Verktækni - 2018, Qupperneq 14

Verktækni - 2018, Qupperneq 14
Í þessari grein verður fjallað um þær reglur sem gilda um rétt félagsmanna VFÍ til launa í veikindum á almennum og opinberum vinnumarkaði. Jafnframt verður fjallað um hlutverk sjúkra- og styrktarsjóða VFÍ og þýðingu þeirra fyrir félagsmenn. Kjarasamningsbundinn veikindaréttur á almennum vinnumarkaði er mun lakari en á opinberum vinnumarkaði. Félagsmenn VFÍ á almennum vinnumarkaði ávinna sér veikindarétt eftir því sem kveðið er á um í kjarasamningum félagsins við SA og FRV, sjá töflur 1 og 2 hér á eftir. Veikindaréttur samkvæmt neðangreindum kjarasamning- um miðast við daga og mánuði á hverju tólf mánaða tímabili. Á almennum vinnumarkaði er mánuður- inn talinn sem 22 virkir dagar og starfsaldur telst ekki samanlagður starfstími heldur er miðað við starfsaldur hjá hverju fyrirtæki fyrir sig ólíkt því sem er á opinbera mark- aðnum. Starfsmenn á almenna markaðnum flytja þar af leiðandi ekki með sér uppsafn- aðan veikindarétt á milli vinnuveitenda með sama hætti og á opinberum markaði. Veikindaréttur foreldra vegna barna undir 13 ára aldri eru 12 vinnudagar á ári bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Veikindaréttur starfsmanna á opinberum vinnumarkaði er mun betri en á almenn- um vinnumarkaði. Starfsmaður hjá hinu opinbera á rétt á 133 veikindadögum eftir t.d. eitt ár í starfi. Félagsmenn VFÍ sem ráðnir eru til starfa hjá ríkinu í að minnsta kosti tvo mánuði á mánaðarlaunum heldur launum í veikindum til samræmis við töflu 3 hér á næstu blaðsíðu, svo lengi sem veik- indadagar verða ekki fleiri á hverjum tólf mánuðum en þar greinir. Veikindaréttur hjá hinu opinbera tekur mið af almanaksdögum og starfsaldur á opinberum markaði telst samanlagður starfstími hjá stofnunum ríkis, sveitarfélaga og hjá sjálfseignarstofnunum sem reknar eru að meirihluta með almannafé. Á almennum vinnumarkaði, þar sem veikindaréttur er lakari en á opinbera vinnumarkaðnum, hafa félagsmenn stéttar- félaga aðgang að öflugum sjúkrasjóðum. Sjúkrasjóðirnir á almenna vinnumark- aðnum gegna lykilhlutverki við að tryggja félagsmönnum fjárhagslegan stuðning ef þeir verða fyrir launamissi vegna veikinda og slysa og þeir hafa tæmt veikindarétt sinn samkvæmt kjarasamningum. Í lögum er kveðið á um að öllum atvinnurekendum sé skylt að greiða í sjúkra- og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga. Í kjarasamn- ingum er kveðið á um þau iðgjöld sem atvinnurekendum ber að skila í sjóði stéttarfélaganna. Samkvæmt lögum og kjarasamningum skulu atvinnurekendur á almennum markaði greiða 1% af launum launþega í sjúkrasjóði stéttarfélaga. Þó svo kjarasamningsbundinn veikindaréttur opin- berra starfsmanna sé betri en á almennum markaði starfrækja stéttarfélög þó sjúkra- og styrktarsjóði fyrir opinbera markaðinn. Í þessu sambandi starfrækir VFÍ styrktarsjóð fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríki eða sveitarfélögum en launagreiðandum er skylt að greiða á bilinu 0,55-1% af launum til sjóðsins samanborið við 1% greiðsluskyldu í sjúkrasjóð á almenna markaðnum. Elsa María Rögnvaldsdóttir, sviðsstjóri kjaramála VFÍ. Kjarasamningar – könnun Verkfræðingafélag Íslands er aðili að 10 kjarasamningum bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði, þar af einum ótímabundnum samningi við Samtök atvinnulífsins (SA). Kjarasamningur félags- ins við SA er réttindasamningur og var endurskoðaður í júlí 2018. Kjarasamningar félagsins við Orkuveituna, Rarik og Veikindaréttur og hlutverk sjúkra- og styrktarsjóða VFÍ Starfstími Veikindaréttur Á fyrsta ári í starfi 2 dagar á mánuði Eftir 1 ár 2 mánuðir Eftir 5 ár 4 mánuðir Eftir 10 ár 6 mánuðir Starfstími Veikindaréttur Fyrstu 10 ár í starfi 60 dagar Eftir 10 ár 90 dagar Eftir 15 ár 120 dagar Eftir 20 ár 240 dagar Tafla 1. Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningi VFÍ og SA. Tafla 2. Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningi VFÍ og FRV. 14 / VERKTÆKNIAF kjaramálum VFÍ

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.