Verktækni - 2018, Síða 16

Verktækni - 2018, Síða 16
16 / VERKTÆKNI Unnið er að því að skipuleggja og ná utan um hóp eldri félagsmanna í VFÍ. Markmiðið er að styrkja tengsl og nýta krafta þeirra og reynslu við að efla starfsemi VFÍ. Tveir fundir hafa verið haldnir og var öllum félagsmönnum eldri en 65 ára sent fundar- boð. Mæting var mjög góð og augljóst að áhugi er fyrir hendi. Skipuð var nefnd til að halda utan um starfið og koma með hug- myndir að viðburðum og verkefnum. Hópur eldri félagsmanna í VFÍ Myndin er tekin á fundi eldri félagsmanna í nóvember. Á Tæknidegi Háskólans í Reykjavík voru afhentar viðurkenningar VFÍ fyrir áhuga- verð og vel unnin lokaverkefni. Páll Gíslason formaður VFÍ afhenti viðurkenn- ingarnar. Þrjú verkefni hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Á myndinni eru Guðrún A. Sævarsdóttir þáverandi deildarforseti Tækni- og verkfræðideildar HR, Birgir Hrafn Sæmundsson, Grétar Bragi Bragason, Páll Gíslason formaður VFÍ og Kristjana Kjartansdóttir, varaformaður VFÍ.   Grétar Bragi Bragason, Vél- og orkutæknifræði. Hönnun og prófun höggdeyfis fyrir keppnisbíl Team Sleipnir Verkefni þetta fjallar um hönnun og próf- un höggdeyfis fyrir formúlu keppnisbíl stúdentaliðsins Team Sleipnir. Markmið verkefnisins er að hanna, greina, smíða og prófa höggdeyfi ásamt undirplötu sem stenst reglur SAE og IMechE og öryggis- skoðun FSUK þannig að bíll Team Sleipnir fái þátttökurétt í aksturshluta keppninnar árið 2018. Einnig er markmið verkefnisins að létta höggdeyfinn um a.m.k. 20% og minnka stærð hans frá eldri hönnun liðsins. Niðurstöður verkefnisins er fullbúinn högg- deyfir sem stenst markmið liðsins Team Sleipnir og reglur SAE og IMechE og öryggis- skoðun FSUK árið 2018.  Ómar Þór Sigfússon, Rafmagnstæknifræði Hönnun gítarpedals eftir lampamagnara Bjögun á hljóðmerki er í nær öllum til- vikum óæskilegur hlutur í mögnurum og hljóðrásum, en í heimi gítarleikara er hún eftirsótt og velkominn. Með yfir- keyrslu magnara er hægt að ná fram bjögun á hljóðmerki sem er stór hluti af rokktónlist. Í þessu verkefni er ætlunin að skoða hvernig lampi virkar og greina formagnara í Marshall JCM 800 lampa- magnara. En meginmarkmið verkefn- isins er að hanna og búa til gítarpedal sem hljómar líkt og magnarinn. Nær öll hermun mun fara fram í LTspice og úrvinnsla gagna í Matlab, að lokum verð- ur prentplata hönnuð í Altium og pedall fullgerður. Birgir Hrafn Sæmundsson, byggingartæknifræði Gler sem byggingarefni Gler hefur verið framleitt í mörg þúsund ár. Til að byrja með aðallega í skartgripi og annað slíkt en nú sjáum við gler allt um kring hvort sem það er í byggingum, farartækjum, farsímum eða öðru. Á síðast- liðnum 60 árum hefur framleiðsla á gleri tekið miklum framförum og að mati höf- undar á mikil framþróun eftir að eiga sér stað í gleri í náinni framtíð. Það er mín spá að gler komi til með að vera notað meira sem burðarefni og með því ná hönnuðir mannvirkja að kalla fram meira gagnsæi byggingarhluta. Í þessu verkefni er farið yfir sögu og framleiðslu helstu tegunda glerja sem eru notuð í byggingariðnaði. Viðurkenningar fyrir lokaverkefni í tæknifræði

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.