Morgunblaðið - 08.08.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 2022
Maður féll 20 til 30 metra niður gil í
Norðdal við þjóðveginn uppi á Stein-
grímsfjarðarheiði á Ströndum í gær.
Úlfar Örn Hjartarson, svæðisstjóri
björgunarsveitarinnar Dagrenningar
á Ströndum, staðfesti þetta í samtali
við mbl.is í gær. Maðurinn var tölu-
vert slasaður, að sögn Úlfars.
„Okkar menn komu á staðinn og
vegfarandi var búinn að hlúa að hon-
um, og okkar menn ásamt sjúkra-
flutningamönnum fóru með lækni og
hlúðu enn frekar að honum þangað til
þyrla Landhelgisgæslunnar kom á
vettvang,“ sagði Úlfar.
Óskað var eftir aðstoð björgunar-
sveitarinnar klukkan tíu mínútur í tvö
en þyrlan lenti með manninn á Land-
spítalanum í Fossvogi rétt fyrir
klukkan fimm.
Úlfar segir að björgunaraðgerðir
hafi í heild gengið mjög vel og voru
um það bil 20 manns á vettvangi þeg-
ar mest lét.
Slasaðist eftir 20
til 30 metra fall
- Maðurinn er töluvert slasaður
Ljósmynd/Björgunarsveitin Dagrenning
Björgunaraðgerðir Um það bil tuttugu björgunarsveitarmenn voru á svæð-
inu við gilið þegar mest lét. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn.
Tómas Arnar Þorláksson
tomasarnar@mbl.is
Innleiðing á nýrri landamæraeftir-
litsstarfsemi og uppsetning upplýs-
ingakerfa á Keflavíkurflugvelli mun
kosta ríkissjóð um þrjá milljarða og
199 milljónir og dreifist kostnaður-
inn á næstu fimm ár. Kerfin eru hluti
af fyrstu heildrænu lögunum um
landamæri og landamæraeftirlit á
Íslandi sem er fyrirhugað að sam-
þykkja í haust. Kostnaðurinn felst að
mestu í fjárfestingu og rekstri á nýj-
um kerfum ásamt launakostnaði við
landamæravörslu en þetta kemur
fram í skriflegu svari Gunnars Harð-
ar Garðarssonar fyrir hönd embætt-
is ríkislögreglustjóra við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Lögin sem verða lögð fyrir þingið í
haust eru hluti af samræmdu landa-
mæraeftirliti hjá Schengen-ríkjun-
um sem mun taka gildi hjá öllum
aðildarríkjunum samtímis. Sam-
þykki laganna mun hafa í för með sér
kostnaðarsamar framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli og mun landa-
mæraeftirlit þar taka umfangsmikl-
um breytingum. Þetta staðfesti
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
allsherjar- og menntamálanefndar
Alþingis, í samtali við Morgunblaðið.
Gamla kerfið tímafrekt
Gunnar segir að nýja landamæra-
kerfið sem vísað er til í lögunum
muni taka við af eldra kerfi sem hélt
utan um komur og brottfarir ríkis-
borgara utan Schengen-svæðisins
með stimplum í vegabréf. Að sögn
Gunnars var eldra kerfið tímafrekt
og mun nýtt sameiginlegt rafrænt
komu- og brottfararkerfi Schengen-
svæðisins skrá og geyma upplýsing-
ar um dagsetningar, komu- og brott-
fararstað og lengd dvalar rafrænt.
Hann segir í svari sínu nauðsyn-
legt að lögin taki gildi sem allra fyrst
til að tryggja heimildir fyrir stjórn-
völd hvað varðar uppsetningu og
notkun kerfisins. Hann bendir á að
Ísland sé skuldbundið til að taka
kerfið í gagnið á næsta ári og því tím-
inn af skornum skammti til að sam-
þykkja frumvarpið.
Spurður hvort frumvarpið sé
tímabært svarar Gunnar því játandi
og ítrekar mikilvægi þess að það sé
samþykkt svo að Ísland geti staðið
við alþjóðlegar skuldbindingar sínar.
„Reglugerðir Evrópusambandsins
teljast þróun á Schengen-samstarf-
inu og er Ísland skuldbundið til að
innleiða þær á grundvelli þess.“
Morgunblaðið/Eggert
Landamæri Frumvarpið gerir stjórnvöldum mögulegt að standa við alþjóðlegar skuldbindingar um landamæra-
eftirlit. Kostnaðurinn felst í fjárfestingu og rekstri á kerfum ásamt launakostnaði við landamæravörslu.
Kostnaðarsöm breyting
- Þriggja milljarða króna framkvæmd á Keflavíkurflugvelli
- Lögin lögð fyrir í haust og þurfa að taka gildi sem fyrst
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Laufey Sif Lárusdóttir, formaður
Samtaka íslenskra handverksbrugg-
húsa, segir um það bil tíu handverks-
brugghús komin með leyfi frá sýslu-
manni til að selja
eigin framleiðslu
út af framleiðslu-
stað, nú um það
bil mánuði eftir
að lög sem heim-
ila slíka sölu tóku
gildi hinn 1. júlí
sl. Fram að því
þurftu neytendur
að fara í gegnum
ÁTVR til þess að
kaupa vöruna.
Laufey segir að um sé að ræða
stórt skref í sögu matar- og
drykkjarferðamennsku hér á landi,
sístækkandi greinar sem Ísland geti
loks tekið þátt í.
„Svo sannarlega hefur þetta bætt
mikið aðgengi ferðamanna, sem eru
að heimsækja brugghús víðsvegar
um allt land, til þess að taka minja-
gripi með sér heim.
Þetta er mun skemmtilegra
starfsumhverfi sem við erum hluti af
núna.“
Laufey nefnir að handverksbjór
flokkist nú sem ferskvara. „Það að
geta keypt bjór sem er bruggaður á
staðnum, kannski fyrir örfáum vik-
um, kominn á flöskur í gær og seldur
í dag. Þetta eru forréttindi fyrir við-
skiptamenn að geta keypt slíka vöru,
eins og hún á eiginlega að smakkast.
Vel í stakk búin
Þetta er mjög ánægjuleg breyting
og í takt við það sem við sjáum í öðr-
um löndum sem við viljum vera að
bera okkur saman við í hvað flestum
málaflokkum,“ segir Laufey og nefn-
ir Danmörku sem dæmi.
Laufey segir handverksbrugg-
húsin vel í stakk búin fyrir það verk-
efni sem áfengissala er, auk þess
sem þau geri sér fulla grein fyrir
ábyrgðinni og þeim kvöðum sem
reglugerðin segir til um.
„Ástríðan fyrir vörunni er náttúr-
lega á þeim stað sem hún er fram-
leidd. Þar eru viðskiptavinir sem
koma til okkar til þess að kynna sér
okkar framleiðslu og eru þá best
upplýstir um það hvað einkennir
hvaða vöru fyrir sig á viðkomandi
stað.“
Laufey segir að í langan tíma hafi
gríðarlega mikil eftirspurn frá gest-
um handverksbrugghúsa, erlendum
sem íslenskum, verið fyrir að geta
keypt bjórinn að kynningu lokinni.
Nú sé það loks hægt og hjólin séu
loks farin að snúast. „Það er mikil
gleði meðal handverksbrugghúsa að
þetta hafi náð í gegnum þingið og
kom okkur svolítið á óvart, enda hef-
ur þetta verið svolítið langur slag-
ur.“
Áfengislöggjöfin verði
endurskoðuð
Laufey segir næsta slaginn vera
að áfengislöggjöfin verði endur-
skoðuð með það fyrir augum að
lækka áfengisgjöld á smáframleið-
endur.
„Í dag er eru áfengisgjöld á bjór
hærri en á léttvíni. Það finnst okkur
mjög sérstakt, að það sé verið að
skattleggja bjór svona svakalega en
ekki léttvín. Af hverju er verið að
gefa afslátt af léttvíni en ekki bjór?“
Sem dæmi væri hægt að gefa út
nokkurs konar skattkort sem nemur
ákveðinni upphæð til áfeng-
isframleiðenda. „Sumir myndu klára
þetta á einni viku og sumum myndi
þetta duga fyrir heilt ár.“
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri tók vel í hina nýju
lagabreytingu aðspurður.
„Þetta er eitt af því sem ferða-
menn hafa áhuga á þegar þeir
ferðast um landið, að njóta þess sem
búið er til í heimabyggð. Þetta er
vafalaust til bóta fyrir litlu brugg-
húsin um allt land.“
Tíu brugghús
komin með leyfi
- Loks hægt að fá bjórinn strax
Laufey Sif
Lárusdóttir
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Öl Laufey segir að um sé að ræða stórt skref í sögu matar- og drykkjar-
ferðamennsku hér á landi, stækkandi greinar sem Ísland taki nú þátt í.
Öldungadeild
Bandaríkja-
þings hefur
samþykkt til-
nefningu Joes
Bidens Banda-
ríkjaforseta á
Carrin F. Pat-
man sem sendi-
herra landsins á
Íslandi.
Patman hefur verið stjórnar-
formaður almenningssamgangna
í Harris-sýslu í Texas, en sýslan
er sú þriðja fjölmennasta í
Bandaríkjunum og felur í sér
stórborgina Houston. Áður var
hún einn eigenda lögfræðistof-
unnar Bracewell LLP og starfaði
þar í þrjá áratugi.
Biden tilnefndi Patman til
embættisins í febrúarmánuði. Þá
greindi fréttamiðillinn Politico
frá því að hún hefði safnað fjár-
framlögum fyrir Biden í síðustu
forsetakosningum.
Carrin F. Patman nýr sendiherra
Carrin F. Patman
Einar Kristján
Jónsson hefur
verið ráðinn næsti
sveitarstjóri
Skaftárhrepps.
Reiknað er með
að ráðning hans
verði staðfest á
sveitarstjórnar-
fundi næsta
þriðjudag.
Einar hefur síð-
ustu átta ár gegnt embætti sveitar-
stjóra Húnavatnshrepps. Íbúafjöldi í
Skaftárhreppi er 641 og tekur hann
því við stærra sveitarfélagi, en 410
manns bjuggu í Húnavatnshreppi
þegar Einar tók við þar.
Einar hefur lokið rekstrar- og við-
skiptanámi frá Endurmenntun Há-
skóla Íslands. Hann gegndi stöðu
deildarstjóra rekstrarsviðs Vátrygg-
ingafélags Íslands hf. frá 2003 til
2008 og var rekstrarstjóri Hreinsibíla
hf. 2008 til 2010. Þá var hann
verkefnastjóri eignaumsjónar og
gæðaeftirlits hjá Frumherja frá 2010
til 2014. Hann hefur einnig gegnt
félagsstörfum. Hann var formaður
skipulagsnefndar Kópavogsbæjar frá
2006 til 2009, sat í stjórn Frjáls-
íþróttasambands Íslands, Glímu-
félags Íslands og var formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks.
Einar ráð-
inn sveit-
arstjóri
- Nýr sveitarstjóri
Skaftárhrepps
Einar Kristján
Jónsson