Morgunblaðið - 08.08.2022, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 8. Á G Ú S T 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 183. tölublað . 110. árgangur .
ḰRÝNDU ÍS-
LANDSMEIST-
ARA Í GOLFI MIKIL SAMSTAÐA
GUÐMUNDUR
VANN ÖRUGG-
AN SIGUR
GLEÐIGANGAN 11 ÓLYMPÍUSKÁKMÓT 8PERLA SÓL OG KRISTJÁN ÞÓR 27
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í
Reykjavík og Einar Þorsteinsson for-
maður borgarráðs segjast sammála
um að ekki megi dæma Reykjanes úr
leik, þrátt fyrir eldgos og jarðskjálfta-
hrinu, í umræðunni um hvar eigi að
reisa varaflugvöll. Fyrirhugað var að
reisa nýjan Reykjavíkurflugvöll og
jafnframt alþjóðlegan varaflugvöll í
Hvassahrauni en ýmsir hafa dregið
ágæti þeirrar áætlunar í efa eftir að
eldgos hófst í Meradölum á miðviku-
daginn.
Dagur og Einar segja mikilvægt að
bíða með að taka ákvarðanir þar til
áhættumati Veðurstofu Íslands á
svæðinu sé lokið. Veðurstofan skilar
niðurstöðu í haust en Dagur segir þá
fyrst mögulegt að skoða nýja mögu-
leika í stað Hvassahrauns. Einar seg-
ir þó að skynsamlegt gæti verið að
skoða aðra möguleika sem fyrst.
„Menn þurfa strax að hefja vinnu við
að skoða aðra kosti sem einnig voru
taldir fýsilegir,“ segir hann og vísar til
skýrslu Rögnunefndar frá 2015 þar
sem fjórir aðrir flugvallarkostir voru
nefndir til viðbótar við Hvassahraun.
Að mati Dags er það jákvætt við
eldgosið í Meradölum að það hefur
vakið fólk til vitundar um mikilvægi
varaflugvallar. Góður varaflugvöllur
sé þjóðaröryggismál og nauðsynlegur
fyrir atvinnulífið og hagkerfið. »4
Ekki megi dæma
Reykjanesið úr leik
- Einar og Dagur sammála um varaflugvöll
Hvassahraun Áhættumat Veður-
stofunnar stendur yfir á svæðinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmtiferðaskipið Scenic Eclipse var statt í
Dynjandisvogi á Vestfjörðum á laugardag og
voru ferðamenn ferjaðir í land þaðan.
Skipið var smíðað í Króatíu og tekið í notk-
un fyrir nokkrum árum. Það rúmar 228
manns en boðið er upp á lúxusferðir til Ís-
vatn er í fossinum og er hann því sérlega
glæsilegur. Er næsta víst að ferðamennirnir
hafi notið útsýnisins.
lands með skipinu. Fossinn Dynjandi tók á
móti ferðamönnunum í allri sinni dýrð, eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd. Óvenjumikið
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
228 manna skemmtiferðaskip í Dynjandisvogi
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Ekki er ólíklegt að fasteignaverð taki
dýfu nú þegar vaxtastig hækkar og
væntingar eru uppi um aukið fram-
boð á húsnæði. Þetta segir Már Wolf-
gang Mixa, lektor í fjármálum við
Háskóla Íslands. Húsnæðisverð er nú
sögulega hátt frá öllum mælikvörðum
séð og ekki ósennilegt að bóla hafi
myndast á fasteignamarkaðnum að
mati Más.
„Þótt það séu engar vísbendingar
komnar fram um það enn sem komið
er, þá er ekki ólíklegt að fasteigna-
verð taki dýfu niður á við þegar
vaxtastig er að hækka og væntingar
eru uppi um aukið framboð,“ segir
hann, enda hafi slíkt áður gerst.
„Það er eins og margir hafi gleymt
því að fasteignaverð lækkaði um
næstum 20% frá 2007 til 2010 og á
sama tíma var samanlögð verðbólga í
kringum 30%.“
Már telur að fyrstu merki um verð-
lækkanir á fasteignamarkaði hér á
landi yrðu sá tími sem tekur að selja
íbúðir.
„Um leið og þær tölur fara að
hækka, dagar frá því íbúð fer á sölu
og þar til hún selst, fást vísbendingar
um hvort lækkanir séu í kortunum,“
segir Már. „Þetta er svipað og frá
2007 til 2008. Markaðurinn fór að
kólna strax árið 2007 en fáir tóku eftir
því.“
Spurður hvort þrengri reglur um
greiðslumat, sem Seðlabankinn setti í
fyrrahaust, hafi áhrif á eftirspurnina
segir Már að þær reglur hafi aðallega
komið sér illa fyrir fyrstu kaupendur.
„En vissulega hefur það keðjuverk-
andi áhrif,“ segir hann og nefnir fólk
sem þarf að stækka við sig og selja
ódýrari eign. „Ef fyrstu kaupendur
eiga erfiðara með að fara á markað,
þá eru hugsanlega einhverjar sölur
sem voru í pípunum ekki að ganga í
gegn,“ segir hann. Greiðslubyrðar-
hlutfall fasteignalána takmarkast nú
almennt við 35% en við 40% fyrir
fyrstu kaupendur.
Ekki ólíklegt að fast-
eignaverð taki dýfu
- Eftirspurnin stærsta vísbendingin - Lækkanir sjást ekki
Morgunblaðið/Eggert
Eignir Fasteignaverð gæti lækkað.
MEngin merki um lækkun »4