Verktækni - 2018, Page 34
34 VERKTÆKNI 2018/24
RITRÝNDAR VÍSINDAGREINAR
(sobra) (60%) og fjölæru rýrgresi (40%). Grastorfið er um 3 ± 0,5 cm
þykkt með rótarlagi.
3.2 Afrennslissöfnun
Þakrennur og ø5,0 cm Skolan-dB plaströr leiddu afrennslisvatnið í
söfnunartanka. Fyrri hluta árs tóku 220 L tunnur úr HDPE (e. High
Density Polyethylene) plasti (Pit Plastics, Almelo, Holland) við vatn-
inu. Um mitt sumar 2015 tunnum skipt út fyrir ø250 mm, 2 m há
plaströr úr PE plastefni útbúin með áföstum botni frá Set ehf. á Selfossi,
sjá mynd 3. Kranar voru settir í botninn svo unnt væri að tæma tank-
ana eftir þörfum. Innra þvermál röranna er 238 mm, og mesta rúmtak
94 L. Með grennri söfnunarrörum minnkaði mæliónákvæmni í vatns-
hæð afrennslisóvissu en á móti kom að minna rúmmál varð takmark-
andi í stærstu úrkomuatburðunum.
3.3 Vatnshæðarmælingar
Í botni söfnunartunna/pípna var komið fyrir þrýstings- og hitamælum
af gerð Levelogger Edge 3001 (Solinst, Ontario, Canada). Mælarnir
voru hengdir í band þannig að þeir næmu við botn tankanna og
bandið fest í áskrúfanlegt lok sem fylgdi mælunum á toppi tankanna.
Til að halda mælunum stöðugum við botninn var sett 200 g þyngingar-
sökka á hvern mæli. Loftþrýstings- og hita mælir af gerð Barologger
Edge 3001 var hengdur efst í einn tankinn. Vatnshæð var reiknuð með
því að leiðrétta fyrir loftþrýstingi og hitastigsmuni í lofti og vatni með
forritinu Levellogger 4.0 frá Solinst. Mælinákvæmni þessarar aðferðar
er gefin sem á ±0,1 cm vatnshæð (fyrir hitastig 0°C til 50°C) frá fram-
leiðanda. Þetta skilar sér í mismunandi óvissu eftir stærð söfnunart-
ankanna (sjá töflu 2).
Talsverðar dægursveiflur mældust í vatnsyfirborði (sjá töflu 2).
Sveiflurnar virtust tengjast hitastigi, en ekki fékkst einhlítt samband
þannig að hægt væri að leiðrétta fyrir sveiflunum. Mestar sveiflur
mældust um 2 cm í fyrri uppsetningunni, en að meðaltali um 1 cm.
3.4 Veður- og snjómælingar
Stuðst var við tvenns konar veðurmælingar. Í fyrsta lagi var sett upp
veðurstöð við tilraunaþökin (sjá mynd 1). Fyrsta stöðin var af gerðinni
HOBO U30-NRC-SYS-B (Onset Computer Corporation, Massachusetts,
Bandaríkjunum). Vindmælirinn skemmdist í ofsastormi þann 26.
janúar 2015. Ný veðurstöð var sett upp við tilraunaþökin, 25. júní
2015, í leigu frá fyrirtækinu M&T ehf. Veðurstöðin er sjálfvirk og sam-
anstendur af Young vindmæli, Lambrecht úrkomumæli með innbyggðu
snjóbræðslutæki og Campbell CS500 loftraka og hitastigs og loft-
þrýstingsmæli. Til viðmiðunar, voru 10 mínútna veðurgögn fengin af
Veðurstofu Íslands úr sjálfvirkri veðurstöð sem staðsett er við
Bústaðaveg 7 - 9 í Reykjavík.
Á norðurslóðum getur mikið afrennsli myndast í snjóbráð eða þegar
rignir á snjó. Því var snjódýpi mælt í upphafi mælitímabils á sex stöð-
um á hverju þaki fyrir sig og meðal snjódýpt metin út frá því. Sjónrænt
mat var lagt á hve stór hluti þakanna var þakinn snjó í upphafi mæli-
tímabilsins. Áætla má að mælinákvæmni í snjódýptinni sé upp á ±0,5
Tímabil Uppsetning Innra flatarmál
söfnunartanka
Mælióvissa
þrýstingsmæla
skv
framleiðanda
Áætluð óvissa í
afrennslisrúmmáli
Mestar mældar
sveiflur Raun-óvissa
Feb-Jún 220 L
tunnur 2597 cm2 ± 0,1 cm 0,3 L ± 2,2 cm < 5,8 L
Júl-Des 94 L
plaströr 445 cm2 ± 0,1 cm 0,04 L ± 1,5 cm 0,7 L
Mynd 3. Afrennslissöfnun af tilraunaþökum með 220L tunnum (t.v.) og 2 m háum 250x6 mm PE100 plaströrum (t.h).
Tafla 2. Mæli- og raunskekkjur í afrennslismagni