Verktækni - 2018, Síða 15

Verktækni - 2018, Síða 15
VERKTÆKNI / 15 Landsvirkjun renna út 31. desember 2018. Kjarasamningurinn við Félag ráðgjafar- verkfræðinga (FRV) rennur út 28. febrúar 2019 og kjarasamningar við ríkið, sveitar- félögin og Reykjavíkurborg (tveir samn- ingar við RVK) renna út 31. mars 2019. Kjarasamningur félagsins við Landsnet rennur svo út 31. apríl 2019. Undirbúningur kjaraviðræðna er hafinn og liður í honum er að félagsmönnum verður send könnun um áhersluatriði í komandi samningum. Fyrirtækið Maskína mun sjá um fram- kvæmd könnunarinnar. Markmiðið er meðal annars að greina hvað félagsmenn vilja leggja áherslu og hvort munur er á milli mismunandi hópa eftir starfsvettvangi. Námskeið í launaviðtölum Námskeið í launaviðtölum hafa verið mjög vel sótt. Stefnt er að því að halda næsta námskeið í marsmánuði næst- komandi. Leiðbeinandi á námskeiðunum er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Námskeiðið er ókeypis og verður auglýst með tölvupósti til félagsmanna. Breytingar á reglum Styrktarsjóðs VFÍ Aðild að Styrktarsjóði VFÍ eiga verk- fræðingar og tæknifræðingar sem starfa hjá ríki, borg og öðrum sveitarfélögum. Einnig starfsmenn hálfopinberra fyrirtækja eins og OR, ON og Veitna. Sjóðurinn greiðir sjúkradagpeninga og styrki vegna útlagðs kostnaðar sjóðfélaga. Sjóðfélagar fengu tölvupósti 12. nóv- ember 2018 þar sem kynntar voru nýjar úthlutunarreglur sjóðsins sem gilda frá ára- mótum 2018-2019. Í stuttu máli fela breytingarnar það í sér að svokallaðir heilsustyrkir munu í framtíð- inni verða greiddir út sem hlutfall af upp- söfnuðu iðgjaldi hvers sjóðfélaga síðustu 36 mánuði. Með þessu eru teknar upp sambærilegar reglur og gilda í Sjúkrasjóði VFÍ (launþegar á almennum markaði).  Tryggingafræðileg úttekt leiddi í ljós að breytingar voru nauðsynlegar til að tryggja örugga afkomu Styrktarsjóðsins og möguleika á að hann geti staðið við samtryggingarlegur skyldur sínar,  sem eru greiðsla sjúkradagpeninga og styrkja þegar áföll verða í lífi sjóðfélaga. Heilsustyrkir eru (sbr. nýjar starfsreglur sjóðsins): „Líkamsrækt, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, sjúkranudd, kírópraktor, meðferð hjá sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, félags- ráðgjafa, fjölskylduráðgjafa eða sambæri- legum viðurkenndum meðferðaraðila. Foreldranámskeið, krabbameinsskoðun, hjarta-, lungna- og æðaskoðun. Gleraugu, linsur og heyrnartæki, lyf, tannlækningar, lýtalækningar og aðrar lækningar“. Tekið skal fram að hægt er nota uppsafn- að iðgjald í allt það sem að framan greinir eftir þörfum og óskum hvers sjóðfélaga. Engar breytingar verða á samtryggingar- legu hlutverki sjóðsins. Allir sjóðfélagar munu eiga sama rétt til dagpeninga- greiðslna. Fæðingarstyrkur, styrkur til ættleiðingar og tæknifrjóvgunar, dánarbætur og styrkur til laseraðgerða mun ekki breytast. Þess ber að geta að iðgjald sem greitt er fyrir félaga í sjóðnum er mismunandi eftir kjarasamningum. Þannig eru iðgjöld sem eru greidd fyrir félaga sem starfa hjá ríkinu 0,55% af heildartekjum, 0,75% af heildartekjum þeirra félaga sem starfa hjá Reykjavíkurborg og 1% af heildartekjum þeirra félaga sem starfa hjá öðrum sveitar- félögum. Með þessum breytingum er framtíð sjóðsins tryggð og visst réttlæti fæst með því að heilsustyrkir eru bundnir við iðgjöld hver og eins. Einnig fá sjóðfélagar meira frelsi varðandi ráðstöfun réttinda.  Sveit verkfræðinga bar sigur úr býtum í VerkTækni golfmótinu sem haldið er árlega. Mótið var að þessu sinni haldið á Garðavelli á Akranesi.   VerkTækni golfmótið er fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem eru félagmenn í VFÍ, maka þeirra og gesti.  Keppt  er í sveitakeppni á milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem 5 bestu skor telja án forgjafar. Á myndinni togast sveitirnar á um Héðinsgripinn. – Verkfræðingar hægra megin, tæknifræðingar vinstra megin. Verkfræðingar unnu golfmótið Starfstími Veikindaréttur 0–3 mánuðir í starfi 14 dagar Næstu 3 mánuðir 35 dagar Eftir 6 mánuði 119 dagar Eftir 1 ár 133 dagar Eftir 7 ár 175 dagar Eftir 12 ár 273 dagar Eftir 18 ár 360 dagar Tafla 3. Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningi VFÍ og ríkisins.

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.