Verktækni - 2018, Qupperneq 38

Verktækni - 2018, Qupperneq 38
38 VERKTÆKNI 2018/24 TÆKNI- OG VÍSINDAGREINAR Skosk hnoðraþök Reykvísk úthagaþök * Árstíð VH (%) P (mm) VH (%) P (mm) Sumar (maí- september) 70-76 405±38 72-75 166 Vor og haust (15. mars – apríl; október – 15. nóvember) 49-64 150±35 12-20 194 Vetur (15. nóvember – 15. mars) 43-56 137±6 22-17 111 Tafla 4. Samanburður á rannsóknum á árstíðabundinni vatnsheldni léttra gróðurþaka. * Atburðir sem gáfu af sér > 1 mm afrennsli. VH = vatnsheldni, P = heildarúrkoma tímabils. 4.5 Lækkun afrennslistoppa Lækkun hámarks 10 mínútna afrennslis gróðurþaka í hverjum atburði er veruleg í samanburði við bárujárn (sjá töflu 7), eða að meðaltali 0,7 yfir allt tímabilið fyrir þök með torfi sem undirlag, og aðeins hærri eða 0,8 fyrir þök með jarðvegsundirlagi. Þessar niðurstöður eru í góðu samræmi við Hathaway ofl. (2005) sem mældu um 75% lækkun. Niðurstöðurnar gefa til kynna að gróðurþökin draga úr álagstoppum í, en í stærstu úrkomuatburðunum lækka topparnir lítið. Það er því var- legt að treysta á að gróðurþök minnki álag á frárennsliskerfin í stórum úrkomuatburðum. 4.6 Ásýnd gróðurs Eins og kom fram í inngangi greinarinnar, þá skiptir náttúruleg ásýnd máli fyrir vellíðan borgarbúa. Fólki líður vel með fallegan gróður í kringum sig. Bæði úthagaþökin litu vel út allt árið um kring, voru með jafnri áferð, og engum sjáanlegum skemmdum (mynd 6a). Grasþökin, hins vegar, litu mjög illa út eftir þurrka vorsins (í apríl – júní) og var gróðurinn lengi að taka við sér. Sér í lagi drapst mikið af gróðri í gras- þakinu með 3 cm þykku torfi í undirlagi. Jafnvel eftir sumarið og aukna úrkomu, þá voru stórir þurrkablettir og gróðurinn mjög misleitur í því þaki (mynd 6b). Um veturinn leit þetta þak illa út, og pollar mynduð- ust í dældum í grassverðinum. Grasið yfir 7 cm þykku jarðvegslagi (mynd 6c) var mun jafnara en þó ekki eins þétt eins og mosi úthaga- torfsins. Af þessu er ályktað að gras sé ekki eins gott hvað varðar ásýnd gróðurþaka og úthaginn. Það tíðkast stundum að setja tvöfalt lag af grastorfi á hvolfi sem undirlag á Íslandi. Meðan það myndi tvöfalda vatnsrýmdina, og þar með stuðla að meiri vatnsheldni, þá eykur það ekki rými rótarkerfis. Yfirleitt er þéttleiki torflags það mikill að hann hamlar rótarvöxt og fáar eða engar rætur vaxa í gegnum fyrra torflagið. Þurrkþol grassins er þar af leiðandi álíka takmarkað og þegar um eitt torflag er að ræða. Á þeim forsendum er ekki mælt með slíkri lausn. 4.7 Rekstur og viðhald Þættir sem geta leitt til þess að þak leki með tíma eru t.d. gallar í frá- gangi vatnsþéttilagsins, lélegt viðhald niðurfalla og heft afrennsli t.d. með háum þakkanti. Hægt er að fylgjast með hefðbundnum þökum og þar verða vandamálin oft sýnilegri, sem einfaldar viðhaldsðgerðir. Mynd 6: Gróðurþekja 4. október 2015: a) Úthagi með jarðvegsblöndu í undirlagi (þak 2), b) gras með torfi í undirlagi (þak 4) og c) gras með jarðvegsblöndu í undirlagi (þak 5).

x

Verktækni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.