Verktækni - 2018, Qupperneq 35

Verktækni - 2018, Qupperneq 35
VERKTÆKNI 2018/24 35 RITRÝNDAR VÍSINDAGREINAR cm. Alls voru 6 mælitímabil með snjóþekju, þar af 4 með markverðum snjó (sjá töflu 3). 3.5 Plöntugreining Plöntugreining var gerð á torfinu 25. október 2015 af Ágústu Helgadóttur líffræðingi og Hlyni Bárðarsyni doktor í líffræði frá Háskóla Íslands. Notast var við mælireiti af stærð 50x50 cm og gróð- urþekjan metin út frá tíðni/þekju hverrar plöntutegundar innan mæli- reitsins. Samkvæmt greiningu þeirra samanstóð úthagatorfið í þökun- um fyrst og fremst af mosa (70-90%) og lítið eitt af háplöntum, þá aðallega vallarsveifgrasi (2-5%) og blávingli (4-5%). Í grastorfinu greindust hins vegar í 85-95% vallarsveifgras auk mosa í litlu magni (2-10%). Gróðurþekjan var mikil og lítið um bera mold, bæði á gras- þökunum og úthaganum. 3.6 Skilgreining afrennslisatburða Rúmmál afrennslis (V) var reiknað sem margfeldi vatnshæðarbreytingu og innra flatarmáls röranna (Ar). Hátíðni flökt í mældri vatnshæð var síað með fallinu loess í Matlab miðað við þröskuld 0,7. Rúmmál úrkomu var reiknað sem margfeldi mældrar úrkomu (P) og flatarmáli þakanna (Aþ = 2,46 m2). Tímaraðir af uppsöfnuðu afrennslisrúmmáli, V(t), frá mismunandi þökum yfir sama úrkomuatburð eru sýndar á mynd 4. Súlurnar gefa til kynna mælda 10 mín úrkomu. Afrennsli var skilgreint ef vatnsyfirborð í rörunum eftir síun hækkaði um 0,1 cm/klst, sem samsvarar mælinákvæmni þrýstingsmæla (sjá töflu 2). Þegar lítið afrennsli var mælt af þökum og þá fóru mæliskekkj- ur að skipta meiri máli. Með eldri uppsetningunni (220 L tunnur) voru atburðir þar sem að afrennsli af bárujárninu (sjá töflu 2) mældist undir 6 L ekki teknir með en eftir að uppsetningunni var miðað við 1 L í afrennsli af bárujárninu. Alls verða kynntar niðurstöður frá 52 atburð- um yfir tímabilið febrúar til desember 2015. Tafla 3. Mæld dýpt (D) og áætlað hlutfall snjóþekju (H). Mynd 4. Dæmi um mælingar á afrennsli af gróðurþökum (15.-17. ágúst 2015) Mælitímabil Aths. Þak1: Úthagi + torf Þak2: Úthagi + jarðv. Þak3: Bárujárn Þak4: Gras + torf Þak5: Gras+jarðv. D [cm] H [%] D [cm] H [%] D [cm] H [%] D [cm] H [%] D [cm] H [%] A2* Í upphafi 5 100 5 100 5 100 5 100 5 100 A3 Í upphafi 4 80 4 75 3 60 4 50 3 30 A4 Í upphafi 8 100 7 100 7 100 8 100 6 100 H14 í lok 0,2 100 0,3 100 0,2 100 0,2 100 0,3 100 H15 í lok 29 100 30 100 27 100 28 100 29 100 H16 í upphafi 0,1 100 0,1 100 0,3 100 0,2 100 0,1 100 Skýringar: * Metið út frá mæligögnum (ekki mælt). A(nr) = Ágúst Elí Ágústsson (2015); H(nr) = Halla Einarsdóttir (2018).

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.