Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 4

Morgunblaðið - 12.09.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra ur br e Róm Ítalía 595 1000 www.heimsferdir.is At h. að ve rð et rb re 6. október í 4 nætur 129.850 Flug & hótel frá 4nætur Morgunblaðið/Eggert Gestir Erlendum ferðamönnum er nú farið að fjölga hér á ný. Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is „Í mínum rekstri finnum við vel fyrir því að bókanir berist fyrr og að fólk sé að skipuleggja sig lengra fram í tímann. Maður sá aldrei þennan fjölda af bókunum stóru ferða- mannaárin okkar 2018 og 2019.“ Þetta segir Unnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri ferðaskrifstof- unnar GoNorth, sem sérhæfir sig í pakkaferðum fyrir útlendinga, um komandi ferðamannasumarið 2023. Að sögn Unnar eru bókanir fyrir næsta sumar strax farnar að berast í þó nokkrum mæli. Þá segir hún að bókanir með svona miklum fyrirvara berist aðallega frá Mið-Evrópu og þar séu Þjóðverjar fremstir í flokki. „Ég hef það á tilfinningunni að það sé alltaf að verða stærri hópur sem planar svona langt fram í tímann en við sjáum líka miklu meira af bók- unum með stuttum fyrirvara en við sáum til dæmis fyrir 20 árum,“ segir Unnur sem bendir þó á að erfiðara verði að taka skyndiákvörðun um að- koma til Íslands með hverju árinu sem líður. „Það er framboð flugsæta sem ræður því hve margir ferðamenn koma hingað,“ segir hún en bendir á að jafnvel þótt flugferðum til landsins myndi fjölga þýði það ekki endilega að fleiri ferðamenn komi til landsins þar sem hótelgisting og bílaleigubílar eru oft uppbókuð með dágóðum fyr- irvara. Sem dæmi um þetta nefnir hún aukinn fjölda flugferða til og frá Ítal- íu í sumar. Að hennar mati kom það í veg fyrir að Ítalir ferðuðust til lands- ins í stórum stíl hvað þeir eru oft sein- ir að skipuleggja sig. „Ítalíumark- aðurinn er frægur fyrir það að ítalskir ferðamenn bóka mjög seint. Ítalir lentu því í þeim vandræðum að þegar þeir loksins bókuðu ferð til Ís- lands þá var engin gisting laus.“ Hún segir því þróunina vera á þann veg að fljótlega verði nær ómögulegt að taka skyndiákvörðun um að ferðast til Íslands. Unnur býst við að sumarið 2022 og 2023 verði að minnsta kosti svipuð en líklega verði sumarið 2023 stærra. Hún bætir við að ferðamannasumarið myndi án efa verða stærra ef bíla- leigubílum og hótelherbergjum á landinu fjölgaði. Hún segist ekki búast við miklum fjölda frá Asíu næsta sumar en að hennar sögn lögðu ekki margir leið sína frá Asíu til Íslands í sumar. „Mín tilfinning er að Asíumarkaðurinn sé ekki farinn að hreyfa sig. Hann er enn þá á sínum heimaslóðum. Kannski mun bætast í komur frá Asíu en við sjáum það ekki í sama magni og við sáum áður.“ Reiknar með Asíumarkaðnum Arnheiður Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Norður- lands, tekur undir orð Unnar og segir að bókanir fyrir sumarið 2023 hafi verið fjölmargar undanfarið. „Sum- arið 2023 lítur bara alveg rosalega vel út,“ segir hún. Hún segir að það eina sem vanti til þess að sumarið 2023 verði án vafa ennþá stærra en sumarið 2022 sé meira af gistiplássi fyrir ferðamenn hérlendis. Aðspurð segir hún það vera í vinnslu að fjölga gistiplássum á Norðurlandi. „Það er verið að skoða stöðuna víðs vegar og hvaða tækifæri séu fyrir hendi. Við erum líka að láta vinna fyr- ir okkur greiningu núna til að greina hvar á Norðurlandinu mesta þörfin er fyrir gistipláss.“ Arnheiður bindur þá miklar vonir við að Asíubúar komi aftur til lands- ins næsta sumar. Hún segist reikna með að það gerist og bendir á að allt sé að opnast aftur. Hún tekur þó fram að erfitt sé að segja til um hvað gerist í þessum efnum. Þá býst hún við enn frekari fjölgun ferðamanna frá Bandaríkjunum næsta sumar. Að mati Arnheiðar er það alls ekki rétt að landið sé sprungið hvað því viðkemur að taka á móti ferðamönn- um. Aðeins þurfi að auka framboð og þjónustu. Þegar mikið bókað fyrir næsta sumar - Nær ómögulegt er að taka skyndiákvörðun og ferðast til Íslands - Stærra ferðamannasumar á næsta ári en í ár - Skortur á gistiplássum og bílaleigubílum hamlar frekari stækkun Ísak Gabríel Regal isak@mbl.is Líney Sigurðardóttir er ósátt við þá meðferð og þjón- ustu sem hún fékk á Sjúkrahúsinu á Akureyri um helgina. Hún er búsett á Þórshöfn ásamt eiginmanni sínum og lenti í heilmiklum hrakförum í fyrradag. Hún var þá nýkomin úr réttum með fjögurra ára gamlan dótturson sinn, en þegar hún var að setja drenginn inn í bíl á leiðinni heim skrikaði henni fótur og hún rann nið- ur grýttan kant og lenti í mýrarbleytu. „Ég heyrði smellinn og var strax viss um að ég hefði brotnað,“ seg- ir Líney í samtali við Morgunblaðið. Líney hringdi þá í vinkonu sína sem tók af skarið og hringdi á sjúkrabíl en fólk í grenndinni sat með Líneyju þangað til hann kom. Líneyju var gefið morfín í sjúkrabílnum sem flutti hana á Kópasker þar sem læknir vísaði þeim áfram til Akureyrar. Líney varð mjög veik á leiðinni og kastaði ítrekað upp í bílnum. Hún segist hafa verið útæld og illa á sig komin þegar hún mætti á spítalann á Akureyri en þar byrjar hrakfallasagan fyrir alvöru. „Ég kem inn á Sjúkrahúsið á Akureyri klukkan sjö um kvöld, fer þá í röntgenmyndatöku og klukkan ellefu er úrskurður kominn um að um beinbrot sé að ræða. Mér er þá sagt að ég megi bara fara heim í ljósi þess að ekki þurfi að skera eða gera neitt við,“ segir Líney en þá runnu á hana tvær grímur. „Ég spurði starfsfólk spítalans hvort það vissi að ég ætti heima á Þórshöfn, sem er í þriggja tíma akstursfjarlægð, og útskýrði fyrir þeim að maðurinn minn væri einn heima með barna- barnið okkar og kæmist ekkert frá. Þau sögðu mér að hringja á leigubíl og fara á hótel og bættu svo strax við að ég gæti ekki farið á sjúkrahótelið því þar væri ekk- ert starfsfólk og að ég þyrfti á þjónustu að halda.“ Líney kom því ekki heim og saman að hún þyrfti að fá þjónustu en ætti samt að koma sér heim á eigin veg- um. „Þá var mér sagt að ég gæti í það minnsta fengið að borða á hótelinu en mér var ekki boðinn matur á spítalanum. Ég átti sem sagt að fara þaðan um hálftólf um kvöld, hringja á leigubíl sem ég hefði ekki komist hjálparlaust út í og reyna að finna mér eitthvert hótel á milli ælukastanna, yfirkomin af ógleði.“ Hún segir að sér hafi verið fullkomlega ofboðið. „Mín mannlega reisn fauk út í veður og vind. Mér var ekið fram í biðstofuna í hjólastól og ég átti bara að sjá um framhaldið sjálf.“ Líney segist hafa setið í almennu bið- stofunni í sundurklipptum buxum og berfætt, ælandi í poka. „Þau höfðu þó fyrir því að segja mér að ég fengi reikning í heimabanka, líklega einhverja tugi þúsunda eftir röntgenmyndirnar og bráðakomu og svo sjúkra- bíl,“ bætir Líney við. Líney bað um að fá að liggja einhvers staðar frammi á gangi á spítalanum en henni var tjáð að vinnuregl- urnar væru á þann veg að þegar sjúklingur þyrfti ekki á aðgerð að halda væri hann útskrifaður og sendur heim. Líney var þá send heim með fjórar paratabs og tvær bólgueyðandi töflur í farteskinu eftir að hafa verið sett í teygjusokk því að brotið lá rétt, að sögn lækna, en erfitt var að sjá það almennilega því það var svo mikið blóð í kringum áverkana. „Sálræn skyndihjálp og mannleg hlýja fyrirfannst ekki þarna. Ég var bara eitthvert mál sem þurfti að afgreiða og vinnureglurnar sendu mig burt.“ Líneyju tókst loks að ná í ættingja sína á Akureyri sem voru fyrir tilviljun á leiðinni til Þórshafnar daginn eftir og fékk hún að gista hjá þeim um nóttina. Segir hún það hafa verið erfitt fyrir þau og hana sjálfa að koma henni inn í bíl og inn í húsið þeirra, sem er á þremur pöllum. Þegar þau voru svo komin tvo þriðju af leiðinni aftur til Þórshafnar um morguninn fékk Líney símtal frá Akureyri þar sem henni var tjáð að hún þyrfti að mæta aftur upp á spítala í sneiðmyndatöku vegna þess að læknarnir hefðu komið auga á annað brot. Þegar Morgunblaðið náði tali af Líneyju í gærkvöldi hafði hún verið að íhuga hvort hún ætti hreinlega að leita sér læknisaðstoðar í Reykjavík í staðinn. Hún ákvað þó að lokum að fara til Akureyrar um kvöldið og var komin með gistingu hjá ættingjum sínum þar. Áætlað var að hún færi í sneiðmyndatöku í dag, mánu- dag. Hún kveðst hafa áhyggjur af stöðunni og finnst óvissan verst, þá hvað gerist í framhaldi af sneið- myndatökunni, en það verður að koma betur í ljós. Átti að koma sér sjálf fótbrotin heim á Þórshöfn - Segir starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri hafa brugðist sér Brotin Líney Sigurðardóttir heima á Þórshöfn í gær með barnabarnið í fanginu og tvíbrotinn fótlegg. Sigurður Már köku- gerðarmaður ársins Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Sigurður Már Guðjónsson, bakari og konditor hjá Bernhöftsbakaríi, var um helgina valinn kökugerðar- maður ársins á heimsþingi Al- þjóðasamtaka bakara og köku- gerðarmanna (e. International Union of Bakers and Confection- ers). Heimsþingið fór fram á Ís- landi. „Ég tek bara auðmjúkur við þessu en það eru margir hæfileika- ríkir fagmenn úti og væntanlega erfitt fyrir þá að velja hver eigi að fá þetta hverju sinni,“ segir Sig- urður Már. Verðlaunarafhendingin fór fram á laugardainn á Grand hóteli. Auk þess að velja kökugerðarmann árs- ins var bakari ársins einnig valinn. Að þessu sinni var það Þjóðverjinn Axel Schmitt sem hlaut þá viður- kenningu. Viðurkenningarnar tvær eru æðstu viðurkenningar sem bökurum og kökugerðar- mönnum geta hlotnast í heiminum. Sigurður Már fékk að vita fyrir fram að hann myndi hljóta viður- kenninguna til þess að geta undir- búið eftirrétt fyrir þinggesti. Breytti köku í eftirrétt „Fyrsta sem mér datt í hug var að breyta köku ársins árið 2011, sem var vinsælasta kakan hjá mér, í eftirrétt. Úr varð sítrónu- og van- illuskyrmús með hindberjakjarna,“ segir Sigurður Már. Eins og áður segir héldu sam- tökin heimsþing sitt á Íslandi og er um að ræða stærsta viðburð sem haldinn hefur verið í bakarastétt- inni á Íslandi, en alls sækja 70 bak- arar frá fimm heimsálfum þingið. - Heimsþingið var á Íslandi um helgina Morgunblaðið/Eggert Bakari Sigurður Már Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.