum 5.-10. bekkjar og er hún opin grunnskólahópum fjóra daga vikunnar, þeim að kostnaðarlausu. Vísindasmiðjan nýtur afar mikilla vinsælda og hefur verið nær fullbókuð frá því að hún var opnuð fyrir um sex árum. Áætlað er að ríflega 20 þúsund grunnskólabörn hafi heimsótt Vísindasmiðjuna á þessum tíma. Í farandsýningu Vísindasmiðjunnar sem er fastur liður á Fjölskyldudegi verk- fræðinnar eru í boði tilraunir, þrautir, tæki, tól, leikir og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa. Gestir geta meðal annars kynnst undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teiknað listaverk með rólu, leikið á syngjandi skál, smíðað vind- myllu, mótað heillandi landslag og margt fleira. Öll fjölskyldan getur upplifað vísindin með lifandi hætti, uppgötvað og leikið sér af hjartans lyst. Fjölskyldudagur verkfræðinnar og samstarf við Vísindasmiðju HÍ Myndin er frá undirritun samnings VFÍ og Vísindasmiðju HÍ. Páll Gíslason formaður Verkfræðingafélags Íslands og Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands undirrita samninginn við risaborðið í Vísindasmiðjunni. Hlutföllin eru eins og fjögurra ára börn sitji við borð í venjulegri stærð. Mynd/Kristinn Ingvarsson.

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.