Morgunblaðið - 12.09.2022, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2022
✝
Kolbrún Dýr-
leif Pálmadótt-
ir fæddist í Reykja-
vík 12. apríl 1953.
Hún lést á Land-
spítalanum Hring-
braut 24. ágúst
2022 eftir stutta
sjúkrahúslegu.
Foreldrar henn-
ar voru Brynhildur
Sigtryggsdóttir, f.
21.9. 1932, d. 30.9.
2000, og Jón Pálmi Stein-
grímsson, f. 22.6. 1934, d. 16.6.
2001.
Kolbrún Dýrleif var elst fjög-
urra systkina, hin eru: Jón
Pálmi, f. 8.3. 1958; Aðalsteinn
Leví, f. 11.3. 1959, kvæntur
Kristínu Þorsteinsdóttur; Helga
Ingibjörg, f. 16.5. 1964, sam-
býlismaður Örn Felixson.
Edvardsdóttir, f. 6.12. 2000,
unnusti hennar Olaf Forberg. 4)
Sóldís Jóna Sigurðardóttir, f.
5.6. 2005.
Kolbrún fæddist með hjarta-
galla og fór mjög ung í hjarta-
aðgerð til Danmerkur. Mörk-
uðu þessi veikindi allt hennar
líf.
Kolbrún vann til fjölda ára
við afgreiðslustörf, saumaskap
hjá Sportveri, Fasa og öðrum
saumastofum og síðustu árin
sem hún var á vinnumark-
aðnum vann hún við þrif hjá
Securitas sem varð svo að ISS.
Kolbrún var mikil listakona í
höndunum og fór á fjölda leir-
og bastnámskeiða og var snill-
ingur með prjónana. Liggur eft-
ir hana fjöldinn allur af peys-
um, húfum, vettlingum og
sokkum, að ógleymdum dúkum,
hjá ættingjum og vinum úti um
allt. Útsaumur var líka í mikl-
um metum hjá henni og saum-
aði hún ógrynni af alls konar
myndum í gegnum árin.
Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að hennar ósk.
Hún ólst upp í
Kópavoginum og
bjó þar stærsta
hluta ævi sinnar,
en síðasta árið bjó
hún í Reykjavík.
Kolbrún eign-
aðist eina dóttur,
Brynhildi Hrund
Jónsdóttur, faðir
hennar er Jón
Norðmann Eng-
ilbertsson, eigin-
kona hans er Guðbjörg Vall-
aðsdóttir. Eiginmaður Bryn-
hildar er Sigurður Bjarni
Guðlaugsson, f. 28.9. 1974. Börn
þeirra eru: 1) Guðrún Þórdís
Edvardsdóttir, f. 9.2. 1991,
maki Þráinn Orri Jónsson, son-
ur þeirra er Theodór Breki, f.
29.6. 2018 2) Bjarni Sigurðsson,
f. 12.1. 1999. 3) Kolbrún Hulda
Kolbrún Dýrleif Pálmadóttir er
látin. Hún náði mun lengra en
henni var spáð og getur verið stolt
af sínu. Hún fæddist með hjarta-
galla 12. apríl 1953 og það var ekki
margt til bjargar þá. Sennilega
bara best að leyfa henni að deyja
ungri.
En svo fór ekki, fjölskyldan
frétti af stúlku í Danmörku sem
hafði sams konar galla í hjarta og
Kolbrún hafði, og var skorin þar
og það gekk vel. Foreldrar Kollu
vildu að hún fengi það sama en
það var ekki auðfengið, og sjúkra-
samlagið neitaði að taka þátt í
þessari vitleysu, að eyða pening-
um í þetta. Svo fór að Loftleiðir
sköffuðu þeim ferð til Danmerkur,
á meðan vorum við, ég og bróðir
minn, hjá afa og seinni konu hans,
við gott atlæti, fengum skeið fulla
af mysingi og sagt að fara út að
sleikja þetta þar. Svo við höfðum
það gott á meðan systir okkar
barðist fyrir lífi sínu.
En þetta gekk allt og hún varð
fullorðin snemma og reyndi að
stjórna okkur yngri systkinum
sínum. Það gekk misjafnlega vel.
Hún varð fullorðin og eignaðist
dóttur sem var eins og sólargeisli
á heimili mömmu og pabba, og allt
snerist um hana.
Hún var alltaf dugleg til vinnu
sem henni líkaði, en síðustu ár
hafa ekki verið eins og til var ætl-
ast og þessi sjúkdómur ásamt öðr-
um varð verri og verri og lyfin
virkuðu ekki eins og skyldi lengur.
Hún orðin amma tveggja ynd-
islegra stelpna svo henni fannst
nóg komið. Nei nei, ekki misskilja
mig, hún bara datt heima hjá sér
og braut mjaðmagrindina. Það
þarf ekki alltaf stóra gusu til að
fylla mælinn, það þurfti bara síð-
asta dropann. Hún yfirgefur þetta
jarðlíf bara sátt, svo að ég held að
þetta sé bara gott hjá henni.
Ég kveð hana bara eins og allt-
af, hún er kannski ekki búin að
átta sig á að hún sé dáin, en það
getur tekið smá tíma. Kolla mín,
ég kveð þig og vona að það sé ekki
meira heilsuströggl þar sem þú
ert nú og ég bið að heilsa þeim
sem ég þekki þarna þó að það séu
kannski ekki margir.
Þinn bróðir,
Jón Pálmi
Pálmason.
Elsku Kolla mín. Nú ertu búin
að fá langþráðu hvíldina þína og
við búin að kveðja þig og mamma
þín komin með þig í fangið aftur
og Keli köttur kominn til þín aft-
ur.
Þegar ég kom inn í fjölskylduna
fyrir 45 árum vissi ég ekki alveg
hvar ég hefði þig og tók mig smá-
tíma að komast inn fyrir skelina
hjá þér. Þú varst nefnilega ekki
allra. Eftir það vorum við mjög
góðar vinkonur og þú kallaðir mig
alltaf langbestu mágkonuna þína
og eftir að foreldrar þínir fóru í
sumarlandið sagðir þú að ég væri
límið í fjölskyldunni og þykir mér
alltaf mjög vænt um þessi orð. Við
unnum saman í nokkur ár og
gerðum ýmislegt saman eins og
gerist og gengur.
Þú varst mjög hvatvís og bein-
skeytt í samskiptum við fólk og
áttu sumir mjög erfitt með það.
En þú vildir alltaf vel og vinahóp-
urinn þinn sýnir þess merki. Þú
varst dugleg að halda sambandi
við ættingja, vini og kunningja.
Sem dæmi fannst þér ekkert til-
tökumál að keyra í þrjá klukku-
tíma norður í land að heimsækja
okkur í bústaðinn og til baka aftur
um kvöldið því þú gast ekki sofið
neins staðar nema heima hjá þér
og varst dugleg að sækja ýmsa
viðburði eins og prjónakaffi hjá
Sjálfsbjörg enda varstu snillingur
með prjónana í höndunum og ligg-
ur eftir þig ógrynni af peysum,
húfum, vettlingum, dúkum og
skírnarkjólum. Þú fékkst ástríðu
fyrir ýmsu sem þú gast gert með
höndunum og fórst á ýmis nám-
skeið til að læra handverk eins og
t.d. körfugerð úr basti, leirnám-
skeið og keramiknámskeið svo
eitthvað sé nefnt. Að ógleymdum
öllum myndunum og ýmsu sem þú
saumaðir út og prýða veggi hjá
ættingjum og vinum.
Ekki varstu langskólagengin
en þú fórst í Kvennaskólann á
Blönduósi og lifðir á þeim lær-
dómi alla ævi.
Ein saga af þér var rifjuð upp,
þegar foreldrar ykkar fóru utan
og þú varst heima að passa systk-
ini þín. Þú áttir að sjá um að gefa
þeim að borða og kunnáttan í
eldamennskunni var ekki alveg
upp á hundrað og þú gafst þeim að
borða kjöt með súpu út á sem sósu
og sósu sem súpu í eftirrétt!
Minnug varstu og mundir alla
afmælisdaga hjá öllum í kringum
þig.
Lífshlaup þitt var ekki alltaf
auðvelt og á þessi vísa eftir Stein
Steinar mjög vel við líf þitt:
Að sigra heiminn er eins og að spila á
spil
með spekingslegum svip og taka í nefið.
Og þótt þú tapir, það gerir ekkert til,
því það er nefnilega vitlaust gefið.
Elsku Kolla, hvíl í friði, minn-
ing þín lifir í hjörtum okkar.
Meira á www.mbl.is/andlat
Þín mágkona og bróðir,
Kristín Þorsteins-
dóttir og Aðalsteinn
Leví Pálmason.
Kolla var frábær og yndisleg
kona sem ég kynntist fyrir 17 ár-
um þegar ég hitti Brynhildi dóttur
hennar á skemmtistað. Ég var að
vísu búinn að hitta hana oft áður
þegar ég þurfti að ná tali af
frænda mínum sem var að vinna
með henni.
Mér er alltaf minnisstætt þegar
við vorum búin að búa saman í
nokkra mánuði og ég spurði Kollu
hvort ég mætti giftast dóttur
hennar. Hún svaraði: „Já ætli það
ekki, þú verður líklega að fá leyfi
hjá pabba hennar líka!“
Kolla, þú varst frábær tengda-
móðir og amma barna okkar og
fósturamma, þú varst líka frábær
langamma.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar; Danmerkurferðina fyrir
nokkrum árum og svo má ekki
gleyma Tenerifeferðinni í sumar
sem var frábær.
Takk fyrir allt elsku Kolla, þín
verður ávallt minnst og saknað.
Þinn tengdasonur,
Sigurður Bjarni
Guðlaugsson.
Mig langaði að minnast Kol-
brúnar D. Pálmadóttur, sem lést á
hjartadeild Landspítala þann 24
ágúst s.l., með nokkrum orðum.
Við kynntumst fljótlega eftir að ég
flutti í íbúð á móti hennar á Ný-
býlaveginum og vorum nágrannar
í 15 ár. Eftir að hún flutti úr hús-
inu fyrir þrem árum héldum við
sambandi.
Kolbrún var góð og umhyggju-
söm kona. Hún elskaði fjölskyldu
sína ofurheitt og bar hag hennar
allrar mjög fyrir brjósti. Hún var
amma allra barna sem bættust í
fjölskylduna, sama þótt þau væru
ekkert skyld henni. Kolbrún var
glaðsinna og opin, hún var ófeimin
að gefa sig að fólki og spjalla, hún
var opinská um skoðanir sínar og
ófeimin að segja álit sitt. Hún var
lengi vel í prjónahópi og þar hafði
hún aðgang að alls kyns græn-
meti. Eftir prjónahittinginn hékk
yfirleitt poki með ýmiss konar
grænmeti á hurðarhúninum þeg-
ar ég kom heim. Svona hugsaði
Kolbrún alltaf um aðra.
Það var Kolbrún sem sá um að
allt væri hreint og snyrtilegt í og
kringum húsið okkar. Hún beið
ekki eftir að einhver annar gerði
hlutina, heldur gekk sjálf í verkið.
Hún tíndi upp rusl, þvoði sorp-
geymsluna og tunnurnar, sópaði
stéttina og þreif tröppurnar og
innganginn. Hún tók niður gard-
ínurnar í stigaganginum, þvoði
þær og hengdi síðan aftur upp.
Hún keypti blóm og setti í pott
við innganginn, gróðursetti tré í
garðinum og ræktaði jarðarber í
pottum á svölunum. Kolbrún hafði
yndi af fallegum blómum. Hún
komst varla sjálf um svalirnar sín-
ar fyrir blómapottum þar sem alls
kyns blóm brostu mót sólu. Gull-
regnið, sem blómstrar á hverju
sumri fyrir utan eldhúsgluggana
okkar, er tréð hennar Kolbrúnar.
Þegar ég horfi á það hugsa ég allt-
af til hennar.
Kolbrún var góður nágranni og
ég og við hin í húsinu vorum hepp-
in að eiga hana fyrir nágranna.
Hún tók með glöðu geði að sér að
hugsa um mín blóm þegar ég fór í
ferðalög. Ég hefði vilja hitta hana
oftar en aðstæður undanfarin ár
buðu oft ekki upp á hitting. Við
hringdum hvor í aðra reglulega og
hittumst núna í sumar þegar ég
heimsótti hana. Hún var á leið til
Tenerife með fjölskyldu sinni og
hlakkaði mikið til.
Nú er Kolbrún farin í ferðina
miklu í sumarlandið og að fara
þangað var tilhlökkunarefni hjá
henni. Það er gott til þess að
hugsa að nú er hún orðin heilbrigð
og sátt og örugglega búin að hitta
köttinn sinn aftur. Ég er þakklát
fyrir að hafa kynnst og þekkt Kol-
brúnu Dýrleif Pálmadóttur. Guð
blessi minningu hennar.
Sigurbjörg.
Kolbrún Dýrleif
Pálmadóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar og andlát
Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar,
fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang
að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið
hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum.
Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum.
www.mbl.is/andlát
Minningargreinar
Hægt er að lesa minningargreinar,
skrifa minningargrein og æviágrip.
Þjónustuskrá
Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða
þegar andlát ber að höndum.
Gagnlegar upplýsingar
Upplýsingar og gátlisti fyrir
aðstandendur við fráfall ástvina.